Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 22
22 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is TUGIR þúsunda manna flúðu frá stærstu borg- inni í Swat-dal í Pakistan í gær þegar her landsins aflétti útgöngubanni til að gera íbúunum kleift að forða sér þaðan vegna harðra átaka. Hundruð þúsunda manna hafa reynt að flýja af átakasvæðinu í Swat-dal síðan herinn hóf mikla sókn gegn talibönum undir lok síðasta mánaðar. Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær að tæp milljón manna hefði flúið af svæðinu á síðustu tveimur vikum. Áður höfðu yfir 550.000 manns flúið af átakasvæðum í norðvestanverðu Flóttamannahjálp SÞ hefur komið upp í grennd við borgina Mardan. „Ástandið er mjög, mjög slæmt,“ hafði fréttastofan AFP eftir einum flótta- mannanna sem flúðu frá þorpi nálægt Mingora í gær. „Það var ráðist á búðina mína og hún var lögð í rúst. Ég sá þrjú börn deyja í sprengjuárás.“ „Fjórir í fjölskyldunni minni dóu í sprengju- árás,“ sagði annar flóttamaður. „Herinn gerði árásina. Við höfum verið í helvíti síðustu tvær vik- urnar.“ Herinn segist hafa umkringt stærstu borgina, Mingora, sem er á valdi talibana. Um 200.000 manns voru í borginni áður en útgöngubanninu var aflétt. Í HNOTSKURN » Her Pakistans segir aðallt að 15.000 hermenn berjist við um 4.000 vopnaða talibana í Swat-dal. » Herinn segir að yfir 900talibanar og 42 hermenn liggi í valnum eftir hörð átök í Swat og nálægum héruðum. »Ekki er vitað hversumargir óbreyttir borgarar hafa beðið bana. Tæp milljón manna flúði ófriðinn  Ástandinu á átakasvæði í Pakistan lýst sem mesta flóttamannavanda í landinu frá blóðsúthellingunum árið 1947  Mikill skortur á matvælum og lífsnauðsynjum landinu frá því í ágúst. Alls hafa því um 1,5 milljónir Pak- istana flúið heimkynni sín á síð- ustu níu mánuðum. Forsætisráðherra Pakist- ans, Yousuf Raza Gilani, hefur lýst ástandinu sem mesta flóttamannavanda í landinu frá blóðsúthellingunum árið 1947 þegar Indland og Pakistan fengu sjálfstæði og skiptust í tvö ríki. Mikill skortur er á matvælum og öðrum lífsnauðsynjum á svæðinu. Um 80.000 flóttamannanna dvelja í búðum sem Stúlkur í flótta- mannabúðum. ANGELA Merkel, kanslari Þýskalands, með leikurum sem leika rómverska hermenn á sýningu í Varus- schlacht-safninu í Kalkriese í Þýskalandi. Á sýningunni er fjallað um orrustu milli Kerúska, germansks þjóðflokks, og rómverskra hermanna undir stjórn Varusar herforingja í Tevtóborgarskógi árið 9 eftir Krist. Sýningin verður opnuð almenningi í dag og hún stendur til 25. október. AP Merkel með rómverskum hermönnum Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is EFNAHAGSSAMDRÁTTURINN á evrusvæðinu nam 2,5% á fyrsta fjórðungi ársins og var mun meiri en hagfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Nokkrir fjármálasérfræðingar spáðu því þó í gær að það versta væri nú afstaðið og forstjóri Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins, Dominique Strauss-Kahn, sagði að vænta mætti umskipta í efnahagsmálum fyrir lok ársins. „Við spáum efnahagsbata á fyrsta fjórðungi næsta árs og að umskiptin hefjist í október, nóvember eða des- ember,“ sagði Strauss-Kahn. Á einu ári minnkaði lands- framleiðslan á evrusvæðinu um 4,6% og er það mesti samdráttur sem mælst hefur þar frá því að mæling- arnar hófust árið 1995. Efnahags- lægðin í 16 löndum evrusvæðisins er því mun dýpri en í Bandaríkjunum þar sem samdrátturinn mældist 1,6% á fyrsta fjórðungi ársins og 2,6% á einu ári. Verg landsframleiðsla Þýska- lands, stærsta hagkerfisins á evru- svæðinu, minnkaði um 3,8% á fyrsta fjórðungi ársins og 6,9% á einu ári. „Þetta eru mjög slæmar fréttir og samdrátturinn sýnir hversu háður þýski efnahagurinn er viðskiptum við útlönd,“ sagði þýski hagfræðing- urinn Costa Brunner. „Góðu frétt- irnar eru þær að það versta er af- staðið.