Helgafell - 01.01.1943, Page 96

Helgafell - 01.01.1943, Page 96
82 HELGAFELL hólmi hin næstu fjögur ár. Árið 1822 fluttist hann til Reykjavíkur og var þar til haustsins 1824, er hann flutti til Vestmannaeyja og gerðist þar beykir við Garðsverzlun, sem Westy Petreus, kaupmaður í Reykjavík, átti. í Vest- mannaeyjum kvæntist hann 1. maí 1826 Sigríði Nikulásdóttur. Haustið 1828 fluttist Sigurður úr Vestmannaeyjum til Stykkishólms. Haustið 1830 fór hann til Kaupmannahafnar til þess að nema þar dönsk lög, en brast stöðug- lyndi til þess að koma því í framkvæmd. Á næsta vori var hann orðinn fé- laus og réðst þá í þjónustu konungsverzlunarinnar grænlenzku. Stundaði hann þar beykisstörf og átti jafnframt að kenna Grænlendingum hákarla- veiðar. Hann dvaldist í Grænlandi á fjórða ár. Haustið 1834 kom hann út í Stykkishólmi, og þar var hann viðloðandi hin næstu tvö ár. Hinn 7. janúar 1837 kvæntist hann að nýju, enda þótt hann hefði þá ekki fengið lögskilnað við fyrri konu sína. Gekk hann þá að eiga Kristínu Illugadóttur á Gríms- stöðum í Breiðavík. Hún hafði áður búið með Jóni Jónssyni og eignazt með honum tvö börn, en hann var þá dáinn fyrir nokkru. Talið er, að Sigurður hafi setzt í nokkur efni að Grímsstöðum, en það virðist allmjög orðum aukið. Gengu efnin fljótt til þurrðar, því að Sigurður var lítill búsýslumaður og enginn fjáraflamaður. Brugðu þau búi vorið 1841 eftir A/2 árs búskap að Grímsstöðum. Þegar fengizt hafði staðfesting á því, að Sigurður væri kvæntur fyrir, var fyrirskipuð rannsókn á misferli þeirra Sigurðar og Kristínar 1. ágúst 1837. Héraðsdómur x máli þeirra var kveðinn upp 18. júní 1838 með þeim úrslitum, að hjónabandið var dæmt ógilt, og skyldi Sigurður sæta þriggja tuttugu og sjö vandarhögga refsingu, en Kristín sæta sektum. Sig- urður áfrýjaði dóminum til landsyfirréttar og síðan til hæstaréttar, og urðu lyktir málsins þær, að rétturinn fann ,,ekki næga ástæðu til að ónýta“ hjónabandið, en Sigurður skyldi sæta 27 vandarhögga refsingu og Kristín greiða 8 ríkisdala sekt. Með konungsbréfi 22. júní 1840 var Sigurður und- anþeginn refsingunni gegn greiðslu sektar. Til gamans skal þess getið, að sækjandi fyrir landsyfirrétti gerði aðallega þær kröfur, að Sigurður yrði „dæmdur til að missa sitt höfuð“, en til vara, að hann „verði dæmdur til að erfiða ævilangt í Kaupmannahafnarfestingu.” Það er engum vafa bundið, að þessi málaferli hafa orðið Sigurði ærið kostnaðarsöm og átt verulegan þátt í því, hve fljótt hann flosnaði upp frá jörðinni. Þegar Sigurður brá búi, fluttist hann til Reykjavíkur, og bjó hann þar við mjög erfið kjör, þangað til hann andaðist 21. júlí 1846, 48 ára að aldri.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.