Félagsbréf - 01.12.1958, Síða 28

Félagsbréf - 01.12.1958, Síða 28
26 FELAGSBREF fara í ferðalag. Ég verð að finna einliverja leið til þess. Ég verð að finna eittlivað sem er raunliæft. Ég verð nú með þetta það sem eftir er ævinnar og ég verð að finna leiðir til þess að eyðileggja liana ekki og líf liennar með því. Hún hefur verið svo góð og liún var ekki gerð til þess að vera góð. Ég meina á þennan liatt. Ég meina góð upp á hvern einasta dag og leiðinlega góð. Hann heyrði liana koma upp stigann og tók eftir breytingunni í göngulaginu þegar hún bar tvö glös og þegar hún hafði gengið tóm- hent niður stigann. Hann lieyrði regnið á gluggarúðunni og fann lyktina af beykihútunum í eldinum. Er hún kom inn í lierbergið rétti hann heldur fljótt út hendina eftir glasinu. En svo fann liann það, kalt og þvalt og kreppti liöndina utan um það og fann hana snerta glasið með sinni eigin hendi. — Þetta er gamli drykkurinn okkar sem við vorum vön að fá okkur liérna útfrá, sagði liún. Campari og Gordons-gin með ísmolum í. — Manstu þegar ég fékk ljónið mitt? Var það ekki dásamlegt ljón? Ég get ekki beðið eftir því að fá að sjá það aftur. — Ekki ég heldur, sagði hann. — Fyrirgefðu. — Manstu þegar við bönnuðum þessi orð? — Ég var næstum því búin að segja það aftur. — Veiztu, sagði liann, hvað við erum heppin að hafa komið hing- að? Ég man það svo vel að það er mér bersýnilegt. Þetta er nýtt orð og bráðum skulum við banna það. En það er í raun og veru unaðs- legt. Þegar ég lieyri í regninu get ég séð það á steininum og á vatn- inu í skurðinum og lóninu, og ég veit hvernig trén sveigjast í öllum vindum og hvernig kirkjan og turninn eru í hvaða Ijósi sem er. Við hefðum ekki getað lent á stað sem er betri fyrir mig. Hann er eigin- lega alveg fullkominn. Við höfum góða viðtækið og ágætt segulbands- tæki og ég ætla að skrifa betur en ég hef nokkru sinni getað gert. Ef þú tekur þér nægilegan tíma til að læra á segulbandstækið þá geturðu ritað orðin rétt niður. Ég get unnið mér hægt og ég get séð orðin þegar ég segi þau. Ef það eru ekki réttu orðin þá heyri ég þau ekki rétt og ég get sagt þau upp aftur og aftur unz ég fæ þan til þess að hljóma rétt. Við gætum á ýmsan hátt ekki liaft það betra. — Ó, Philip -—- — Nú, fjandinn liafi það, sagði hann. Dimman er bara dinnna. Þetta er ekki eins og myrkrið sjálft. Ég sé mæta vel að innan og nú er hausinn á mér stöðugt að lagast og ég get munað og ég get vel

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.