Félagsbréf - 01.07.1957, Blaðsíða 101
FÉLAGSBRÉF
99
Páll ÓLuisson.
Páll Ólafsson varð snemma eitt af vinsælustu alþýðuskáldum
okkar fslendinga. Vísur hans og kvæði bárust manna á meðal og
voru lærð löngu áður en þau voru gefin út í sérstakri bók.
Þó að hlutur Páls sé ekki eins mikill í hugum yngri kynslóð-
arinnar og hann var í hugum
næstu kynslóðar á undan, á
hann þó enn nokkra hlutdeild
þar. Af Páli stóð nokkur ljómi,
og hann varð hálfgerð ævin-
týrapersóna. En hann var ekki
allur þar, sem hann var séður.
Glaðværðin og glæsimennskan,
sem heimurinn sá, var aðeins
hjúpur, undir honum duldist
sorgbitinn og þjakaður maður.
Benedikt frá Hofteigi rekur ætt
og æviatriði Páls á skilmerki-
legan og greinargóðan hátt í
þessari bók. Bókin virðist vera
rituð eftir góðum heimildum,
m. a. eftir ýmsum samtíma-
mönnum Páls, sem góða mögu-
leika höfðu til að vita hið sannasta og réttasta um hann og málefni
hans, og hefur.hún því talsvert heimildargildi. Það má því ætla,
að bókin geymi eins sanna mynd af Páli og ævi hans og líkindi
eru til, að hægt sé að fá. Eg verð að játa, að hugmyndir mínar
um skáldið hafa nokkuð breytzt við lestur bókarinnar, og eins
hygg ég að fleirum fari. Glæsimyndin fölnar æði mikið, en um
leið verður persónan mannlegiú og myndin eflaust sannari. Ekki
fannst mér bókin beint skemmtileg lestrar, orsakaðist það bæði
af leiðinlegu málavafstri, sem rakið er allnákvæmlega, og ættar-
tölum austfirzks embættisaðals, sem ég hafði lítinn áhuga á, en
gætu eðlilega orðið til nokkurs fróðleiks fyrir þá, sem þeim
fræðum unna.
Páll Ólafsson og Ragn.hU.dur.