Læknablaðið - 01.08.1959, Qupperneq 69
LÆIÍNABLAÐIÐ
63
lingurinn 25/8 ’52. Sectio ekki
gerð. Veikindatími 36 stundir.
6. H. H. 2ja ára telpa. Kemur í
spítalann 10/9 1952. Hafði veikzt
7/9 skyndilega með verki um allt
kviðarhol. Héldust verkir allan
nœsta dag með uppköstum, hiti
38,7°. Líðanin ekki slæm við
komu í spítalann, en versnaði, er
leið á daginn. Hiti 38° og de-
fence og eymsli um allan kvið.
Skorin í chloroform-ether nar-
cosis. Eftir nokkra leit finnst
botnlanginn vaxinn við colon
trans. og liggjandi upp við hægri
kurvatur. Botnlanginn er tekinn
og fær sjúkl. blóðgjöf og salt-
vatn við aðgerðina. í fyrstu virt-
ist allt ganga eðlilega, en næsta
dag var ástand þegar slæmt, púls
lítill og óreglulegur. Fékk stim-
úlans og súrefni etc., en lézt að
morgni 12/9. Sectio ekki gerð.
Veikindatimi 4 dagar.
7. J. T. 51 árs kona, kemur í spít-
alann 11/10 1952 mikið veik.
Hafði veikzt 2—3 dögum áður
með magaverki og uppköst. Kom
utan af landi. Við komuna var
defence yfir allt kviðarholið,
mest hægra megin. Hiti 39°, púls
120. Skorin þegar í stað. Botn-
langinn var sprunginn og mikill
gröftur neðan til í kviðarholi.
Botnlanginn var tekinn, lagður
inn keri. Sjúkl. var meðvitund-
arlaus eftir aðgerðina og lézt
næsta dag. Sectio ekki gerð. Veik-
indatími 2—3 dagar.
8. K. S. Þ. 47 ára karlmaður. Kom
í spítalann 4/9 ’54. Veiktist 1.
sept. með magaverki og uppköst.
Hafði verið undir vínáhrifum
nóttina á undan og taldi upp-
köstin stafa af því, enda hættu
þau bráðlega. Verkir héldust og
urðu brátt staðbundnir hægra
megin neðarlega í kvið. Hiti 38°.
Við komu var sjúkl. töluvert
veikur og leit ekki vel út. Hiti
38,3°, púls 116. Blóðþrýstingur
160/110. Hjartatónar ekki hrein-
ir. Sjúkl. er þegar í stað skor-
inn i nov.-adr. + evipannarc. 1
kviðarholi er seropurulent vökvi
og botnlanginn sprunginn. Við
aðgerðina féll blóðþrýstingur
töluvert (100/90) og fékk sjúk-
lingur macrodex, meðan á aðgerð
stóð. Botnlanginn er tekinn og
sárinu lokað með kera inn að
peritoneum. Siðan fékk sjúkl.
blóðgjöf (500 ccm). Næstu daga
var liðan eðlileg, hiti lækkaði í
37,5°, vindar gengu niður, en
púlsinn var hraður (150—160).
14/9 versnaði sjúkl. snögglega,
púlsinn varð lélegur og óreglu-
legur, hiti upp i 40°. Sjúkl. lézt
næsta dag, þrátt fyrir stimulans.
Sectio ekki gerð. Veikindatími
3—4 dagar.
9. St. A. 51 árs karlmaður. Kom
inn i spítalann 3/12 1955. Hafði
veikzt kvöldið áður með verki
í kviðarholi, einkum hægra meg-
in, engin uppköst. Við komu
mikil eymsli hægra megin í kvið,
með defence. Sjúkl. er þegar í
stað skorinn í nov.-adr. deyfingu
+ N2O. ether narcosis. Sjúkl. var
feiturog erfittað komastað botn-
langanum, sem reyndist vera
sprunginn og lá saurköggull við
hann. Botnlanginn er tekinn og
sárinu lokað með kera inn að
peritoneum. Penicillin og strepto-
mycin sett inn í peritoneum.
Fyrstu tvo sólarhringana var allt
eðlilegt, en á 3ja degi kom fram
gula á sjúklingnum og blóð-
urea reyndist 89. — Hiti hækk-
aði og þarmalömun kom fram,
þó komu hægðir í tvo daga.
Sjúkl. fékk saltvatn og glucose
í æð og stóra skammta af anti-
biotica, en hiti hélzt hár, 40°.
Síðasta sólarhringinn var hann