Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 50
ÍG er með verkstæði og sýning- arsal í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Vefsíða félagsins er á islenskgrafik.is. myndlistinni og þá ekki síst fræðimönnum í greininni. Bjarni, sonur hans, segist alltaf hafa haft gaman af þessari hlið á karli föður sínum. „Karlinn hefur alltaf haft býsna ákveðnar skoðanir á þessum myndlistarheimi, verið til í að skammast og rífa kjaft. Það má segja að hans sýn hafi verið sú að lista- menn ættu að vera ráðandi í myndlistarheiminum, ekki fræðingar,“ segir Bjarni. Kjartani hafi alltaf þótt lista- menn lítið ráðandi í rekstri og stjórn opinberra lista- safna og ekki nógu duglegir að tjá sig um myndlist í dagblöðum. Listfræðingarnir haldi í valdaspott- ana, stjórni því hverjum sé hampað á söfnum, hverjir fái að halda sýningar og hverjum sé hampað á síðum blaðanna. KJARTAN tilheyrði í upphafi listferils síns hinum rót- tæka Septemberhópi sem ögraði mjög ríkjandi gildum og viðmiðum í myndlist á Íslandi. Septemberhópurinn hélt sína fyrstu sýningu í Listamannaskálanum 1947 og olli hún nokkru uppnámi í menningarlífinu með tilheyr- andi blaðaskrifum. Eins og Kjartan orðar það sjálfur í samtali við Þórunni Þórsdóttur í Morgunblaðinu árið 2001: „En það urðu heilmikil læti og blaðaskrif fyrstu mánuðina eftir opnun, abstraktlistin þótti víst argasta frekja og útúrsnúningur veruleikans.“ Fræðingar halda í spottana Kjartan hefur löngum verið þekktur fyrir að hafa munninn fyrir neðan nefið og ákveðnar skoðanir á Abstraktið „argasta frekja“ 50 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009 ARKITEKTÚRRÝNIR The New York Times, Nicolai Ourousof, segir að nýjasta bygging stjörnuarkitekts- ins Renzo Piano, viðbygging við lista- safnið Art Institute í Chicago, sé það næsta sem Piano hafi komist síðasta áratuginn í láta hugmyndir sýnar um nær klassíska draumsýn ganga upp. Hin nýja bygging Art Institue, sem kostaði 294 milljónir dala, verður tek- in í notkun í dag. Þar með er safnið orðið næststærsta listasafn Banda- ríkjanna, á eftir Metropolitan- safninu í New York. Hönnun Piano er lofuð þessa dagana í stærstu fjölmiðlum vest- anhafs og fagrit- um arkitekta. Ouroussof segir Bandaríkin hafa síðustu ár „þjáðst af Renzo Piano-þreytu,“ en arkitektinn hefur tekist á við margar mest áber- andi byggingar liðinna ára, til dæmis endurbyggingu Morgan Library Mu- seum í New York, vísindamiðstöð í San Francisco og viðbyggingar við söfn í Los Angeles, Boston, Chicago og Fort Worth. Gagnrýnandinn segir þessa nýju byggingu í Chicago einhverja þá bestu af þeim öllum, glæsilega og ró- lega, ekki valda byltingu, og umfram allt styðji hönnunin vel við listina sem þar sé til sýnis. Myndlistarrýnir blaðsins segir mörg verka safnsins öðlast nýtt líf í nýjum sölum. Klassísk draumsýn Ný safnbygging Piano vígð í Chicago Hin nýja viðbygg- ing Art Institute. ALEC Baldwin, leikarinn banda- ríski, er á leið til Hanoi í Víetnam í haust til að sinna nýjasta verkefni sínu. Starfið tengist þó ekki leiklist, beinlínis, en hann hefur verið ráðinn til þess að vera sérlegur útvarpsþulur Fílharm- óníusveitarinnar