Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2013, Síða 25
Sport 25Helgarblað 11.–13. október 2013
8 möguleikar
í stöðunni
Koma svo stráKar!
1 Ísland vinnur Kýpur og Noreg
Stig í riðlinum: 19
Ekkert getur komið í veg fyrir að Ísland nái
að minnsta kosti öðru sæti riðilsins. Sviss
þarf að tapa tveimur síðustu leikjunum
sínum (gegn Albaníu úti og Slóveníu
heima) til að Ísland nái efsta sætinu.
2 Ísland vinnur Kýpur en gerir jafntefli við Noreg
Stig í riðlinum: 17
Þetta gæti nægt Íslandi ef önnur úrslit verða
hagstæð. Aðeins Slóvenía getur náð Íslandi
að stigum. Slóvenía þarf bæði að vinna Nor-
eg á heimavelli og Sviss á útivelli. Þá hefur
Slóvenía 18 stig þegar upp er staðið.
3 Ísland vinnur Kýpur en tapar fyrir Noregi
Stig í riðlinum: 16
Þetta gæti nægt Íslandi. Ísland þarf að
treysta á að bæði Noregur og Slóvenía tapi
stigum í tveimur síðustu leikjunum. Þjóð-
irnar mætast innbyrðis svo ljóst er að önnur
þjóðin, hið minnsta, tapar stigum. Vinni
önnur þjóðin báða leikina (Slóvenía vinnur
Noreg og Sviss eða Noregur vinnur Slóveníu
og Ísland) missir Ísland af öðru sætinu.
Einnig skal haft í huga að Albanía getur með
því að vinna Sviss og Kýpur náð 16 stigum í
riðlinum eins og Ísland. Ef hvorki Slóvenía
né Noregur nær 16 stigum ræður markatala
því hvort Albanía eða Ísland kemst í umspil.
Fyrir leikina á Ísland eitt mark á Albaníu.
4 Ísland tapar fyrir Kýpur en vinnur Noreg
Stig í riðlinum: 16
Slóvenar geta með jafntefli og sigri (gegn
Noregi og Sviss) náð jafn mörgum stigum
og Íslendingar. Þá ræður markatalan
röðinni. Albanía getur einnig náð 16 stigum
með tveimur sigrum (gegn Sviss og Kýpur).
5 Ísland gerir jafntefli við Kýpur og Noreg
Stig í riðlinum: 15
Ísland getur komist áfram ef Noregur
og Slóvenía gera jafntefli í sínum leik og
Slóvenía vinnur ekki Sviss í lokaleiknum.
Þá má Albanía ekki vinna báða sína leiki
(gegn Sviss og Kýpur).
6 Ísland tapar fyrir Kýpur og gerir jafntefli við Noreg
Stig í riðlinum: 14
Það er hugsanlegt að Ísland komist
áfram. Til þess þurfa önnur úrslit að vera
Íslandi í hag. Noregur og Slóvenía þurfa
að gera jafntefli og Slóvenía má ekki
fá stig á móti Sviss í lokaleik sínum. Ef
Slóvenía gerir jafntefli við Sviss þá eru Ís-
land og Slóvenía jöfn að stigum. Slóvenar
verða þá með hagstæðara markahlutfall.
Þá má Albanía ekki vinna báða sína leiki.
7 Ísland gerir jafntefli við Kýpur og tapar fyrir Noregi
Stig í riðlinum: 14
Ísland kemst ekki í umspil, sama hvernig
aðrir leiki spilast. Noregur myndi alltaf hafna
ofar en Ísland, í það minnsta á markatölu.
8 Ísland tapar bæði fyrir Kýpur og Noregi
Stig í riðlinum: 13
Ísland kemst ekki í umspil, sama hvernig
aðrir leiki spilast.
n Ísland mætir Kýpur í dag og Noregi á þriðjudag n Erum í bílstjórasætinu n Allir bestu leikmenn liðsins eru heilir
M
ér líst vel á þetta og hef
góða tilfinningu fyrir leikj-
unum,“ segir þingmað-
urinn og knattspyrnu-
þjálfarinn fyrrverandi Willum Þór
Þórsson. Hann hefur fulla trú á því
að strákarnir klári verkefnin sem
fram undan eru. Mikill stígandi hafi
verið í liðinu og stemningin verið
góð, bæði innan liðsins og á meðal
þjóðarinnar.
