Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 52
52 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009  Enginn veit af persnesku kött- unum er mynd um neðanjarð- artónlist í Teheran sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Þar dreymir alla um að redda sér vega- bréfi og vegabréfsáritun til þess að komast til útlanda til að spila og þegar aðalpersónan Negar rekur þennan draum þá segir hann okkur af öllum stöðunum sem hann vill heimsækja og endar upptalninguna með þessum orðum: „Og til Íslands til að sjá Sigur Rós,“ og allir borð- félagar hans kinka samþykkjandi kolli. Íranar greinilega mikið smekkfólk á tónlist. Af þeim félögum í Sigur Rós er svo að frétta að tvær myndir eru nú sýndar á hinum áhrifamikla tónlist- arvef Pitchfork; annars vegar hin 35 mínútna Við spilum endalaust og 13 mínútna myndband sem tekið var í Abbey Road-hljóðverinu í Liv- erpool þegar upptökur stóðu yfir á síðustu plötu sveitarinnar. Sigur Rós í Teheran og á Pitchfork Fólk Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „SÝNINGIN spratt upp úr skyndilegu frelsi frá launaseðlum og springur út í gleði og íhugun, tengslum við lífið og tilveruna og spurningunni um það hver maður er,“ segir Dagur Gunn- arsson ljósmyndari sem opnar sýningu í Gallerí Grumsi, Laugavegi 12, kl. 16 í dag. „Þeir sem þekkja mig verða kannski hissa því það er ekki ein einasta manneskja á mynd- ununum en mín sérgrein og það sem ég hef mest gaman af að taka eru portrett og mannamyndir. Þessar myndir eru frekar mystískar og óhlut- lægar, flestar eru leikur með ljós og skugga.“ Það er spurning hvort frelsinu frá föstum launaseðlum hafi þá fylgt vantrú á fólki? „Alls ekki. Það blunda í mér þrjár sýningar og þessi tróð sér fremst. Svo tók ég myndaseríu í búsáhaldabyltingunni sem ég er mjög ánægður með. Hún var sýnd á vefsíðu Radio France en þeir gerðu heimildaþátt um búsáhaldabylt- inguna. Þeir sem þekkja mig eru líka hissa á því að ekkert af þeim myndum sé á sýningunni.“ Er þá yfirhöfuð hægt að þekkja þig? „Já, en það er greinilega nýr Dagur að vakna til lífsins í kreppunni. Og hér í Gallerí Grumsi, sem eitt sinn hét Skarthúsið, ætla ég að sitja yfir sýningunni næsta hálfa mánuðinn og klippa í leiðinni stuttmynd sem ég er að gera um Ljótu hálfvitana. Ég er líka með mynd um kreppuna í vinnslu en hún er ekki komin jafn langt.“ Dagur sýnir nýjan Dag og vinir hans eru hissa Morgunblaðið/Kristinn Nýr Dagur Það eru engar manneskjur á myndum Dags þótt mannamyndir séu hans uppáhald.  Gríski Evróvisjónkeppandinn Sakis Rouvas hefur verið íslenska kvenfólkinu hugleikinn í Moskvu. Rouvas þykir með ólíkindum mynd- arlegur og ekki skemma fyrir allar kraftæfingarnar sem hann fram- kvæmir á sviðinu. Um daginn sat stór hluti íslenska kvenhópsins eftir með sárt ennið þegar Rouvas mætti ekki til opnunarhófs Evróvisjón- keppninnar en úr því var víst bætt nokkrum dögum síðar í öðru Evr- óvisjónhófi. Ljóst má vera að þar hafi íslenski hópurinn skorað nokk- ur stig hjá gríska hjartaknús- aranum því á myndbandi sem sýnir æfingu Rouvas fyrir seinni for- keppnina er hann spurður hvaða lag hann telji að vinni keppnina í ár. „Ísland. Það væri gaman ef keppnin yrði haldin á Íslandi,“ seg- ir hann þar án þess að hugsa sig um og við getum ekki annað en verið sammála. Að vísu sagði hann „æl- and“ en þar sem Írland er ekki í úr- slitum í ár getur ekki verið að þessi fjallmyndarlegi Grikki meini annað en Ísalandið fagra. Sakis vill keppnina á Íslandi að ári Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „JÚ það er rétt, ég get staðfest að Gauragangur er á meðal verkefna á dagskrá næsta leikárs í Borgarleik- húsinu,“ svarar Magnús Geir Þórð- arson, leik- hússtjóri Borgarleikhúss- ins, spurður um orðróm þess efnis að verkið sé vænt- anlegt á fjalir leik- hússins. „Leik- ritið er bráð- skemmtilegt og okkur fannst al- veg kominn tími á að það færi aftur á svið, en það verða orðin 17 ár síðan það var frum- sýnt.