Félagsbréf - 01.07.1957, Blaðsíða 130
128
PÉLAGSBRÉF
kemur ekki út sem slíkur. Hefur
því verið horfið að því ráði að senda
félagsmönnum síðar í vetur II. bindi
Islendinga sögu dr. Jóns Jóhannes-
sonar á sórstökum vildarkjörum, svo
að enginn verði svikinn af breyting-
unni. Er ekki að efa, að félagar muni
mjög fagna því að eiga von þessar-
ar bókar, þó að hún verði eigi eins
vel úr garði ger og I. bindið, þar
sem höfundi entist eigi aldur til að
ljúka henni.
Aukabækurnar eru að þessu sinni:
Heimurinn okkar — saga veraldar
í máli og myndum.
Þetta er langstærsta og vandað-
asta bók, sem félagið hefur gefið út,
og raunar engin sambærileg bók kom-
ið út hérlendis. Bókin er upphaf-
lega gefin út í Bandaríkjunum en
prentuð í Þýzkalandi og Danmörku
fyrir Bókafélagið. Hún er nú nýkom-
in út í flestum Vestur-Evrópulönd-
um og hefur hvarvetna vakið geysi-
athygli. Erlendis hefur bókin þegar
selzt í milljónum eintaka, enda í
henni að finna óþrjótandi fróðleik
um undur veraldar. Er ekki að efa
að bók þessi muni hér þykja mikill
fengur. Fjölmargir íslenzkir vísinda-
menn hafa aðstoðað við útgáfu henn-
ar og kann Bókafélagið þeim beztu
þakkir. Upplag bókarinnar er mjög
takmarkað, og em það vinsamleg
tilmæli til félagsmanna að tryggja
sér bókina sem allra fyrst, ef þeir
hyggjast notfæra sér þau sérstöku
kjör, sem þeir fá við kaup þessai-ar
bókar sem annarra. Verð hennar til
félagsmanna er aðeins 315 krónur, en
hún kostar annars 450 krónur.
Konan mín borðar með prjónum
eftir Karl Eskelund.
Kristmann Guðmundsson, skáld,
þýðir þessa skemmtilegu ferðabók
frá Kína.
Smásögur Guðmundar Fnðjóns-
sonar.
Með þessari bók er enn aukið við
„gula flokkinn“. Guðmundur G.
Hagalín valdi sögumar í samráði við
Þórodd Guðmundsson, en Þóroddur
ritar stuttan eftirmála um rit föður
síns.
Þjóðbyltingin í Ungverjalandi eft-
ir Erik Rostböll í þýðingu Tómasar
Guðmundssonar segir frá höi-mung-
um ungversku þjóðarinnar í bylting-
unni í fyrra. Tómas Guðmundsson
ritar mjög athyglisverðan eftinnála.
Bókin er komin út fyrir nokkrum
vikum — á afmæli byltingarinnar
23. okt. — Hún er gefin út til styrkt-
ar Ungverjalandssöfnun Rauða Kross
íslands. Bókina geta félagsmenn nú
fengið hjá umboðsmönnum á sér-
stökum kjörum.