í New York og kynna tónleika sveitarinnar í beinni útsendingu bandaríska ríkisútvarps- ins, NPR, National Public Radio. Baldwin er sagður spenntur fyrir verkefninu en þetta er í fyrsta sinn sem þessi fræga hljómsveit leikur í Víetnam. Tvennir tónleikar verða haldnir þar í landi í Óperuhúsinu í Hanoi. „Þetta er eitt það stórkost- legasta sem ég hef nokkru sinni tek- ið mér fyrir hendur,“ sagði Alec Baldwin um nýja starfið í kvöldþætti Davids Lettermans á þriðjudags- kvöldið. Með nýja starfinu fetar leik- arinn í spor Jóns Múla Árnasonar sem um árabil kynnti tónleika Sin- fóníuhljómsveitar Íslands í Ríkis- útvarpinu. Baldwin í fótspor Jóns Múla Alec Baldwin LISTMÁLARARNIR Tryggvi Ólafsson og Daði Guðbjörns- son ræða á morgun, sunnudag, á milli klukkan 15 og 16 við gesti Gallerí Foldar við Rauð- arárstíg um verk sín og tilurð sýninganna sem þeir halda þar um þessar mundir. Er það jafnframt síðasti dagur sýning- anna. Tryggvi og Daði eru kunnir öllum áhugamönnum um myndlist. Tryggvi er fluttur heim til Íslands eftir næstum hálfrar aldar búsetu hjá Dönum og sýnir ný og nýleg verk. Daði Guðbjörnsson sýnir ný ol- íuverk og er titill sýningarinnar „Ísland án tára.“ Aðgangur er ókeypis. Myndlist Tryggvi og Daði segja frá verkunum Eitt verka Tryggva Ólafssonar. BJÖRN Thoroddsen mun ásamt tríói sínu og Andreu Gylfadóttur söngkonu verða með tónleika fyrir alla fjöl- skylduna í Iðnó á morgun, sunnudaginn 17. maí, kl. 16. Á tónleikunum leika þau lög af nýútkomnum geisladiski, Heiðanna ró, auk þess að leika lög af fyrri diskum sínum, Vorvindum og Vorvísum. Hljómsveitin er, auk Björns og Andreu, skipuð þeim Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara og Jó- hanni Hjörleifssyni trommuleikara. Tónleikarnir eru hugsaðir fyrir alla aldurshópa og miðaverð er 1.000 krónur, en frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Tónlist Leika standarda og tónlist af „heiðinni“ Björn Thoroddsen NÁTTÚRUGÆSLUSTÖÐIN Reykjavík hefur starfsemi í dag. Þetta er samstarfsverk- efni þar sem kynnt er fyrir al- menningi hvernig hægt er að bæta sitt nánasta umhverfi á skapandi hátt. Lögð verður áhersla á að bæta umhverfi Reykjavíkurtjarnar. Fyrsti viðburðurinn er Tjörnin í nýju ljósi, milli kl. 11 og 14 í dag. Við Ráðhúsið hefur bílastæði verið breytt í lítinn garð, hægt verður að fræðast um vistkerfi tjarnarinnar, gefa fuglum náttúrulega fæðu og sigla rafgæsum um tjörnina. Þá opnar sýning kl. 15 í Gallerí 100° í Orkuveituhúsinu. Sýn- ingin er heildaryfirlit verkefnisins. Myndlist og náttúra Rafgæsir og um- hverfið bætt Við Reykjavíkur- tjörn. Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is KJARTAN Guðjónsson er einn virt- asti og elsti listmálari þjóðarinnar, og jafnframt einn af stofnendum fé- lags grafíklistamanna á Íslandi. Fé- lagið var stofnað árið 1954 og má því segja að hér sé um frumkvöðulssýn- ingu að ræða. Íslensk grafík fagnar 40 ára af- mæli í ár og er sýningin á verkum Kjartans liður í afmælishaldinu. Kjartan er þekktari af málverkum sínum en grafíkverkum og ætti sýn- ingin að verða þeim mun forvitnilegri fyrir vikið. Bjarni, sonur Kjartans, kom að því að