“ Á Ítalíu nam samdrátturinn 2,4% á fyrsta ársfjórðungnum og 5,9% á einu ári. Samdráttarskeið er einnig hafið í Frakklandi þar sem fram- leiðslan minnkaði um 1,2% á fyrstu þremur mánuðum ársins og hefur nú dregist saman tvo ársfjórðunga í röð. Dýpri lægð á evru- svæðinu en spáð var Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir efnahagslegum umskiptum fyrir lok ársins og efnahagsbata á fyrsta fjórðungi næsta árs Dominique Strauss-Kahn, forstjóri AGS. Estudio R. Carrera fyrir KAPPSIGLING Á 200 ÁRA AFMÆLI Heimildir: www.velasudamerica2010.com. www.armada.cl, www.ara.mil.ar Seglskip á borð við brigantínur, freigátur , korvettur og skonnortur, jafnt herskip sem borgaraleg, taka þátt í kappsiglingunni meðfram ströndum Suður-Ameríku frá Brasilíu til Mexíkó, m.a. framhjá Hornhöfða og með viðkomu á sögulegum stöðum LEIÐ Veracruz La Guayra Cartagena de Indias Rio de Janeiro Hornhöfði Montevideo Buenos Aires Mar del Plata Ushuaia Guayaquil El Callao Valparaiso Talcahuano Punta Arenas SUÐUR- ATLANTSHAF ATLANTSHAF KYRRAHAF Sjóherir Chile og Argentínu hafa skipulagt umfangsmikla kappsiglingu stórra seglskipa sem hefst í Rio de Janeiro í febrúar á næsta ári í tilefni af því að þá verða 200 ár liðin frá því að löndin tvö fengu sjálfstæði. SUÐUR-AMERÍKA Ekvador SKIP SEM TAKA ÞÁTT Í SIGLINGUNNI* „Juan Sebastian Elcano” brigantína SPÁNI „Gloria” brigantína KÓLUMBÍA „Cisne Branco” hásiglt skip BRASILÍU „Eagle” barkur (þrísiglt skip) BANDARÍKJUNUM „Capitán Miranda” skonnorta ÚRÚGVÆ „Cuauhtemoc” barkur, MEXÍKÓ „Guayas” barkur EKVADOR „Simon Bolivar” barkur VENESÚELA „Tarangini” barkur INDLAND „Tunas Samudera” brigantína MALASÍU „Libertad” freigáta ARGENTÍNU „Esmeralda” freigáta CHILE * Nokkur skip frá 24 löndum sem boðið hefur verið að taka þátt í siglingunni London. AFP. | Shahid Malik sagði af sér embætti aðstoðardómsmálaráð- herra í Bretlandi í gær eftir að hann dróst inn í fríðindahneykslið svo- nefnda þar í landi. Rannsakað verð- ur hvort Malik telst hafa brotið siða- reglur ráðherra sem m.a. kveða á um að þeir megi ekki nýta sér stöðu sína í ábataskyni. Breska blaðið Daily Telegraph hefur að undanförnu birt upplýsing- ar um fríðindi og kostnaðargreiðslur breskra þingmanna. Blaðið segir að Malik hafi leigt hús í kjördæmi sínu í Vestur-Yorkshire og borgað leigu langt undir markaðsverði. Húseig- andinn hafi hlotið dóm fyrir að leigja út óíbúðar- hæft húsnæði. Malik kvaðst ekki hafa brotið neinar reglur en víkja meðan rannsókn færi fram á störfum hans. Malik var kjör- inn á þingið árið 2005. Hann hefur síðan innheimt hámarksgreiðslur frá þinginu fyrir að halda tvö heimili, samtals 66.827 pund á þremur árum. Breskur aðstoðar- ráðherra víkur Shahid Malik. Efnahagssamdrátturinn í löndum Evrópusambandsins verður um 4% í ár og rúmlega helmingi meiri en spáð var í byrjun ársins, ef marka má nýjustu spá fram- kvæmdastjórnar ESB. Framkvæmdastjórnin segir að ekki sé útlit fyrir efnahagsbata í ESB-löndunum fyrr en á síðari helmingi næsta árs. Hún spáir því einnig að atvinnuleysið í ESB- löndunum 27 verði um 10,9% á næsta ári. Atvinnuleysið verði ívið meira í evrulöndunum sextán, eða um 11,5%. Í spá framkvæmdastjórnarinnar er gert er ráð fyrir því að verg landsframleiðsla í Þýskalandi minnki um 5,4% á árinu og í Bret- landi um 3,8%. Útlit er fyrir miklu meiri sam- drátt á Írlandi þar sem mikill hag- vöxtur hefur verið á síðustu árum. Framkvæmdastjórnin spáir 9% samdrætti á Írlandi og 13,1% í Lettlandi. Spáir 4% samdrætti í ESB-löndum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.