Ægir - 01.04.2002, Side 49
49
Sá svartsýni
Tveir skipsbrotsmenn höfðu lent
á eyðieyju þar sem hvorki voru
tré né annar gróður. Þeir störðu
marga daga fullir eftirvæntingar
út á hafið.
- Húrra! Ég sé segl úti við sjón-
deildarhringinn! hrópaði annar
skyndilega.
- Og hvað með það? sagði hinn
daufur í dálkinn. - Við erum ekki
með neitt mastur!
Sá tillitssami
- Hvers vegna skiljið þið hjónin
ekki?
- Vegna barnanna. Það vill eng-
inn hafa þau!
Vantaði eina
Fyrir utan diskótek í Hafnarfirði
standa 17 bráðfallegar ljóskur.
Siggi gengur til þeirra og spyr
hvers vegna þær standi þarna, því
þær fari ekki inn.
Ja, sérðu, við verðum að vera
18 til að komast inn!
Örlæti
Tveir sægreifar höfðu komist yfir
mikinn kvóta á frábæru verði og
fóru saman til London til að gera
sér glaðan dag í tilefni góðrar
höndlunar. Þeir fóru inn í bílabúð
til að sjá hvað væri í boði.
- Ég ætla að fá Rolls Royce
með stuðara úr silfri, litasjón-
varpi, bar, minkaskinnsáklæði á
sætum og demant í stýrinu, sagði
annar.
- Sama hér, sagði hinn, - en
með stuðara úr gulli og tvo
rúbína í stýrinu.
- Jæja, sagði bílasalinn eftir að
hafa gengið frá pappírunum. -
Þetta verða þá 3.560.000 pund
fyrir þig og 3.750.000 pund fyrir
þig.
Annar sægreifinn tók strax upp
tékkheftið til að borga.
- Nei, heyrðu nú, sagði hinn
svolítið argur. - Þú borgaðir mat-
inn áðan og nú splæsi ég!
Bókin betri
Tvær geitur voru á beit í Beverley
Hills í Hollywood. Önnur þeirra
fann filmuspólu og fór að japla á
henni.
- Var hún góð? spurði hin geit-
in.
- Nei, sagði filmugeitin, - bók-
in var miklu betri!
Grímuball
Siggi ætlaði á grímuball kvenfé-
lagsins í sveitinni og hugsaði með
sér að nú skyldi hann byrja í tíma
að koma sér upp búningi. „Hvað
ætti ég að vera,“ hugsaði Siggi,
„ég verð að upphugsa eitthvað
virkilega frumlegt. Loks ákvað
hann að vera Adam í Paradís.
Hann skrifaði því Gervi ehf.
bréf, sagðist ætla að vera Adam í
Paradís á grímuballi og pantaði
fíkjublað. Tæpri viku síðar kom
fíkjublaðið í pósti. Siggi mátaði
það en fannst það ekki alveg nógu
stórt. Hann settist því niður og
skrifaði annað bréf:
„Kæra Gervi ehf! Fíkjublaðið
sem þið senduð mér dekkar því
miður ekki þarfir mínar. Vinsam-
legast sendið mér stærra blað.„
Tæpri viku seinna kom annar
pakki í pósti til Sigga og í honum
var stærra fíkjublað. Siggi mátaði
það en var ekki fullkomlega
ánægður og settist enn niður og
skrifaði bréf:
„Kæra Gervi ehf! Þetta fíkju-
blað dekkar ekki heldur þarfir
mínar. Vinsamlegast sendið mér
stærra blað.“
Eftir nokkra daga kom pakki
til Sigga í póstinum. Honum
þótti blaðið að vísu stórt, en þó
ekki nógu stórt. Í fjórða sinn sett-
ist hann niður og skrifaði: „Kæra
Gervi ehf!
Bestu þakkir fyrir lipurð ykkar,
en því miður þá dekkar þetta
fíkjublað ekki heldur þarfir mín-
ar. Vinsamlegast sendið enn
stærra blað. PS: Mér LIGGUR Á!
Tveimur dögum seinna kom
póstsendill með hraðsendingu
heim til Sigga. Í pakkanum var
RISASTÓRT fíkjublað og hand-
skrifað bréf:
„Kæri Siggi! Þetta er stærsta
fíkjublaðið sem við eigum. Ef
þetta blað dekkar ekki heldur
þarfir þínar þá biðjum við þig
vinsamlegast að grípa höndum
um þarfir þínar, troða þeim upp í
eyrað á þér og vera bensíndæla á
grímuballinu!„
Sá nýgifti
Jakob var nýgiftur og félagi hans
spurði hann hvernig honum lík-
aði í hjónabandinu.
- Oh, sagði sá nýgifti, það er af-
skaplega gott að vera giftur.
- Hvernig gott? spurði félag-
inn.
- Að þurfa aldrei að gefa neinni
blóm og konfekt!
Hugmyndaflug
Pétur var að hjálpa mömmu sinni
við uppvaskið. Hann horfir hugs-
andi á gaffalinn og spyr:
- Mamma, á ég líka að þurrka
milli tánna?
Sældarlíf
- Læknirinn sagði að ég ætti að fá
mér snafs í hvert sinn sem ég
legði mig. Í gær lagði ég mig tíu
sinnum!
Innri friður
Ég held að ég hafi fundið leiðina
að innri friði. Sálfræðingurinn
minn sagði mér að til að öðlast
innri frið ætti ég að klára hluti
sem ég hefði byrjað á ...
Í dag hef ég því klárað tvo poka
af kartöfluflögum, eina súkku-
laðiköku, einn lítra af Jameson,
hálfan bjórkassa og einn konfekt-
kassa. - Mér líður strax mun bet-
ur.
P L O K K F I S K U R