Félagsbréf - 01.07.1957, Blaðsíða 97
FÉLAGSBRÉÍ'
95
þegar hann samdi kaflann um sveitastúlkuna á strandferðaskipinu
og aðra líka kafla í síðustu bók sinni, en árangurinn er ekki annað
en ólistræn uppreisn gegn velsæmi. Sæmilega frjáls maður þarf ekki
að gera uppreisn, hvorki gegn velsæmi eða öðru, en tuttugu og tveggja
ára ríkið getur farið svona með menn eins og Mykle.
Tuttugu og tveggja ára ríki hefur staðið með nokkrum blóma í
Danmörku. Þar er Gyldendal að gefa út bækur eftir prest og prentar
þær í átta liundruð eintökum. Þeir kvarta undan því að bækur þessa
höfundar seljist illa. Hann er þó annar af tveimur ungum liöfund-
um í Danmörku, sem þeir segja gestum frá. Menn skyldu þó varast
að álíta, að þessar þrengingar liins danska höfundar komi því við
hvort hann er góður eða vondur höfundur, en liann er að gera alvar-
legar tilraunir og þegna velferðarríkisins varðar ekki um liann. Karen
Blixen hefur staðið nærri Nóbelsverðlaunum um tíma. Hún varð full-
veðja áður en tuttugu og tveggja ára ríkið hóf göngu sína í Dan-
mörku og hefur raunar ekki búið þar. Hvergi bólar á alvarlegri
liugsun í dönskum kvikmyndum. Þær eru sviplausar, eins og vel-
ferðarríkið. Ekki er að efa, að almenn lífsskilyrði hafa batnað í Dan-
mörku á síðustu áratugum, en þar gerist ekki lengur neitt sérstakt
í bókmenntum, utan hvað nokkrir snotrir glamrarar eru þar við lýði,
sem við erum að burðast við að lesa ,og skrifa um og blessa, meir af
ættrækni og vegna linattstöðu en af vilja.
Nýlega var sænskur rithöfundur í heimsókn liér. Þetta var góð
heimsókn og maðurinn bæði frændi okkar og í sænsku akademíunni.
Síðasta verk lians gerist að mestu úti á meðal himintungla. Eru þá
gamlir kyndarar af skipum orðnir langt leiddir í velferðarríkinu,
er þeir verða að flýja með yrkisefni sín af jörðinni. Svíar hafa gert
dálítið að því að framleiða kvikmyndir, og liafa reynt að afla mark-
aða fyrir þær. Nú Iiefur mér verið tjáð, að þeir gætu lielzt sýnt þær
í Suður-Ameríku. Mvndir þeirra eru mestmegnis myklerí og af sömu
rótum og saga Agnars Mykle; uppreisn gegn velsæmi og misheppnuð
sölumennska. Þeir lialda sjálfsagt, að það sem sé kitlandi í Svíþjóð,
þyki stórfenglegt í öðrum löndum. Suður-Ameríkumaðurinn borgar
þessar tilraunir.
Ég hef hér verið að nefna nokkur dæmi um áhrif velferðarríkisins
á rithöfunda og listir almennt. Það mætti nefna fleiri og ennfremur