Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009 Ólafur Ragnar Grímssson, forsetiÍslands, hélt merkilega ræðu við setningu Alþingis í gær.     Forsetinn sagði þingmönnum aðpassa sig á umræðum um ESB.     Enn eru hér alþingismenn semkynntust því á yngri árum hvernig ágrein- ingur um tengslin við önnur ríki klauf þjóðina í herðar niður, sundraði sam- stöðu á örlaga- stundum,“ sagði forsetinn. „Allir vita að umræðan um aðild Íslands að Evrópusam- bandinu getur orðið, ef illa tekst til, efniviður í slík- an klofning og því þarf öll meðferð málsins að vera með þeim hætti að sem flestir verði sáttir.“     Ólafur Ragnar veit vel um hvaðhann er að tala.     Þessi kafli ræðunnar vísaði aug-ljóslega til deilnanna um aðild Íslands að NATO og veru banda- rísks varnarliðs á Íslandi.     Ólafur Ragnar Grímsson var á sín-um tíma sá stjórnmálamaður, sem bezt var treystandi til að ala á sundrungu og sá fræjum tortryggni í garð samstarfs Íslands við önnur vestræn lýðræðisríki.     Hann var sá, sem ævinlega raukupp til handa og fóta; sá síma- hleranir, kjarnorkuvopn og ýmis önnur samsæri í hverju horni og var ekki fáorður um þau í fjölmiðlum.     Ef fólk sem hefur andstæðar skoð-anir á Evrópumálum tekur upp baráttuaðferðir Ólafs Ragnars er lít- ill vafi á að deilurnar verða nánast óbærilegar. Ólafur Ragnar Grímsson Veit um hvað hann er að tala Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 12 léttskýjað Lúxemborg 12 skúrir Algarve 23 heiðskírt Bolungarvík 8 léttskýjað Brussel 15 skýjað Madríd 23 heiðskírt Akureyri 12 heiðskírt Dublin 13 skýjað Barcelona 18 léttskýjað Egilsstaðir 10 léttskýjað Glasgow 10 skúrir Mallorca 20 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 8 skýjað London 14 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Nuuk 3 heiðskírt París 14 skýjað Aþena 23 heiðskírt Þórshöfn 9 heiðskírt Amsterdam 14 skúrir Winnipeg 3 alskýjað Ósló 17 heiðskírt Hamborg 15 skýjað Montreal 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 13 heiðskírt Berlín 18 heiðskírt New York 20 skýjað Stokkhólmur 14 heiðskírt Vín 17 skýjað Chicago 17 alskýjað Helsinki 11 heiðskírt Moskva 10 þoka Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 16. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5.07 1,2 11.12 2,8 17.09 1,4 23.40 3,0 4:09 22:41 ÍSAFJÖRÐUR 0.26 1,7 7.06 0,6 12.56 1,4 18.52 0,7 3:47 23:12 SIGLUFJÖRÐUR 2.42 1,1 9.10 0,4 15.28 1,0 21.09 0,6 3:29 22:56 DJÚPIVOGUR 2.06 0,9 7.47 1,6 13.59 0,8 20.36 1,7 3:32 22:16 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á sunnudag og mánudag Norðaustanátt, víða 5-8 m/s. Sums staðar þokuloft við norð- ur- og austurströndina, en ann- ars bjart að mestu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast um landið vest- anvert. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag Hæg austlæg eða breytileg átt. Sums staðar þokuloft við ströndina, einkum austantil, en annars bjart að mestu. Áfram milt í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg eða breytileg átt 5-10 m/s. Þokuloft við austur- ströndina og sums staðar á an- nesjum norðanlands, en létt- skýjað víðast annars staðar. