Félagsbréf - 01.12.1958, Side 3

Félagsbréf - 01.12.1958, Side 3
ALKABÆKUR AB í desember 1958 Núna fyrir jólln gefur Almenna bókafélagið út þrjáx auka- bœkur. Félagsmenn geta fengið þessar bækur á félagsverði (30—40% lægra en búðarverð), ef þeir panta þær sérstaklega. GANGRIMLAHJOLIO eftir LOFT GUÐMUNDSSON Þessi skáldsaga er bæði merkileg að efni og frumleg. Hún fjallar um það, hvernig manns- sálin bregzt við hinum vélrænu störfum, sem nútíminn leggur oss á herðar. Sagan er hnit- miðuð að formi, einkennilega byggð upp og yfir henni leyndardómsfullir töfrar, sem hrifa lesandann eigi síður en það efni, sem hún fjall- ar um. Gangrimlahjólið á vissulega eftir að vekja mikla athygli og, ef að líkum lætur, flokk- ast undir bókmenntaafrek. Sagan er 160 bls. MARÍUMYNDIN eftir GUÐMUND STEINSSON Þetta er ástarsaga eftlr ungan rithöfund. Hún gerist suður á Spáni og bregður upp ógleyman- legum myndum af elskendunum og hinu suð- ræna umhverfi þeirra. Still sögunnar er mjög ljóðrænn og blæfagur, sýnir mikla ritleikni þessa unga höfundar. Þetta er fagurt skáldverk, sem allir bókmenntaunnendur þurfa að lesa og eignast. Stærð 128. bls. SPÁMAÐURINN cftir KAIILIL GIBRAN — Þýðandi Gunnar Dal Kahlil Gibran var libanonskt skáld og heim- spekingur (1883—1931). Hann var kunnur viða uni heim, en frægasta verk hans er Spámað- urinn, sem kom fyrst út 1923 og hefur orðið ein vinsælasta Ijóðabók aldarinnar. Spámað- urinn hefur verið þýddur á meira en 20 tungu- mál og gefinn út i risastórum útgáfum. Ljóðin hafa verið nefnd „lífspeki mikils manns“, og veitir það nokkra innsýn í efni þeirra. Bókin er prýdd nokkrum myndum eftir höfundinn. Stærð hennar er 124 bls.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.