“ Það er því ljóst að áframhald verður á sam- starfi Borgarleik- hússins og Ólafs Hauks á næsta leikári, en verk hans, Fólkið í blokkinni, gekk fyrir fullu húsi á yf- irstandandi leikári. „Okkur þótti kjörið að fylgja eftir velgengni Fólks- ins í blokkinni sem Ólafur Haukur skrifaði fyrir okkur í vetur. Þá fund- um við sterkt hvað áhorfendur kunna vel að meta manneskjulegan og hlýj- an tóninn sem einkennir leikritin hans, ekki síst nú um stundir. Hann á beina leið að hjarta áhorfenda,“ segir Magnús Geir sem mun sjálfur leik- stýra Gauragangi sem verður frum- sýndur í byrjun árs 2010. Mannlegt og hlýtt Margir muna eflaust eftir upp- færslu Þjóðleikhússins á Gauragangi árið 1993, en hún naut gríðarlegra vinsælda. Í þeirri uppfærslu fóru þeir Ingvar E. Sigurðsson og Sigurður Sigurjónsson með aðalhlutverkin, undir leikstjórn Þórhalls Sigurðs- sonar. Síðan þá hefur verkið ekki ver- ið sett upp í stóru leikhúsunum þótt nokkrir framhaldsskólar og leikfélög á landsbyggðinni hafi sett verkið upp. Þá nýtur bókin mikillar hylli og er hún lesin í mörgum grunn- og fram- haldsskólum landsins og ætti því að vera mörgum í fersku minni. Að sögn Magnúsar Geirs er nú ver- ið að leggja lokahönd á dagskrá næsta leikárs og er starfsfólk leik- hússins afskaplega spennt fyrir þeim verkum sem framundan eru. Svip- aðar áherslur verða ríkjandi og nú í vetur, þar sem breitt litróf verka verður á boðstólum. Leikárið sem nú er að ljúka mun annars vera það aðsóknarmesta frá upphafi og stefnir í að heildarfjöldi gesta verði um 200.000 þegar yfir lýk- ur. Flestar sýningar leikhússins hafa hlotið góða aðsókn en þrjár sýningar hafa laðað flesta gesti í leikhúsið, en það eru Fló á skinni, Fólkið í blokk- inni og Söngvaseiður. Gauragangur aftur á svið  Hin gríðarlega vinsæla saga Ólafs Hauks Símonarsonar verður á fjölum Borgarleikhússins á næsta leikári  Leikhússtjórinn leikstýrir verkinu sjálfur 1993 Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki sínu sem Ormur Óðinsson í Gauragangi í Þjóðleikhúsinu. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „ÞETTA er eins konar völundarhús. Það er eins og maður hverfi inn í draumaheim,“ segir Reinert Mithas- sel eftir að hafa leitt blaðamann um framandi heim innan veggja Kling & Bang á Hverfisgötu 42. Þar verður í dag klukkan 17 opnuð Innan seil- ingar, innsetning Reinerts, Kristjáns Björns Þórðarsonar, Carles Langes, Dóru Ísleifsdóttur, Páls Einarssonar, Tinnu Lúðvíksdóttur, Úlfs Eldjárn og Þorvaldar Þorsteinssonar. „Getur meðvitundin náð taki á undirmeðvitundinni?“ spyr Reinert eftir að við höfum smeygt okkur milli bylgjandi veggja, um mis- þrönga ganga og stokka sem klædd- ir eru mjúku flaueli. Hann svarar sjálfur: „David Lynch sagði á dög- unum að það væri hægt, undir- meðvitundin er djúpur hylur þekk- ingar. Hugurinn er svona völundarhús. Þetta verk er völund- arhús en líka tilraunir og samræða ólíkra efna og forma.“ Inni í verkinu er myndböndum varpað á þak fléttað úr pappalengj- um, þar eru alls kyns hljóð og ljós og það er ganga okkar um rýmið sem kveikir á tækjunum. Í einu horni glittir í sjálfspilandi píanó. Stór hluti hópsins tók þátt í til- raunakenndri sýningu í Þjóðleikhús- inu á dögunum, Eternum. „Þetta er þrefalt verkefni,“ segir Reinert. „Fyrst gerðum við Eterinn, þá er þessi sýning hér og loks gerum við bók. Allt byggt á sama efniviðn- um en við höfum mikinn áhuga á hinu ósýnilega, því sem er hálfhulið og ekki aðgengilegt, og því sem er ekki mögulegt að sanna.“ Listamenn á yfirráðasvæði drauma og undirvitundar Morgunblaðið/Einar Falur Ljós við enda ganganna Listamennirnir Reinert, Kristján Björn og Tinna. Hafa reist viðamikla innsetningu í Kling & Bang galleríinu Gauragangur kom fyrst út árið 1988 og er þroskasaga ung- lingsins Orms Óðinssonar og vina hans þar sem stelpumálin, fjölskyldan og glíman við skól- ann fléttast inn í. Bíómynd sem byggð er á Gauragangi er nú í bígerð, en það er kvikmyndafyr- irtækið Zik Zak sem framleiðir. Þroskasaga Magnús Geir Þórðarson Ólafur Haukur Símonarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.