Félagsbréf - 01.07.1957, Blaðsíða 18
16
FÉLAGSBRÉF
Ég held að ógæfa Stofnunarinnar sé að mestu leyti sjálfskap-
arvíti. Ég held, að þessi piltur geti skrifað miklu betur, ef hann
losar sig við óheppilegar fyrirmyndir, hristir af sér lífsleiðann og
velur sér karlmannlegri viðfangsefni. Því að hvað er það annað
en þróttleysi að velja sér einkum geðsjúklinga og fávita til að
fást við? Það kostar vafalaust meiri baráttu að lýsa nokkurn
veginn heilbrigðu og venjulegu fólki og vandamálum þess, og
þótt sálsýkisfræði sé býsna forvitnileg fræðigrein, stendur þó
heilbrigði hersdagsmaðurinn okkur flestum nær.
Þótt þessi fyrsta bók Geirs Kristjánssonar sé að mestu villu-
för, vonum við það, að með þeirri næstu stígi hann drjúgt spor
í rétta átt og finni sjálfan sig — og enginn verður óbarinn biskup.
Rétt er að taka hér með bók Jónasar Árnasonar, „Sjór og
menn“. Þar er þó ekki um að ræða smásögur í eiginlegum skiln-
ingi, heldur frásöguþætti úr daglega lífinu. Höfundur hefur
verið blaðamaður og hefur tvímælalaust hæfileika í þá átt eins
og hann á kyn til. Þættirnir bera þess merki, að hann er nokkuð
þjálfaður í skóla blaðamennskunnar. Honum er einkar lagið að
sýna lesendum sínum skýrt og vel inn í kjör sögupersónanna og
myndir úr atvinnulífinu á sjónum.
En J. Á. er ekki aðeins blaðamaður og sagnaþulur, hann á
sér líka skáldskaparæð. Stíll hans er persónulegur og skemmti-
legur, hann leikur sér t. d. afar laglega að endurtekningum, án
þess að ofnota þær. Frásagnaraðferðin er öll með þeim hætti,
sem hrífur mann með sér. Þar veldur ekki minnstu um hin
þægilega kímni, sem ofin er víða í frásögnina, þrátt fyrir alvör-
una undir niðri.
En J. Á. skortir eitt til þess að verða verulega góður höfundur.
Hann kann ekki að takmarka sig sem skyldi. En „In der Begrenz-
ung zeigt sich der Meister", — meistarinn birtist í takmörkuninni.
Jónas spillir víða góðri frásögn með því, að allt í einu flóir orða-
straumurinn út yfir alla bakka og rýfur eðlilegt samræmi. Hvergi
er þetta eins áberandi og í einu smásögunni í bókinni, „Tíðinda-
laust í kirkjugarðinum", sögunni um Eirík karlinn Ásláksson,