Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.02.1964, Blaðsíða 107
28. Callitriche hermafroditica, haustbrúða. — Reykir á Reykjaströnd, Skagf. 1962.
29. Chamaenerion latifolium, eyrarrós. — A Þórðarstöðum í Fnjóskadal fann ég allmarg-
ar plöntnr með niiklu smærri blómum en vcnja er til. Lengd krónublaða 10—15 mm,
og breidd 3—5 mm. Ef til vill er hér um sérstakt afbrigði að ræða.
20. Oxycoccus microcarpus, mýraberjalyng. — Jafnaskarð, Mýr. 1961.
21. Diapensia lapponica, fjallabrúða. — Reykir á Reykjaströnd, Skagf. 1962. Reistará,
Eyf. 1963.
22. Utricularia ininor, blöðrujurt. — Laxfoss, Mýr. 1961.
22. Galium brevipes, þrenningarmaðra. — Bolungarvík, N.-ísf. 1959. Vegamót, Snæf. 1960.
24. Campanula rotundifolia, bláklukka. — Húsafell, Borgf. 1956.
Nýir og sjaldgcefir slœd'ingar.
1. Anthemis arvensis, akurgæsajurt. — Kalmanstunga, Mýr. 1956.
2. Artemisia vulgaris, malurt. — Akureyri 1961.
* 2. Calamagrostis canadensis. — Skógræktarstöðin Tumastöðum, Rang. 1961. Nýr.
* 4. Hordeum nodosum. — Haukadalur, skógræktarst. Am. 1961. Nýr.
.5. Lamium album, ljósatvítönn. — Sauðárkrókur 1962. Virðist breiðast ört út og er
sennilega fyllilega ílend víða um land.
6. Melandrium noctiflorum, rökkurstjarna. — Akureyri 1959.
* 7. Mentlia spicata, axmynta. — Vestmannaeyjar 1960. Nýr.
8. Rorippa silvestris. — Tegund þessi virðist breiðast út með skógræktarstöðvunum. Eg
hefi fundið hana bæði á Tumastöðum og í Jafnaskarði, og virðist hún fyllilega ílend.
* 9. Rumex stenopliyllus. — Akureyri 1961. Nýr.
10. R. ohtusifolius. — Akureyri 1961.
*11. Senecio nebrodensis. — Akureyri 1960. Nýr.
Akureyri 1. maí 1964
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum.
Floristic news 1964
by Steindór Steindórsson, Aliureyri College, Akureyri
New localities are mentioned for 34 rare species. A form of Chamaenerium latifolium
with srnall flowers is described. 11 of rare introduced species are mentioned, whereof 5
marked with an asterisk are new to the Icelandic Flora.
Sumarið 1962 fór ég allvíða um skagana beggja megin Eyjafjarðar. Á vestri
skaganum hafði ég viðdvöl á eitirfarandi stöðunt: Dalvík, Siglufirði, Barði í Fljót-
um og Hofsós.
Á austari skaganum er nú öll byggð eydd, utan við Finnastaði á Látraströnd,
Þverá í Fnjóskadal og Björg í Kinn. Vegir eru af skornum skammti á svæðinu, og
því erfitt um ferðalög. Þó eru víða skipbrotsmannaskýli með ströndum fram, sem
eru hinir ágætustu gististaðir.
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 105