Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.02.1964, Blaðsíða 75
eða ná að minnsta kosti ekki út á jaðarinn. Norski grasafræðingurinn
Lynge telur þessa tegund allalgenga á íslandi og hefur safnað allmörg-
um eintökum, en sjálfur lief ég ekki fundið hana nema á fáum stöð-
um. Annars eru mörkin á milli þessara tveggja síðastnefndu tegunda
óglögg (sbr. Dahl 1950).
Peltigera scutata (Dicks.) Duby.
Meðalstór skóf, með sléttu elra borði, gráu að lit. Neðra borð er
með grönnum æðurn. Rendurnar eru hrokknar með útbrotum. Fund-
in aðeins á þrem stöðum á landinu: Akrafjall og Reistarárskarð (Lynge)
og í Almannagjá (Ól. Dav.).
Nephroma exjiallidum Nyl.
Þessi skóf er samanborið við Peltigera mjög þunn, og algerlega slétt
og æðalaus á neðra borði, rætlingalaus. F.fra borðið er matt, grátt eða
brúnt á litinn í þurrki, oft ofurlítið mislitt. í vætu verður hún fagur-
græn. Askhirzlur oftast engar. Fundin víða á Norðurlandi frá Eyjafirði
og austur á Fljótsdalshérað. í Eyjafirði að minnsta kosti er hún allal-
geng. Annars aðeins fundin í Esju (Lynge).
Hinar fjórar tegundirnar af Nephroma-ættkvíslinni eru allar sjald-
gæfar, aðeins fundnar á örfáum stöðum. Sjálfur hef ég ekki séð þær og
lýsi þeim því ekki nánar að sinni, en vísa til greiningarlykilsins.
Solorina bispora Nyl.
Ætíð með dökkbrúnum askhirzlum, sokknum niður í miðja skóf-
ina, sem myndar svo sem 1—5 mm breiðan, grænan kraga í kring um
hverja askhirzlu. Gróin eru mjög stór, 80—100 mý að lengd, tvíhólfa,
aðeins tvö í hverjum ask. Algeng bæði á fjöllum og á láglendi.
Solorina saccata (L.) Ach.
Mun stærri skóf en síðastnefnd tegund, oft nokkrir cm í þvermál.
Gróin eru minni en á S. bispora, aðeins 30—50 mý að lengd og 4 gró í
hverjum ask. Þessi tegund er töluvert sjaldgæfari, en er fundin liér og
hvar um landið á láglendi.
tímarit um íslenzka grasafræði - Flóra 73