Íslenzk tunga - 01.01.1961, Blaðsíða 163
Annáll
FÉLAG ÍSLENZKRA FRÆÐA
STJÓKN félagsins skipa nú (frá marz 1962): Finnbogi Guðmunds-
son formaður, Óskar Halldórsson ritari og Jón Aðalsteinn Jóns-
son gjaldkeri. Starfsemin á árinu 1961 var nokkru fjölbreyttari en
áður.
Á 150 ára afmæli Jóns Sigurðssonar héldu félagið og Þjóðminja-
safn íslands sýningu í bogasal Þjóðminjasafnsins til að kynna braut-
ryðjandastarf hans í þágu íslenzkra fræða. Safnverðirnir Gísli Gests-
son og Halldór J. Jónsson unnu að uppsetningu sýningarinnar af
hálfu Þjóðminjasafns, en Þórhallur Vilmundarson prófessor var
hægri hönd stjórnarinnar af hálfu félagsins. Landsbókasafn og Há-
skólabókasafn lánuðu bækur og handrit. Á sýningunni voru eigin-
handarrit Jóns frá ýmsum æviskeiðum hans, sýnishorn af handrita-
safni hans, ýmsar útgáfur sem hann annaðist sjálfur, hratt af stað
eða slóð að með öðrum hætti, svo og nokkrir persónulegir munir, í
ellefu sýningarskápum samtals.
Opnunarathöfnin hófst kl. 5 föstudaginn 16. júní. Viðstaddir voru
margir boðsgestir, meðal annarra forseti íslands og kona hans, ráð-
herrar og fulltrúar erlendra ríkja. Formaður félagsins bauð gesti vel-
komna, en menntamálaráðherra dr. Gylfi Þ. Gíslason opnaði sýning-
una. Síðan var hún opin dag hvern kl. 14—22. Upphaflega var ætlun-
in sú að henni yrði lokið 25. júní, en sökum mjög góðrar aðsóknar
var hún framlengd um viku. Taldir sýningargestir voru 4274, og mun
þó nokkuð skorta á rétta tíund. Börn voru ekki talin með. Mest var
aðsóknin síðasta daginn, sunnudaginn 2. júní, eða 997. Aðgangur
að sýningunni var ókeypis, en menntamálaráðuneytið greiddi allan
kostnað við hana.
Félagið hefur verið aðili að Bandalagi háskólamanna frá stofnun