Þjóðlíf - 01.12.1987, Blaðsíða 28

Þjóðlíf - 01.12.1987, Blaðsíða 28
• HorstTappert þótti „plottið" býsna snjallt. andlát eiginmannsins hefur hún tekið vin þeirra hjóna inná heimilið, þar eð hún þolir ekki einveruna. Heimilisvinurinn (Volkert Krft) reynist ekki allur þar sem hann er séð- ERLENT ur. Hjólin fara að snúast og ýmislegt óvænt kemur upp úr dúrnum, sem ekki er vert að rekja nánar hér, enda eiga íslenskir sjón- varpsáhorfendur að líkindum eftir að sjá þennan þátt og þeim væri lítill greiði gerður með því að ljóstra því upp, hver morðinginn er... Það er ljóst af frásögn Tapperts, að honum þykir ,,plottið“ í þættinum býsna snjallt. Eftir að við höfum skrafað saman á grasflöt- inni fyrir framan villuna um stund, göngum við inn í húsið. Búið er að koma fyrir kvik- myndavél í forstofunni og leikararnir hafa tekið sér stöðu. Leikstjórinn, Alfred Weidenmann, biður menn að hafa hljótt og leikurinn hefst. í atriðunum sem við sjáum eru Derrick og sálfræðingurinn mættir til að hafa tal af ekkju hins myrta. Þegar þeir koma inn í húsið, hitta þeir heimilisvininn fyrir. Aðspurður kveðst hann aldrei hafa séð sál- fræðinginn fyrr. Derrick er hins vegar tor- trygginn, eins og lögregluforingja sæmir, og trúir því ekki alls kostar, að þeir félagar þekkist ekki... Á meðan Tappert og leikstjórinn ræða einstakar uppstillingar nota ég tækifærið og skyggnist um í húsinu. Hvert sem litið er virðist íburðurinn með eindæmum. Mar- maragólf, gullbryddaðir hurðarhúnar og stássgripir af ýmsu tagi blasa við augum. Að • Stórleikarar ræðast við. ógleymdum málverkunum sem skarta á veggjum. Á einu þeirra getur að líta Bæjara- kónginn fræga, Lúðvík II, í fullri líkams- stærð, auk þess sem ýmis skyldmenni kon- ungs horfa til gesta ofan af veggjum. Það Tvær snjallar frá BRAUN Þetta er litla rafhlöðurakvélin frá BRAUN, vélin sem þú gelur setl í hanskahólfið á bílnum, skrifborðsskúffuna og jafnvel skyrtuvasann. Ótrúlega góð vél miðað við stærð og verð. ,,System 1-2-3“ er nýjasta gerðin frá BRAUN. ,,Elegant“ rafmagnsrakvél, sem er hljóðlátari og kröftugri en aðrar gerðir. Bartskerinn og rakhnífurinn geta unnið saman þegar þú ert með langa skeggbrodda, eða ,,óþekk“ hár. Aðalumboð: Verslunin mm, Borgartúni 20 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.