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast um landið suðvest- anvert. ÁRNI Páll Árnason félags- og tryggingamálaráð- herra gerði áhrif sparnaðar hjá opinberum stofn- unum á atvinnuleysistryggingarsjóð að umræðu- efni á ríkisstjórnarfundi í gær. Samþykkt var með lagabreytingu á síðasta ári að greiða mætti fólki hlutfallslegar atvinnuleys- isbætur þegar það missti starf sitt að hluta, m.a. til að stuðla að því að fyrirtæki og stofnanir gætu minnkað starfshlutfall fólks án þess að þurfa að segja því alfarið upp. Að sögn Árna Páls grípa mörg fyrirtæki til þessa ráðs í niðurskurði og það sé í sjálfu sér jákvætt sem liður í því að halda sem flestum á vinnumarkaði, svo fremi sem hófs sé gætt. „Ég vildi vekja athygli á því að þegar opinberar stofnanir grípa til þessa til að bregðast við rekstrarvanda, þá þarf að gæta að því að verið er að flytja til ríkisútgjöld. Þannig að ef gerð er sparnaðarkrafa á emb- ætti um ákveðnar fjárhæðir þá uppfyllir embættið ekki það sem fyrir það er lagt ef það nýtir sér alfarið þetta úrræði. Það er fyrirsjáanlegt að útgjöld atvinnu- leysistryggingarsjóðs aukist mjög mikið núna, hann fer örugglega í mínus og það mikinn mínus. Við verðum að gæta þess að blekkja okkur ekki með þeim aðgerðum sem farið er í og tryggja að raunverulegur sparnaður náist.“ Árni Páll lagði því til að þegar stofnanir gerðu tillögur um sparnað tilgreindu þær sérstaklega þegar aðgerðirnar fælu í sér fækkun starfa og/eða skert starfshlutfall til þess að unnt væri að meta raunsparnað í ríkisútgjöldum við þær aðgerðir. Tillagan var samþykkt á ríkisstjórnarfundi. Verðum að sjá heildarmyndina  Megum ekki blekkja okkur sjálf  Tilfærsla ríkisútgjalda ekki sparnaður í raun Árni Páll Árnason Eftir Ólaf Bernódusson Skagaströnd | Á næstunni verður undirritaður samstarfssamningur um stofnun rannsókna- og fræðaset- urs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra með aðsetur á Skagaströnd. Tilgangur hins nýja fræðaseturs er fyrst og fremst að efla starfsemi Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra með rannsóknum á sagn- fræði, einkum í munnlegri sögu. Ráðinn verður forstöðumaður að setrinu til að byrja með og hefur ný- lega verið auglýst eftir honum. Það eru Stofnun fræðasetra Há- skóla Íslands, Miðstöð munnlegrar sögu og Sveitarfélagið Skagaströnd sem eru aðilar að samstarfssamn- ingnum. Helsti tilgangur setursins er að vera rannsóknarstöð um sagn- fræði og samtímasögu á Norður- landi vestra, vera starfsvettvangur fræðimanna á þessu sviði, örva ný- breytni í menningar- og fræðastarfi á svæðinu og stuðla að háskóla- kennslu á Norðurlandi vestra í sam- starfi við aðrar menntastofnanir. Hlutir þeirra þriggja aðila sem að samstarfssamningnum standa eru þannig að Háskóli Íslands mun reka setrið, Miðstöð um munnlega sögu leggur til sérþekkingu og gögn ásamt faglegri aðstoð við undirbún- ing og framkvæmd verkefna. Sveit- arfélagið Skagaströnd leggur síðan fram fjárhagslegan stuðning til nið- urgreiðslu húsnæðis- og stofnkostn- aðar. Samstarfssamningurinn nú er til þriggja ára en vilji hlutaðeigandi stendur til að hann verði fram- lengdur þegar þar að kemur. Heimamenn á Skagaströnd eru afar ánægðir með hinn nýja samn- ing og binda miklar vonir við að hann muni efla rannsóknir á menn- ingu og sögu svæðisins auk þess að skapa ný tækifæri á sviði háskóla- náms. Á Skagaströnd eru nú þegar starfandi Nes listamiðstöð og Menningarfélagið Spákonuarfur, sem vinnur að rannsóknum og varð- veislu gamalla sagna og spádóma. Auk þess er á staðnum rannsókna- og líftæknifyrirtækið BioPol sem stundar ýmsar rannsóknir á lífríki sjávarins. Þannig er að byggjast upp á Skagaströnd víðtækt þekk- ingarnet sem mun styrkjast veru- lega með tilkomu hins nýja rann- sókna- og fræðaseurs. Fræðasetur Háskóla Íslands á Skagaströnd Í HNOTSKURN » Tilgangur fræðasetursinser fyrst og fremst að efla starfsemi Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra með rann- sóknum á sagnfræði, einkum í munnlegri sögu. » Sveitarfélagið leggurfram fjármuni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.