Læknablaðið - 01.08.1959, Qupperneq 63
LÆKNABLAÐIÐ
57
lingar mcð dánartölu 20 eða
1.1 %. Heildartalan á árum 1903
til 31/12 1946 verður þá þessi:
1598 sjúklingar skornir í kasti,
með dánartölu 42 eða 2.62% og
2707 sjúklingar skornir milli
kasla, mcð dánartölu 6 eða
0.22%. Þelta gerir samanlagt
4305 botnlangaskurði með dán-
artölu 48 eða 1.1%.
Matthías Einarsson liefir alls
þrisvar sinnum gefið yfirlit yfir
botnlangaskurði gerða af hon-
um. Fyrsta vfirlitið er fvrir ár-
in 1908—1929 samtals 800 botn-
langaskurðir, með dánartölu 15
eða 1.87%. A sama tíma gerðu
aðrir læknar í St. Jósefsspítala
692 botnlangaskurði, með dán-
artölu 8 eða 1.15%. Þetta verð-
ur í lieild á þessum árum 1492
botnlangaskurðir, með dánar-
tölu 23 eða 1.54%. Næst er vfir-
lit yfir árin 1929—1937 sam-
lals 800 botnlangaskurðir Matt-
bíasar Einarssonar með dán-
artölu 8 eða 1%. Aðrir læknar
gerðu á sama tíma 438 botn-
langaskurði, með dánartölu 9
eða 2.05%. Þetta gerir heildar-
töluna á þessu tímabili 1238
botnlangaskurði með dánartölu
17 eða 1.37%.
Loks er áðurnefnt yfirlit fyrir
árin 1937 til ársloka 1946 sam-
tals 908 botnlangaskurðir Matt-
híasar Einarssonar, með dán-
artölu 5 eða 0.55%. Aðrir lækn-
ar gerðu á þessu tímabili 667
botnlangaskurði, með dánartölu
3 eða 0.45%.Heildartala þessara
ára verður þá 1575 botnlanga-
skurðir, með dánartölu 8 eða
0.51%. Þetta gerir eins og áður
segir 4305 botnlangaskurði frá
1903—31/12 1946 með dánar-
tölu 48 eða 1.1%.
Ilið athyglisverðasta við töflu
I er, að sjúklingar skornir í
kasti, eru aðeins tæp 28%. Matt-
bías Einarsson sker á sama
tíma 43% sjúklinga í kasti.
Fyrsti botnlangasj úklingur-
inn, sem skorinn er í St. Jós-
efsspitala, er skorinn 1903 í
kasti og deyr á 3ja degi. Næsti
sjúklingur, sem skorinn er í
kasti, af öðrum lækni heldur
en Mattliíasi Einarssyni, er skor-
inn árið 1917. Á þessum tíma
liöfðu þó verið gerðir, af sömu
læknum, 52 botnlangaskurðir
milli kasta.
Þetta skýrir dálítið liversu
tala aðgerðanna í kasti er lág
í töflu nr. I.
Ef tafla nr. I er athuguð með
tilliti til aldurs sjúkl. og kyns,
þá sést, að flestir veikjast á
aldrinum 10—40 ára, og mun
fleiri karlar en konur fá sprung-
inn botnlanga (79:21). Hinsveg-
ar eru töluvert fleiri konur
skornar milli kasta, heldur en
karlar (65:35).
Hinir látnu eru 16 karlmenn
og 4 konur. Ekki er unnt að
greina nánar um sjúkdómsgang
þeirra, þar eð upplýsingar vant-
ar um flesta.