Þjóðlíf - 01.09.1986, Síða 50

Þjóðlíf - 01.09.1986, Síða 50
Hvemig einveldi Morgunblaðsins var hnekkt og opinberri umræðu fundinn nýr farvegur 1991: Nýr Birtingur, stærsta dagblað landsmanna, slær upp stórfrétt í aukaútgáfu síðdegis á sunnudegi í júli að lokinni æsilegustu kosninganótt í sögu lýðveldisins: lýðræðishreyfingim FÆR 30 ÞIMGMEMM! „Forseti felur formanni stjómarmyndunammbod Framsókn: Við munum ver,a stjorn Lyðrad hrevfingarinnar falli• “ Blaðið birtir mynd af gífurlegum mannfjölda sem safnast hafði saman undir miðnætti kosninganóttina á Austurvelli til að fá fyrstu tölur úr hátölurum við Alþingishúsið. Á annarri síðu er mynd af dr. Svani Kristjánssyni og vitnað í grein hans í ÞJÓÐLÍFI í júlí 1986 þar sem nákvæmlega var sagt fyrir um úrslit kosninganna: Lýðræðishreyfingin (samsteypa úr Al- þýðuflokki, Alþýðubandalagi og Kvennalista ásamt mörgum öðrum) fengi 47 prósent atkvæða, Sjálfstæðisflokkurinn 40 prósent og Framsóknarflokkurinn 13 prósent. í stuttu viðtali við Nýjan Birting segir Svanur: Grein mín í ÞJÓÐLÍFI virðist hafa hitt í mark!“ Allir sem muna þessi ár sem Svan- ur vitnar í vita, að aðdragandi að stofnun Lýðræðishreyfingarinnar var ágætlega skilgreindur í Þjóðlífsgrein hans, ásamt mörgum öðrum sem í kjölfarið birtust. Stofnun Málfunda- félags félagshyggjufólks var áfangi, andlegt samband 68-kynslóðarinnar hafði aldrei rofnað, en tók að blómstra í ýmsum myndum eftir ball- ið snjalla í Þjóðleikhúskjallaranum, og svo framvegis. Mestu skipti þó þaulseta Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks í ríkisstjórn, hvað sem leið spillingu og getuleysi stjórnar- andstöðuflokkanna eftir „áfallið mikla“ 1987, þegar Sjálfstæðisflokk- urinn bætti við sig fylgi og tók við forsætisráðherraembætti. Porsteinn var kominn í fastan stól í öndvegi og Hannes Hólmsteinn tók við embætti Menntamála. Stjórnmálasaga þessara ára verður ekki rakin hér að gagni, enda svo kunn samtíðarmönnum að óþarft er. En hlutur Nýs Birtings í vexti og við- gangi Lýðræðishreyfingarinnar er merkilegur, ekki síst í ljósi forsíðunn- ar góðu sem áðan var vitnað í. SAMEIGINLEGT MÁLGAGN. Sameining Tím- ans, Þjóðviljans og Alþýðublaðsins hafði oft verið rædd þessi ár, en 50 ÞJÓÐLÍF KJ

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.