Þjóðlíf - 01.09.1986, Side 73

Þjóðlíf - 01.09.1986, Side 73
í ofni ásamt brauðmylsnu, sem krydduð er hvítlauk og kryddjurtum. Annars er best að bera einfalt með- læti með, t.d. ofnsteiktar kartöflur og grænt salat. HANDA 6 TIL 8 MANNS 1 lambalæn (2,5-3 kg) ‘h kg shallot-laukar, afhýddir og skornir í tvennt 3-4 msk myntulauf (fást víða í sér- pakkningum) '/4 tsk nýmalabur pipar '/3 bolli eplaedik '/2 bolli + 3 msk kjúklingasoð 1. Hitið ofninn að 150°. Fjarlægið sem mesta fitu af lærinu, þó ekki alla, því þá verður kjötið of þurrt. 2. Skerið 2 lauka í sneiðar. Skerið 10 grunna skurði víðs vegar um lærið og setjið lauk og myntulauf í hvern skurð. Stráið pipar yfir lærið. 3. Steikið í ofninum í 30 mínútur, hellið soðinu yfir lærið einu sinni og látið hina laukana í pokann/ílátið sem þið steikið lærið í. Steikið í 30 til 40 mínútur í viðbót eða þar til lærið er steikt við hæfi. Ef þið viljið lítið steikt ætti ein klst. og 10 mínútur að duga, annars ein klst. og 30-40 mínút- ur. Best er að nota kjötmæli, eins og áður sagði. Hafið hugfast að kjötið heldur áfram að stikna í ca. 15 mínút- ur eftir að það er tekið úr ofninum. 4. Takið lærið úr ofninum og vefjið það í álpappír og geymið. 5. Búið nú til soðið. Takið laukana úr steikarílátinu og skerið gróflega. Hellið edikinu í steikarílátið og hitið að suðumarki. Skafið laukafgangana upp af botninum meðan suðan er að koma upp. Hellið kjúklingasoðinu út í ásamt því soði sem kann að hafa runnið af lærinu meðan þið voruð að fást við sósugerðina. Sjóðið í eina mínútu, eða þar til soðið er vel heitt, en síið síðan í lítinn pott. Látið af- ganginn af myntunni út í pottinn ásamt viðbótarsoði af lærinu, ef eitt- hvað er, piprið og saltið eftir smekk, hitið upp og hellið síðan í sósuílát. MARINERAÐ LÆRI 1 marineringuna þarf eina dós af hreinni jógúrt, 2-3 marða hvítlauks- geira, safa úr hálfri sítrónu, pipar og það krydd, sem þið viljið gefa kjöt- inu. Hér er hugmyndafluginu gefinn laus taumur, nota má nánast hvaða krydd sem er: myntu, oreganó, tími- an, rósmarín, birkilauf o.s.frv. Blandið þessu þó ekki öllu saman! Öllu er hrært vel saman við jógúrt- ina og smurt á lærið þegar búið er að skera mestu fituna frá. Látið lærið síðan í ílát með loki eða steikarpoka og geymið í ísskáp í 1 '/2-2 sólar- hringa. Rétt áður en steikingin hefst er jógúrtin skafin af (skiljið þó dálitla himnu eftir). Óþarft er að krydda lærið frekar. Gott meðlæti með þessu eru ofn- steiktar kartöflur og einfalt salat (t.d. blaðsalat, tómatar, paprikur ásamt örlítilli kryddolíu). Besta sósan er soðið sem rennur af kjötinu. Piprið og saltið eftir smekk og bætið e.t.v. örlitlum rjóma út í. LAMBAHAKK MEÐ HVÍTLAUK Þessi uppskrift ætti að gleðja alla hvítlauksunnendur. HANDA 4 MANNS 1 kg lambahakk V/4 tsk salt 3l/i msk grófmöluð piparkorn 32 hvítlauksgeirar, afhýddir 1 msk tímian 1 bolli myntulauf 1 tómatur, afhýddur og stappaður 3 msk ósaltað smjör 1. Setjið lambahakkið í stóra skál og blandið 1 tsk af salti saman við. Búið til 4 bollur (með hamborgara- sniði), ekki of þéttar. 2. Kryddið bollurnar með möluð- um piparkornunum og látið þær síð- an standa í stofuhita í u.þ.b. 1 klst. 3. Setjið 2 bolla af vatni í pott, hvítlauksgeirana, tímian og af- ganginn af saltinu. Sjóðið í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til hvítlauksgeirarnir eru orðnir meyrir. Takið þá geirana upp úr og geymið í skál. Veiðið tími- anið upp úr og fleygið en sjóðið síðan hvítlauksvatnið við háan hita þar til eftir er tæplega bolli af því (ca. 10 mínútur). 4. Sjóðið myntulaufin í ca. 10 mín- útur, takið þau úr vatninu og þerrið. Myljið þau niður. 5. Hitið pönnu á plötu þar til hún er orðin vel heit. Setjið lambahakks- bollurnar á plötuna og steikið í 2 mínútur á hvorri hlið. Minnkið þá hitann á plötunni og steikið aðrar 2 mínútur á hvorri hlið (þeir sem vilja mikið steikt steikja lengur). Setjið steikurnar síðan á heitan disk. 6. Ef einhver vökvi hefur komið á pönnuna hellið honum þá af. Setjið hvítlauksvatnið, tómatinn og mynt- una á pönnuna, sjóðið við háan hita uns nokkuð hefur gufað upp (ca. 1 mínúta). Skrapið upp þær agnir sem kunna að vera fastar við pönnuna. Hrærið smjörið út í, 1 msk í einu. Saltið að vild. Látið hvítlauksgeirana út í og hitið vel. Lambasteikurnar eru settar hver á sinn disk, hvítlauks- geirum raðað umhverfis og sósunni hellt yfir. ÞJÓÐLÍF 73

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.