Morgunblaðið - 01.08.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.08.2014, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2014 AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Í dag starfa um 12 þúsund manns í byggingariðnaði, en miðað við þau áform sem uppi eru má gera ráð fyrir að fjöldi þeirra verði 14 til 15 þúsund. Þetta segir Friðrik Á. Ólafsson, forstöðumaður bygging- arsviðs Samtaka iðnaðarins. Hann telur það ekki óeðlilegan fjölda og bendir á að áður fyrr hafi að jafnaði verið 12-15 þúsund manns í byggingargeiranum. Við hrunið var fyrirséð að mikil fækkun yrði í greininni og í kjölfar- ið var unnið að því að fjölga nýlið- um í iðngreinum. Friðrik segir að samt sem áður megi gera ráð fyrir að flytja þurfi inn vinnuafl á næst- unni, en hann vonast þó til að ein- hverjir færi sig aftur yfir í bygging- argeirann að nýju. Það sem skiptir þó mestu máli, að sögn Friðriks, er að stuðla að stöð- ugleika. Sveiflan núna sé því ekki óskastaða. Bendir hann á að í upp- hafi árs hafi 10 þúsund manns unn- ið í byggingargeiranum en að þeim hafi fjölgað um tvö þúsund á hálfu ári. „Hlutir eru að fara í gang og það er margt í pípunum,“ segir Friðrik en bætir við að þetta geti ekki verið eilífar upp- og niður- sveiflur. thorsteinn@mbl.is Tvö þúsund bæst við mannaflann  Mikill vöxtur byggingargeirans í ár Morgunblaðið/RAX Í miðborginni Framkvæmdir við 21 smáíbúð á Lindargötu 28-32 eru hafnar. FRÉTTASKÝRING Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Fjárfesting í nýjum hótelum og íbúð- um í miðbæ Reykjavíkur á næstu tveimur til þremur árum verður að lágmarki 71 til 77 milljarðar króna. Þetta hefur úttekt Morgunblaðsins og mbl.is síðustu daga leitt í ljós, en aðeins er um að ræða verkefni sem hafa verið kynnt eða blaðið hefur heimildir fyrir. Heildarupphæðin gæti því verið talsvert hærri. Verk- efnin eru talin upp í töflu hér til hlið- ar. Meðal þeirra svæða sem verið er að byggja eða endurhanna að stórum hluta eru fjórir reitir á milli Lauga- vegs og Hverfisgötu, stór svæði við Borgartún og Höfðatorg, Skugga- hverfið, Mýrargatan, Austurhöfn auk Hafnarstrætisins. Hundruð íbúða eru að rísa við Hlemm og í Holtum. Til ársins 2017 er áformað að reisa tæplega 1.400 hótelherbergi í Reykjavík. Stærsta framkvæmdin er við Höfðatorg, en þar er áformað að reisa 342 herbergja hótel og er áætl- uð fjárfesting í því verkefni um átta milljarðar. Fimm stjörnu hótel við Hörpuna kemur þar næst á eftir, þar er rætt um sex til sjö milljarða. 15-20 milljónir á herbergi Eftir standa um 800 herbergi, en sérfræðingar sem blaðið ræddi við segja að kostnaður við hvert her- bergi í Reykjavík sé almennt 15 til 20 milljónir. Fjárfesting í Icelandair Kultura hótelinu er hér talin hluti af kostnaði við Hljómalindarreit. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að áformað er að byggja um 1.440 íbúðir miðsvæðis í Reykjavík á næstu árum. Þá á reyndar eftir að taka með væntanlegan fjölda á tveimur reitum við Austurhöfn, en þar gætu vel bæst við 100-200 íbúðir. Erfitt er að meta meðalverð íbúða. Það getur verið allt frá 13-16 millj- ónir fyrir minni stúdíóíbúðir, sem eru t.d. áformaðar á nokkrum reitum við Laugaveg og upp undir 100 millj- ónir í Skuggahverfinu, við Austur- höfn eða í Mánatúni. Með varfærnu mati, þar sem hver íbúð er metin á um 30 milljónir, má áætla að fjárfest- ing í íbúðum verði um 38 milljarðar á tímabilinu. Til viðbótar við það bæt- ist uppbygging á Hljómalindar-, Vatnsstígs-, Brynju- og Frakka- stígsreitum fyrir 10-12 