Læknablaðið - 01.08.1959, Síða 59
L Æ K N A B L A Ð IÐ
53
ekki liöfðu læknazt nieð venju-
legri aðferðum. Um árangur er
enn of snemmt að segja, en allt
bendir til að hann sé góður, ekki
sízt ef haft er í huga, að hér var
um erfið, ef ekki vonlítil af-
hrigði að ræða.
C.
Aðgerðir á sjáaldri, cornea
transplantation, eru aðgerðir,
sem oft er getið um í dagblöðum
vegna þess gildis, sem í þeim
felst til æsikenndra fregna. —
Hlutur af líki er notaður í lif-
andi mann. Athvglisþurfandi
menn gefa úr sér augun löngu
fyrir andlátið, glæpamenn iðrast
og bæta ráð sitt með sama hætti.
Þessi óskadraumur að setja ný
augu í stað blindra, er sjálfsagt
jafngamall læknisfræðinni. Ár-
ið 1824 reyndi Reisinger cornea
úr dýrum, i þeim tilgangi að
græða hana í manns auga. En
jíað var ekki fyrr en um alda-
mótin síðustu, að reynt var að
flytja cornea frá manni til
manns. Zirm skýrir frá fyrstu
lieppnuðu aðgerðinni á þessu
sviði 1906. Á undan höfðu geng-
ið alls konar tilraunir með gler
og önnur efni, en engin þeirra
var líkleg til árangurs, þó tókst
Zalse að koma fyrir gler-cornea,
sem hélst í auganu í 33 mánuði.
Svij)að tókst Verhoef 1930.
Cornea transplantationum má
skipta í 2 flokka, yfirhorðs að-
gerðir, þar sem ekki þarf að
taka nema efstu lög sjáaldurs
hurtu og síðan fella heilhrigðan
vef í staðinn, og djúpaðgerðir,
þar sem sjáaldrið er skorið
hurtu í fullri þykkt. Sú síðari
þessara tveggja aðferða er al-
gengari og árangursríkari. Síðan
Zirm gerði sína fyrstu heppn-
uðu aðgerð hefir tækni á þessu
sviði tekið miklum framförum.
Hagleg verkfæri og hugvitsam-
leg auðvelda mjög aðgerðina og
auka öryggi og árangur. Auk-
izt hefir þekking á möguleikum
til árangurs í sambandi við á-
standið í sjúka sjáaklrinu, j)ýð-
ingu æðainnvaxtar í cornea og
heitingu gamma geisla til að
draga úr æðavexti. Þekking á
því hve mikill hluti cornea má
vera ógagnsær (ekki meir en
helmingur, ef horfur eiga að
teljast sæmilegar), hefir bætt
batahorfur þessara sjúldinga
mjög. Eftirfarandi tafla sýnir
]>etta vel- Árangurinn er miðað-
ur við að hin aðflutta cornea
haldist gagnsæ.
1930 Ellschnig 23%
1937 Filatov 14.6%
1937 Thomas 13.9%
1947 Owens 36.5%
1949 Stansbury 26.7%
1950 Roberts 55.0%
1955 Paton 64.5%
Þrátt fyrir þennan sýnilega
árangur, er ennþá mikill áhugi
fyrir að reyna að græða plast
inn í cornea á manni. Árangurs-
laust hefir reynzt að ætla sér að
græða plast á sama hátt og
cornea úr manni. Dýratilraunir