Íslenzk tunga - 01.01.1961, Blaðsíða 11
OAKV. FORN. NOKKUR, NOKKUÐ
9
eftirmyndun eða eins konar þýðingu á latnesku orðasamböndunum
ne-scio quis, nescio quid. Ekki virðist þó nein knýjandi nauðsyn til
að álíta, að uppruni þessa fornafns í norrænu sé annar en í vestur-
germönsku málunum, þ. e. að persónuforn. ek hafi fylgt sögninni í
þessum samböndum í norrænu. Aðalástæðan til að álíta, að svo hafi
verið, virðist vera -kk- í nokkur, sem til væri orðið við tillíkingu
k-sins í *ek og samhljóðanna í *wait og *luvarjaR, *hwata. Ekkert
er því hins vegar til fyrirstöðu, að -kk- sé orðið til einungis við til-
likingu -t (í *wait) og hw- (í *hwarjaR, *hwata), þ. e. úr lokhljóðs-
þættinum í -t og gómkveðna þættinum í hw-. Upprunalegu myndirnar
hafa því verið *ni-wait-hwarjaR, *ni-wait-hwata, eins og í vestur-
germönsku.9
II
í elztu íslenzkum heimildum ber beyging þessa fornafns enn greini-
leg merki þess, að það er samsett af fornöfnunum huerr, huat. 1
elztu handritum er beyging þess að jafnaði svo sem sýnt er í töflu
I og II. Langstærst elztu handritanna eru Sthm 15, 4° (Hómilíu-
bókin) og AM 677, 4°, B (Prédikanir og samræður Gregors páfa),
og eru þetta einu handritin, sem hafa að geyma flestar beygingar-
myndir orðsins á elzta tímahilinu. í öðrum handritum frá þessu
tímabili koma aðeins fyrir einstakar myndir. Tafla I sýnir algeng-
ustu beygingu þess fornafnsins, sem myndað er af huerr, og helzlu
afbrigði hennar, en í töflu II er sýnd hvk.-beygingin, sem mynduð er
Skáldshaparmála.qvœtSi Snorra-Eddu (Uppsala 1859), 59—60. Sjá einnig S.
Bugge, „Etymologisk forklaring af nogle pronominer i Nordisk,“ Tidskrijt jor
Philologi og Pœdagogik, IX 0870), 122—129, þar sem og eru rakin höfuðatriði
í beygingarsögu þessara fornafna.
0 Þetta var og skoðnn Bugges („Etymologisk forklaring,“ 125). J. Hoffory
mun hins vegar upphafsmaður þeirrar skýringar, að 1. pers. forn. ek hafi upp-
haflega verið hér („Ritdómur um L. F. A. Wimmer, Oldnordisk lœsebog (2.
útg.; Kpbenhavn 1877),“ Nordisk Tidskrift for Filologi. N. R., III (1877—78),
296—297.