Willum nefnir sem dæmi um
góðan anda í hópnum hve strákar
á borð við Eggert Gunnþór Jóns-
son og Guðlaug Victor Pálsson
séu ánægðir með að vera komnir í
landsliðshópinn. Það sé virkilega
eftirsóknarvert að verða fyrir valinu.
„Það er ríkjandi mikil virðing leik-
manna fyrir því að fá að vera með í
þessu. Það er ofboðslega mikilvægt.“
Lars og Heimir hafa aldrei þessu
vant úr öllum sínum bestu mönn-
um að moða. Willum segir að „góð-
ur bekkur“ sé mjög mikilvægur. Því
sterkari sem hann sé þeim mun öfl-
ugra sé byrjunarliðið.
Willum segir að mikil og jákvæð
þróun hafi orðið á leikaðferð liðsins.
Í hreinskilni sagt hafi liðið leikið
nokkra leiki í keppninni illa en að
einstaklingsframtak hafi skipt sköp-
um. Gylfi hafi til að mynda klárað
tvo útileiki í keppninni. Frá og með
síðari hálfleiknum gegn Sviss – þar
sem Kolbeinn Sigþórsson hafi gefið
tóninn – hafi verið allt annað að sjá
til liðsins. „Kolbeinn kemur okkur
þannig inn í leikinn gegn Sviss að
það gjörbreytir trú leikmanna inni
á vellinum. Jóhann Berg spilar svo
eins og í ævintýri. Þetta er breyting
á landsliðinu og hefur gefið leik-
mönnum feiknamikla trú á sjálfum
sér og liðinu.“
Eiður Smári Guðjohnsen hefur
leikið ákaflega vel með landsliðinu
undanfarið en svo gæti farið að
þegar þjálfararnir velji byrjunarliðið
geti valið staðið á milli hans og Al-
freðs Finnbogasonar. Willum seg-
ir að það skipti ekki endilega öllu
máli hvor þeirra byrji. Þeir geti báð-
ir komið inn á sem varamenn fyrir
hinn og breytt gangi leikjanna. Þetta
sé jákvætt „vandamál“ fyrir Lars. „Ég
myndi láta þetta ráðast af því hverju
fram vindur á æfingum,“ segir hann.
Þá muni hann eflaust hafa Nor-
egsleikinn í huga, þegar kemur að
vali á liðinu og spilatíma leikmanna.
„Eiður er orðinn það reynslumikill
að það gæti vel verið að Lars muni
einfaldlega meta það með honum;
fara ærlega yfir stöðuna á honum,
með þessa báða leiki í huga.“
sjálfsagt líka hafa í huga að nota
leikmenn sem geti komist í gegnum
báða leikina. „Þetta er hans höfuð-
verkur,“ segir Bjarni léttur í bragði.
„Drengir sem vilja meira“
Bjarni segir að þó Ísland eigi að sjálf-
sögðu að bera virðingu fyrir Kýpur
sem andstæðingi þá eigi strákarnir
að vinna leikinn. „Oft er það þannig
að lið ranka við sér þegar þau skipta
um þjálfara en það á ekki að skipta
máli. Við eigum ekkert að pæla
mikið í þeim, heldur fókusa á okk-
ur.“ Bjarni segir að handbragð góðs
þjálfarateymis megi sjá á liðinu og
hann segist mjög hrifinn af því starfi
sem þeir hafi unnið.
Nú þegar ögurstundin í riðlinum
nálgast er viðbúið að taugar leik-
manna verði þandar. Bjarni er þó
á því að þeir leikmenn sem skipi
landslið Íslands í dag láti það ekki
á sig fá. Þeir stefni hærra en svo að
fara á taugum í svona leikjum. Þeir
hafi líka upplifað það með yngri
landsliðum að spila mikilvæga leiki.
„Þetta eru drengir sem vilja meira
og þeir mæta ekkert með tauga-
endana fram úr ermunum í þessa
leiki. Þeir fara í gegnum þetta á eig-
in verðleikum – og það eru góðir
verðleikar,“ segir Bjarni, sannfærður
um að liðið nái öðru sætinu. n
Jákvæð þróun á leikaðferð liðsins
n Willum Þór Þórsson segir viðsnúning hafa orðið í síðari hálfleik gegn Sviss
„Þetta er breyting á landsliðinu
og hefur gefið leikmönnum
feiknamikla trú á sjálfum sér og liðinu
Ari
Freyr
Jóhann
Berg
Birkir
Már
Birkir
Hannes
Þór
Kári
Eiður
Smári
Aron
Einar
Kolbeinn
Gylfi
Þór
Ragnar
Líklegt byrjunarlið