milljarða, séu 195 til 206 íbúðir þar taldar með. Að þeim frátöldum er fjárfesting á reitunum 4-6 milljarðar króna. Byggt við hlið Tollhússins Heildarupphæð allra þessara verkefna er því 71 til 77 milljarðar, en þá á eftir að taka með nokkur stór verkefni sem einnig gætu farið í gang á tímabilinu. Uppbygging við hlið Tollhússins á tveimur reitum gæti t.d. hafist, en talan 10 milljarðar hefur heyrst í því sambandi. Um er að ræða 9.750 fermetra á reit 1 við Tollhúsið og 15.500 fermetra á lóð- inni fjær, sem er á móti Stjórnar- ráðinu. Á móti Arnarhóli festi svo Lands- bankinn kaup á lóð sem hugsuð var undir höfuðstöðvar bankans. Ómögulegt er að spá fyrir hversu dýr slík framkvæmd yrði, en leyfi- legt byggingarmagn á reitnum er 16.500 fermetrar. Fjárfestingin mun því hlaupa á einhverjum milljörðum, hvort sem Landsbankinn eða annar aðili byggir þar. Milljarðar í Vesturbugt Þá er á skipulagi uppbygging á 195 íbúðum og 8.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði í Vesturbugt, milli Mýrargötu og Hótel Marina. Ljóst er að slík uppbygging er upp á nokkra milljarða ef af verður. Ekki hefur verið tilkynnt formlega um slíkt enn þá. Við hlið Borgarbóka- safnsins er einnig lóð, sem nú er not- uð undir bílastæði, þar sem deili- skipulag leyfir uppbyggingu á sjö hæða þjónustu- og skrifstofuhús- næði, að hámarki 8.440 fermetrar. Við Höfðatorg er svo hafin bygg- ing 16 hæða hótelturns, en auk þess eru þrír óbyggðir turnar á reitnum. Fram hefur komið í Morgunblaðinu að stefnt er að því að hefja fram- kvæmdir við 12 hæða íbúðaturn við Höfðatorg í haust og er kostnaður- inn við hann áætlaður 5 milljarðar. Hinir turnarnir tveir verða lægri. Þá hefur Íslandsbankahúsið við Lækjargötu verið til sölu, en þar er áformuð mikil endurbygging sem mun ná yfir nærliggjandi lóðir líka. Einnig er áformuð mikil uppbygg- ing á horni Laugavegs og Rauðarár- stígs, gegnt utanríkisráðuneytinu. Hvorugt verkefnið er talið með hér. Að lokum hefur Reykjavíkurborg lagt mikla fjármuni í endurbætur á nokkrum götum í miðbænum síðustu árin, svo sem Laugavegi, Hverfis- götu og Klapparstíg. Heildarfjár- festing í miðbænum árin 2014-2017 gæti því senn nálgast 100 milljarða. Við þessa samantekt er ekki tekið tillit til fjárfestingar einkaaðila í breytingum á íbúðum og heilu fjöl- býlishúsunum þannig að bygging- arnar henti undir rekstur íbúðahót- ela. Erfitt er að áætla hana. Miðbærinn tekur hamskiptum  Fjárfest í nýjum íbúðum, atvinnuhúsnæði og hótelum í miðbænum fyrir 71-77 milljarða 2014-2017  Gæti hæglega farið yfir 100 milljarða  Margar aðrar framkvæmdir í sjónmáli í hjarta borgarinnar Morgunblaðið/Þórður Breytir borginni Hörpureiturinn er einn margra í miðborg Reykjavíkur þar sem mikil uppbygging er fyrirhuguð á næstu misserum. Fjárfestingar í miðborg Reykjavíkur 2014-2017 Lausleg áætlun í milljónum króna* Höfðahótel Hótel við Hörpu Önnur hótel Íbúðir Hljómalindarreitur Brynjureitur Vatnsstígsreitur Frakkastígsreitur Samtals Sé miðað við ríflegra mat á hótelkostnaði og íbúðum** 8.000 6.000 9.825 37.590 3.500 2.500 1.000 3000 71.415 76.690 *Samkvæmt úttekt Morgunblaðsins og mbl.is síðustu daga.**Í dæminu hér fyrir ofan er miðað við að bygging nýs hótelher- bergis kosti 15 milljónir, í neðra dæminu að það kosti 20 milljónir. Þá er í ríflegra matinu miðað við efri mörk í kostnaðaráætlun fyrir Brynju-, Hljómalindar-, Frakkastígs og Vatnsstígsreit, sem er alls 12 milljarðar. Gististaðir spretta upp í miðbænum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.