Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009 VEFURINN oskasteinn.com hefur verið opnaður en þar er að finna upplýsingar um söfnun fyrir Þuríði Hörpu Sigurðardóttir á Sauðár- króki sem hyggst leita sér stofn- frumumeðferðar á Indlandi í sum- ar. Þuríður lamaðist fyrir neðan brjóst er hún datt af hestbaki fyrir tveimur árum. Oskasteinn.com VERÐ á tannlæknaþjónustu barna er mjög mismunandi milli tann- læknastofa ef marka má niður- stöður nýrrar verðkönnunar Neyt- endasamtakanna. Svör bárust frá 106 tannlæknum sem er innan við helmingur starfandi tannlækna. Þannig er t.d. rúmlega 3.000 kr. munur á hæsta og lægsta verði fyr- ir áfangaeftirlit, lægsta verðið 1.000 kr. en hæsta 4.185. Hæsta verð fyrir röntgenbitmynd var 3.400 kr. en verðskrá Sjúkratrygg- inga er til samanburðar 1.033 kr. Sundurliðaðar niðurstöður má sjá á vefslóðinni www.ns.is Mikill verðmunur STUTT FRÉTTASKÝRING Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is „ÉG gerði grein fyrir minni afstöðu og ráðuneytisins; um mikilvægi þess að snúast til varnar fyrir börn og ung- linga meðal annars með neyslustýr- ingu,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra. Hann kynnti hugmyndir sínar um sykurskatt á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun og segir þær tilkomnar vegna lýðheilsu- sjónarmiða „og til að við verðstýrum ekki óhollustunni ofan í fólkið, heldur gerum hið gagnstæða“. Tillagan er sett fram í fullu samræmi við óskir Lýðheilsustöðvar og sérfræðinga þar. Ögmundur segir jafnframt eðlilegt að horft sé til þessara mála nú, þegar al- vara málsins hefur verið staðfest með löngum biðröðum í ókeypis tann- læknaþjónustu á umliðnum laug- ardögum. „Það er augljóst að einn þátturinn þar er verðlag, en hann er bara einn af mörgum,“ segir Ög- mundur. Tannheilsa sé líka spurning um eftirlit og aðhald. „Og ég vil taka á öllum þessum þáttum,“ segir hann og upplýsir að hann leggi nú drög að víð- tæku samráði fagaðila um málið. Verður rætt betur Ögmundur segir að eftir sé að ræða frekar um sykurskattinn í rík- isstjórninni, málið hafi aðeins lítillega verið rætt í gærmorgun. Hann segist hafa fengið geysilega góðar und- irtektir við hugmyndina úti í þjóð- félaginu. „Það eru undantekningar, meðal hagsmunaaðila í gos- drykkjaframleiðslu, það er skiljanlegt að menn gæti sinna hagsmuna. En ég held að við þurfum að hugsa þetta þjóðhagslega og með tilliti til heilsu- fars barna og unglinga hvað varðar þessa óhollustu og sykurinn almennt þó að útfærslan þurfi að skoðast bet- ur.“ Ögmundur minnir á að fyrir fáein- um misserum voru felld niður vöru- gjöld og virðisaukaskattur á matvæli, en hinn 1. mars 2007 voru felld niður vörugjöld m.a. af gosdrykkjum, þau voru áður 8 kr. á lítra af gosi og ávaxtasafa. Niðurfellingin var gerð samhliða niðurfærslu á virð- isaukaskatti á matvæli úr 24,5% eða úr 14% í 7%. „Þá var skattur á gos- drykki lækkaður meira en á nokkra aðra vöru!“ Þetta segir Ögmundur hafa verið gegn ábendingum Lýð- heilsustöðvar en nú sé verið að gera tillögu um að snúa þessu við. Hann hefur ekki gert sér neinar hugmyndir um hversu miklar tekjur muni innheimtast í ríkiskassann með skattlagningunni. „Hvað skattlagn- ingu áhrærir og áhrif hennar er eitt- hvað sem fjármálaráðuneytið skoðar og þá í samhengi við aðra þætti. Ég er að hugsa um heilsufarsþáttinn í þessu,“ segir Ögmundur. Hann tekur fram að hann telji frá- leitt annað en taka tillit til ábendinga bestu sérfræðinga landsins í lýð- heilsumálum. Um áhrif á neysluverðsvísitölu vegna skattlagningarinnar segir hann að hættan á aukinni verðbólgu mælist fyrst og fremst í lánum landsmanna. „Það þarf að taka á því á réttum for- sendum varðandi verðtrygginguna. Staðreyndin er sú að rannsóknir hafa sýnt á óyggjandi hátt að það er sam- hengi á milli neyslu gosdrykkja og verðlags.