Þjóðlíf - 01.09.1986, Síða 41

Þjóðlíf - 01.09.1986, Síða 41
þegar BSRB ætlaði að auglýsa mán- aðarlaun einstaklinga í samtökunum haustið 1984 tók útvarpsráð sig til og bannaði auglýsingarnar. Það lá svo mikið við að aimenningur yrði ekki upplýstur um laun opinberra starfs- manna að ráðið greip til ritskoðunar, beinnar og augljósrar. Fréttamenn ríkisútvarpsins eiga ekki auðvelt með að fjalla um launamálin frekar en margir aðrir. Launakerfið sem gilti á fjölmiðlum fram að 1983 er hrunið einsog á flest- um öðrum vinnustöðum. Á ríkisfjöl- miðlunum gerðist þetta í stórum dráttum þannig, að fréttamenn gengu flestir úr BSRB og gerðu síðan sér- kjarasamninga við ráðuneyti fjár- mála. Með þessu tókst þeim að hækka launin brúttó um allt að ÍOO prósent á einu ári, — og gætu þess vegna verið næstum því með mannsæmandi laun, nteð gífurlegri vinnu þó. Þetta veldur hins vegar því, að þeir sem enn hanga á umsömdum töxtum láglauna eiga ekki jafn skiln- ingsríka fréttamenn að og áður. Og „Ef einhver á flokkstengdum fjölmiðli slysast til að gagnrýna „eigin mann“, þá á hann annað hvort fótum sínum fjör að launa, ellegar er tortryggur þar til hann steypist í sama mót og öll hin möppudýr valdsins, svo á fjölmiðlun sem annars staðar í heimi óttans.... undirboðssamningar og allra handa „fiff" í launamálum eru sjálfsagðari en áður, einnig í augum þeirra sem eiga að sjá um aðhaldið. Fyrir nokkru átti fréttamaður viðtal í hljóðvarpi við nefndakóng í kerfinu um laun fyrir nefndastörf og spurði hvassrar spurningar um aukalaun fyrir slík störf. Nefndakóngurinn svaraði á þá leið, að fréttamenn út- varpsins hefðu nú líka sínar aðferðir við að bæta launin. Þá gat fréttamað- urinn ekki sagt annað en: — Við skulum ekki vera að ræða það hér. Þröng skeið og opnir tímar Morgunblaðið hefur mikla yfir- burði á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Ekki bara vegna markaðshlutdeildar sinnar, heldur líka vegna stærðar sinnar og þjónustu sem er meiri en annarra blaða. Á hinn bóginn hefur áróðursmáttur blaðsins oft verið of- metinn, bæði af því sjálfu og af and- stæðingum Sjálfstæðisflokksins. Gott dæmi um þetta var afstaða blaðsins til loftárása Bandaríkjamanna á Líbyu. Morgunblaðið studdi árásirnar en mikill meirihluti landsmanna lýsti sig andvígan þeim í skoðanakönnun. Sjálfsmynd Morgunblaðsins er Þegar BSRB ætlaði að auglýsa laun félagsmanna sinna bannaði útvarpsráð auglýsingarnar. ÞJÓÐLÍF 41

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.