Félagsbréf - 01.12.1958, Síða 11

Félagsbréf - 01.12.1958, Síða 11
FELAGSBREF 9 gœta og viS. Einir erum viS vanmúttugir, og því eigum viS ekki aS láta aukaatriSi einangra okkur frá voldugum samherjum. * En í erfiSri baráttu er ekki nœgilegt aS einblína á óvinina, þaS þarf líka aS huga aS innri styrkleika, og hvar erum viS Islendingar í dag staddir í því efni. Er líklegt, aS stjórnarfar okkar sé okkur til styrktar og álitsauka, þegar stjórnmálamenn karpa sýknt og heilagt um lausn efnahagsmála, en fofSast eins og heitan eldinn aS gera sér grein fyrir því, aS grundvallarregla lýSrœSisins er sú, aS frjáls markáSs- lögmál eigi aS ráSa vcr&mynduninni og lcysa efnahagsrá&stafanir stjórnmálamannanna af hólmi. Um þetta meginatri&i er ekki deilt í nágrannalöndunum, hvort sem þeim er stjórnaS af jafna&armönn- um, frjálslyndum eSa íhaldsmönnum. En liér eru hver lögin af öSr- um samþykkt, sem beinlínis miSa að því aS fjarlœgja allt efnahagslíf landsins þessari grundvallarreglu og fela ráiSum og nefndum allt þaS vald yfir fjármagni þjóSarinnar, sem lýSrœSiS œtlast til aS sé í höndum borgaranna sjálfra, allra þeirra, sem afla þess. Á þennan hátt telja stjórnmálamenn sig vafalaust afla sér auk- inna áhrifa á kjósendur, því aS á þeirra valdi sé, hvert, hvenœr og hverjum sé miSlaS því fé, sem áSur hefur vcriS tc.kiS af þegnunum. En þetta vald stjórnmálamannanna kann aS reynast þeim þyngra í skauti en þeir hugSu, því aS borgararnir mynda mótvœgiS. Þeir taka aS berjast fyrir sinni efnahagslegu vclferS viS ríkisvaldiS sjálft í staS þess aS berjast viS þorskinn í hafinu og sláttinn á túninu. t þessum tilgangi starfa voldug samtök, sem bjóSa ríkisvaldinu byrginn, og fara ekkert dult meS þaS, aS þau muni lworki hlýta boSi né banni hins œSsta valds, ef því er aS skipta. Þessi samtök, sem í heilbrigSu lýSrœSisþjóSfélagi er œtlaS þaS hlutverk aS vernda sérhagsmuni hinna mismunandi starfsgreina, sem mynda þau, eru hér á landi á gó&um vegi meS aS verSa hinn raun- verulegi löggjafi, en ríkisvaldiS gegnir nánast því hlutverki, sem œtláS er sáttanefndum í vinnudeilum, aS sendast milli hagsmunahópanna i þeim tilgangi afí koma á bráSabirgSavinnufriSi. Og þegar ríkis- stjórnum tekst ekki aS gegna þessu hlutverki, sem œtti aS vera utan verkahrings þeirra, þá eru þœr felldar af óþinglegum öflum.

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.