“ Alvara málsins staðfest  Ögmundur Jónasson segir rangt að verðstýra óhollustunni ofan í landsmenn  Nú þarf að snúast til varnar fyrir börn og unglinga með eftirliti og aðhaldi Morgunblaðið/Árni Sæberg Þarf að bora? Tannlæknar hafa boðið upp á ókeypis tannlæknaþjónustu nokkra laugardaga og komast færri að en vilja. Ögmundur Jónasson kynnti hug- myndir sínar um sykurskatt á rík- isstjórnarfundi í gærmorgun. Hann leggur nú drög að víðtæku samráði fagaðila um málið. „Já, veistu, ég er ekki frá því, við erum náttúrlega með heimsmet í gos- drykkjaneyslu,“ segir Ingibjörg Sara Benediktsdóttir, formaður Tann- læknafélags Íslands, þegar hún er spurð hvort hugmyndir heilbrigð- isráðherra geti hugsanlega bætt tannheilsu íslenskra barna. Hún segir sykurinn í sætum gosdrykkjum skemma tennurnar en í sykurlausum drykkjum sé rotvarnarefni og sýra sem eyði glerungi. „Sykurlausa gosið veldur alveg jafnmiklum glerungsskemmdum sem er stórt vandamál hjá ís- lenskum unglingum,“ segir hún en hnykkir á að tannskemmdirnar sjálfar myndist bara vegna sykurs. Hún kveðst hlynnt því að allt gos verði skatt- lagt frekar. Hugmynd Ögmundar vekur misjöfn viðbrögð og haft er eftir Jóni Stein- dóri Valdimarssyni, framkvæmdastjóra SI, á heimasíðu samtakanna að neysla ósykraðra drykkja hafi aukist á kostnað hinna án hjálpar skattlagn- ingar. Jón Steindór lítur svo á að verið sé að leggja til skatt á íslenska drykkjarvöruframleiðendur, skatt á íslenskar fjölskyldur og hækkun á neysluverðsvísitölu sem kalli á aukna verðbólgu. Þá er á heimasíðu Neytendasamtakanna minnt á ályktun þeirra gegn sykurskatti frá árinu 2004 þegar svipaðar hugmyndir voru uppi en þar kemur fram að beita þurfi öðrum aðgerðum, m.a. fyrirbyggjandi fræðslu í skólum. „Sérstök skattlagning er neyslustýring og leiðir til aukinna út- gjalda heimilanna.“ Heimsmet í gosdrykkjaneyslu Doktorspróf Í frétt um doktorspróf Gústavs Sig- urðssonar féllu út upplýsingar um að Gústav hefur frá árinu 2006 gegnt stöðu lektors í fjármálum við Whar- ton, viðskiptadeild Pennsylvaníuhá- skóla. „Ó, þú aftur …“ Í umfjöllun Morgunblaðsins um leik- hópinn Hugleik á fimmtudag var rangt farið með höfunda verksins „Ó, þú aftur ...“ Hið rétta er að leik- ritið er eftir leikskáldin Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Ósk- arsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. Nafn ljósmyndarans Nafn ljósmyndarans sem tók mynd- ina á bls. 8 í gær af bát Björg- unarfélags Akraness féll niður í blaðinu. Hilmar Sigvaldason tók myndina. LEIÐRÉTT BÆJARSTJÓRN Grundarfjarðar varar alvarlega við áformum rík- isstjórnarinnar um að fyrna afla- heimildir útgerða sem stefnir at- vinnuöryggi og velferð íbúa Grundafjarðar í mikla óvissu. „Nauðsynlegt er að skapa vinnufrið um sjávarútveg með því að ná sátt um stjórn fiskveiða. Allar breyt- ingar á fiskveiðistjórnun ber að gera með varúð og í fullu samráði við hagsmunaðila,“ segir í ályktun. Fleiri bæjarstjórnir á landsbyggð- inni hafa samþykkt sambærilegar ályktanir. Grundfirðingar vara við fyrningarleið AÐALFUNDUR Dvalarheimilis aldraða í Borgarnesi hefur sent frá sér tilkynningu þar sem því er fagnað að í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkana sé skýrt kveðið á um að staðið verði við framkvæmdaáætlun um ný hjúkr- unarheimili fyrir aldraða enda verkefnið hvað varðar endurbætur á DAB er orðið afar aðkallandi. Þörf á endurbótum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.