Þjóðlíf - 01.09.1986, Page 21

Þjóðlíf - 01.09.1986, Page 21
— 1 milljón Afborgun Eftir 15 ár — 1 milljón Afborgun Eftir 20 ár nær fólk hins vegar ekki umtalsverðri eignastöðu fyrr en það kemst vel yfir miðjan aldur. Um næstu aldamót verður íslenska þjóðfélagið að öllum líkindum ennþá þjóðfélag eigna- manna. Hins vegar bendir allt til þess að Byggingarsjóður ríkisins verði þá eigandi fyrsta veðréttar í meirihluta húseigna landsmanna og þar með heildarskuldar er nemi rúmum helm- ingi samanlagðs matsverðs þessara eigna! Raunverulegur eignarhluti hins al- menna íbúðareiganda á íslandi mun þannig minnka mjög á næstu árum. Hægt og sígandi mun staða hans líkj- ast meir þeirri stöðu sem eigendur verkamannabústaða hafa í dag: að vera íbúðareigandi að nafninu til en fá aðeins greiddan út smávægilegan eignarhluta ef hann selur húsnæðið. Hin hægfara eignaaukning gerir vart meira en vega upp á móti eðlilegum afskriftum af húsnæðinu, auk þess sem henni er stöðugt ógnað af hætt- unni á verðfalli á fasteignamark- aðnum. Pað verðtryggða langtímalánakerfi sem nú er verið að innleiða fellur þannig ekki sérlega vel að hugmynd- um manna um virka sjálfseignar- stefnu í framkvæmd. Þetta kerfi hent- ar á hinn bóginn mjög vel til fjár- mögnunar leiguíbúða og félagslegra eignarforma á borð við kaupleigu- íbúðir eða húsnæðissamvinnufélög. Verðtryggt húsnæðislánakerfi opnar möguleika á fremur lágum árlegum greiðslum yfir langt tímabii með mun lægri nafnvöxtum en óverðtryggt lánakerfi býður upp á. Eftir 1. september verður reyndar sú ótrú- lega staða komin upp, að hús- næðislánakerfi okkar dreifir hús- næðiskostnaði jafnar og yfir lengri tíma en tíðkast í nokkru ná- grannalanda okkar! Nýja lánakerfið þarfnast hins vegar endurbóta í anda þeirrar sósíaldemó- kratísku félagshyggju sem íslenskir vinstri menn játa með vörunum en heykjast ætíð á að framkvæma, hvort sem þeir setjast í ráðherrastóla við Arnarhvol eða að samningaborði í Garðastræti. Með samstilltu átaki fé- lagshyggjuaflanna getum við sett okkur það markmið — t.d. fram til næstu aldamóta — að vinna upp það forskot sem nágrannalönd okkar hafa í mótun mannsæmandi hús- næðiskjara og raunverulegs valfrelsis fyrir hinn almenna launamann. EIGNAMYNDUN í NÝJA KERFINU Samkvæmt nýja lánakerfínu falla greiðslur vaxta mest á fyrstu 15 ár láns- tímans. Eftir fímm ár hefur sá sem tók 2,1 miiljón króna lán greitt lánið niður um 84.683 krónur, en hann hefur að auki greitt 346.604 krónur í vexti. Eftir tíu ár hefur hann greitt lánið niður um 246.772 krónur og 706.328 krónur í vexti. Eftir 15 ár er vaxtahluti greiðslna lán- takans enn yfirgnæfandi. Hann hefur aðeins greitt um 400 þúsund krónur af láninu en rúmlega eina milljón í vexti. Það er ekki fyrr en á 27. ári lánstímans sem helmingur lánsins er greiddur. Jón Rúnar Sveinsson er félagsfræðingur og vinnur hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. ÞJÓÐLÍF 21

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.