Þjóðlíf - 01.09.1986, Síða 58

Þjóðlíf - 01.09.1986, Síða 58
Eftir Helgu Sigurjónsdóttur Teikning: Brian Pilkington Rætur klámsins: MÓÐUR- MORÐIÐ? Fljótlega eftir seinna stríö tóku sterkir þrýstihópar karla að knýja á um að liðkað yrði til fyrir klámfengnu efni á almennum markaði. Það var óspart talað um frelsi í þessu sam- bandi; fólk átti að hafa frelsi til að sjá og skoða hvaðeina sem hugurinn girntist. Kröfur þessar um frelsi voru í beinu framhaldi af umræðu og deilum um kynferðislegt eðli og frjálsar ástir á þriðja og fjórða áratug aldarinnar. Þar bar hátt mannúðar- sálfræðinginn Wilhelm Reich og kenningar hans um kynlíf og kyn- hegðun, en hann hallaðist að því að hvers konar hömlur á þessum sviðum væru til baga og oft stórtjóns fyrir sálarheill manna. Á stríðsárunum höfðu þjóðir Evrópu öðrum hnöpp- um að hneppa en velta fyrir sér slík- um hlutum, en málið var tekið upp að nýju strax og um hægðist. Þá hafði líka Alfred Kinsey gert heyrinkunnar niðurstöður úr hinni frægu könnun sinni á kynhegðun karla og kvenna, en svo sem kunnugt er vakti skýrsla Kinseys mikið umtal og deilur er hún var gefin út 1948. Norðurlöndin voru mun fyrri til að sleppa kláminu lausu heima fyrir en Bandaríkjamenn, og fóru Danir þar í 58 ÞJÓÐLlF broddi fylkingar. Um 1960 var mið- borg Kaupmannahafnar farin að bera blæ af klámbylgjunni og um tíu árum síðar voru margar götur í borginni orðnar eins og ein samfelld klám- búlla. Flestir telja, að klámbylgjan hafi byrjað að flæða yfir Bandaríkin árið 1953 þegar fyrsta tölublað af herratímaritinu Playboy kom út. Að- standendur blaðsins voru þó ekki al- deilis á þeim buxunum að viðurkenna að blaðið væri klámfengið. Þvert á móti, sagði ritstjórinn Hugh Hefner, þetta er menningarlegt blað, létt-eró- tískt, en alveg laust við klám. Vissu- lega hafði blaðið á sér annan blæ en þau klámfengnu neðanjarðarrit, sem gengu manna á milli. Blaðið lagði frá upphafi áherslu á að hafa ævinlega gott og vandað efni með, s.s. greinargóð viðtöl við merka menn, ýmist stjórnmála- og embættismenn í æðstu stöðum eða heimsfræga lista- menn. Varla færu slíkir menn að leggja nafn sitt við ómerkilegt sorpblað? Þessi áróður Hefners og samstarfs- manna hans var listilega unninn, enda féllu flestir fyrir honum fyrir- hafnarlítið. Þetta blað var þó frá upp- hafi úlfur í sauðargæru. í skjóli menningar og ytri fágunar átti ritið afar hægt um vik að koma á framfæri hugmyndafræði klámsins og reka áróður fyrir henni. Hugmyndafræði sem var og er sterkur þáttur í hinni vestrænu karlamenningu og er ekki ný af nálinni. í Playboy, eins og í öðrum og svæsnari tímaritum sem fylgu í kjölfarið, er meginþemað nið- urlæging kvenna og lítilsvirðing á þeim — og hvorugt á neitt skylt við erótík. HVAÐ ER KLÁM? Þegar rætt er um klám líður sjaldan á löngu þar til farið er að heimta skilgreiningar á fyrirbærinu. Gjarnan er spurt hver sé munur á klámi og eðlilegri umfjöllun um heilbrigt kynlíf, hvar mörkin séu milli kláms og erótíkur og loks hvort nokkurt klám sé yfirleitt til — hvort það sé ekki aðeins til í hugum þeirra sem þykjast sjá það. Með þannig röksemdafærslum hef- ur talsmönnum klámsins orðið býsna vel ágengt og hefur oftar en ekki tekist að drepa málinu á dreif. Það er erfitt að festa hendur á orðhengils- hætti þeirra og andmælendurnir, sem oftast eru konur, kjósa fremur að þegja en lenda í erfiðum stælum.

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.