safna verkum fyrir sýninguna auk annarra og segir þau sýnishorn af grafíkferli föður síns sem hafi ekki verið mjög langur. Bjarni segir öll verkin úr eigu fjöl- skyldunnar, unnin allt frá 1943 þegar Kjartan var í námi í Chicago til árs- ins 1980 eða þar um bil. Bjarni segir styrk föður síns sem myndlistarmanns fyrst og fremst hafa legið í fádæma teiknihæfi- leikum. „Hvort sem þú málar mál- verk eða vinnur grafíkmynd er teikn- ing grunnurinn, myndbyggingin og grunnhugsunin um þessa mynd sem þú ætlar að koma frá þér, það bygg- ist allt á því,“ segir Bjarni. Verkin skissuð fyrst Fjölskylda Kjartans á heilu stæð- urnar af skissubókum eftir hann og segir Bjarni líklegt að einhverjar þeirra verði til sýnis í Íslenskri graf- ík. „Hann teiknaði og teiknaði heilu bækurnar og var að leika sér með myndir, gerði margar skissur áður en hann ákvað að þetta yrði málverk. Málverk sem hann byrjaði á var hann algjörlega búinn að hugsa og sjá það fyrir sér áður en hann byrjaði að vinna og þetta gerði hann með grafíkina líka.“ Bjarni tekur undir það að menn verði að miklu leyti að hugsa hlutina fyrirfram þegar kemur að grafíklist- inni. „Þú þurrkar ekkert út dúkrist- una. Hann var algjörlega búinn að teikna myndirnar upp, meginlín- urnar og svo kom auðvitað ákveðið handbragð á skurðinn.“ Grafíkverkin á sýningunni eru öll fígúratíf og flest svarthvít. Myndefnið er að stóru leyti bernskuminningar Kjartans en hann var mörg sín æskuár í sveit á sumrin vestur í Dýrafirði. „Það er kannski hans drýgsti brunnur,“ segir Bjarni. Sýningin verður opnuð kl. 15 í dag og er aðgangur ókeypis. Grafíkerinn Kjartan  Sýning á grafíkverkum listmálarans Kjartans Guðjónssonar verður opnuð í dag í Íslenskri grafík  „Hann teiknaði og teiknaði heilu bækurnar,“ segir sonur hans Morgunblaðið/Kristinn Svartlist Ein af dúkristum Kjartans á sýningunni, mynd af daglegu lífi fólks eins og hann er kunnur fyrir. Kynlífið er mik- ilvægur drifkraftur í öllum myndunum, það er notað til að sýna bæði nánd og skort á nánd... 56 » TÓNLEIKAR Vox Academica í Langholtskirkju í dag, sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær, hefjast kl. 15, en ekki 16, eins og ranghermt var. H-moll kl. 15 LEIÐRÉTT Félagið Íslensk grafík (ÍG) var stofnað árið 1969 og fagnar því fertugsafmæli í ár. Félagar í ÍG eru yfir 70 talsins. ÍG er fagfélag myndlistarmanna sem leggja stund á hina fornu grafíklist og nýrri hliðargreinar, t.d. ljós- myndagrafík. Grafík einkennist af því að myndverkið er þrykkt, oftast á pappír. Grafík skiptist í háþrykk, djúpþrykk og flatþrykk. Dúk- og trérista er háþrykk, þá er skorið í dúk eða tré og það sem skorið er upp úr verður hvítt í þrykkinu. Því er öfugt farið með djúpþrykk, það sem skorið er upp úr kop- arplötu verður svart. Flatþrykk er svo heiti yfir grafíkaðferðir þar sem skurði eða ætingu er ekki beitt, í silki- og steinþrykki til dæmis. Grafík gerir listamönnum kleift að þrykkja verk í upplagi þó svo að engin tvö þrykk verði al- veg eins. Upplagið er merkt með númerum eftir fjölda eintaka. Af einu efni á annað Listmálarinn Kjartan árið 1998.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.