Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.02.1964, Síða 85
HELGI JÓNASSON:
FRÁ VESTFJÖRÐUM
Árið 1956 sendi ég Náttúrufræðingnum stutta grein, er ég nefndi
„Að vestan“. Grein þessi var um nýja fundarstaði nokkurra plantna á
Vestfjörðum. Átti hún að vera uppfylling og viðbót við Flóru Vest-
fjarða eftir Steindór Steindórsson í bók hans Vestfirðir I, Gróður, er
útkom 1946.
Af einhverjum ástæðum felldi ritstjórn Náttúrufræðingsins meiri-
ltluta greinarinnar niður, án míns leyfis, en þannig meðfarin missti
hún aðaltilgang sinn, að vera heimild um útbreiðslu sjaldgæfra teg-
unda á þessu tiltekna svæði. Útdráttur þessi birtist í Náttúrufræðingn-
um, 1956, bls. 138-139.
Síðan greinin ,,Að vestan“ var skrifuð hefi ég farið víða um Vest-
firði og kynnst betur gróðurfari þar, og útbreiðslu tegundanna.
Hér á eftir fara þær upplýsingar, sem ég get látið í té um það efni.
Tek ég nú með þær tegundir, sem áður er getið í nefndri grein í Nátt-
úrufræðingnum.
Þess má láta getið, að lokum, að ég hefi á árunum 1947—1964 ferðast
um öll byggðalög Vestfjarða til gróðurathugana, allt frá Hrútafirði
suður á Barðaströnd, að undanteknum nyrzta hluta Hornstranda og
Jökulfjörðum.
Að sjálfsögðu er hér þó ekki um tæmandi rannsókn að ræða, á gróð-
urríki þessa landshluta. Stendur það vonandi til bóta í framtíðinni.
í eftirfarandi lista eru tegundir jrær, sem ekki eru í flóru Steindórs
merktar með stjörnu, og eru því nýjar fyrir Vestfirði. Röð tegundanna.
er að öðru leyti hin sama og í flóru Steindórs.
Lensutungljurt, Botrychiura lanceolatum. — Framnes í Dýrafirði. Kaklalón.
Mánajurt, B. boreale. — Reykjarfjörður syðri. Ingólfsfjörður. Kaltlalón.
Liðfætla, Woodsia ilvensis. — Gerðhamrar í Dýrafirði. Æðey, á n. st. í klettum.
Stóriburkni, Dryopteris filix mas. — Tyrðilmýri og Grímshamrakleyf á Snæfjallaströnd.
Tvfhllðaskógur á Kaldbaksdal. Hnífsdalur.
Köldugras, Polypodium vulgare. — Geirseyri. Gerðhamrar og Gjarðir í Dýrafirði.
6*
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓTO 83