Læknablaðið - 01.08.1959, Page 70
64
LÆKNABLAÐIÐ
með toniska krampa og lézt
13/12 að morgni. Sectio ekki
gerð. Veikindatími 12 stundir.
Ef athuguð er þessi skýrsla
um liina látnu, þá sést, að þeir
liafa yfirleitt komið mjög seint
lil aðgerða. Skemmsti veikinda-
timinn er 12 stundir og sá
lengsti ca. 120 stundir. Meðal-
veikindatími þessara 9 sjúklinga
verður ca. 60 stundir.
Ég vil að síðustu taka það
fram, að grein þessari var aðeins
ætlað það lilutverk, að bæta við
það yfirlit, sem Malthías Einars-
son, yfirlæknir, hefur gefið um
botnlangaskurði sína, í St. Jós-
efsspítalanum í Reykjavík.Þetta
hef ég reynt að gera. — Ég hef
síðan felll þetta við skýrslur
Matthíasar og á þann hátt feng-
ið það heildaryfirlit, sem í grein-
inni felst.
Heildartölurnar eru eklci stór-
ar, á alþjóðavísu, en þær ná yfir
55 ár, og er það nokkuð langur
tími. Það gefur þeim töluverða
þýðingu, bæði sögulega og lækn-
isfræðilega. Ef tími minn hefði
verið rúmur, þá hefði ef til vill
mátt draga fleiri ályktanir af
þessu efni. En því verður ekki
komið við að sinni.