Læknablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 48
42
LÆIÍNABLAÐIÐ
■I
andi bólgu í vinstra lunga. Rönt-
genmynd tekin 15. sept., daginn
áður en stúlkan var útskrifuð,
reyndist alveg eðlileg.
3.
S. Þ. 12 ára stúlka kom í
barnadeild Landsspítalans 9/12
1958.
Hún segir svo frá, að í byrjun
júní liafi hún verið að róla sér
og um leið að bryðja sveskju-
stein. Hafi þá eitt brotið brokk-
ið ofan í liana, svo henni liafi
legið við köfnun. Hún jafnaði
sig fljótt og virtist þetta engin
áhrif hafa haft á hana þá.
Tveim mán. seinna, í byrjun
ágúst, fékk hún lungnabólgu
vinstra megin, sem hatnaði á
nokkrum dögum með lyfjum.
Var á fótum í hálfan mánuð,
en fékk þá brjósthimnubólgu
vinstra megin og var lögð i spít-
alann á Patreksfirði, en þar
hafði hún verið síðan 1. júní við
barnavörzlu.
1 byrjun september var hún
svo flutt hingað suður og lá
heima í 2 mánuði. Fyrsta nóv-
ember byrjaði liún í skólanum,
en var þar aðeins í liálfan mán-
uð — fvlltist þá aftur af kvefi
— og fékk þurran hósta og
hryglu, sem lnin liafði stöðugt
þar til liún kom í spítalann 9.
des. Samfara þessu var allmikil
mæði, sérlega við áreynslu, en
litarháttur var alltaf eðlilegur.
Við hlustun á lungum heyrð-
ist hvæsandi hronchial öndun
vinstra megin. Röntgenmynd af
lungum var eðlileg og enginn
aðskotahlutur sjáanlegur. Þar
sem grunur var um, að hluti af
sveskjusteini liefði hrokkið of-
an í lunga stúlkunnar, var á-
kveðið að bronchoscopera liana.
Kom þá i lj ós neðarlega í vinstri
lungnapípu corpus alienum. Það
var dregið upp og reyndist vera
hálfur sveskjusteinn. (M. III).
Mynd III.