Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2013, Síða 41
„Vel skrifuð og
einlæg mynd“
This is Sanlitum
Leikstjóri: Robert Douglas
Menning 41Helgarblað 11.–13. október 2013
„Kyrralífsmynd af
grimmum glæp“
Sek
Hrafnhildur Hagalín
„Kann ennþá að hræða“
Joyland
Höfundur: Stephen King
Endurvinnslutunnan
Raunhæfur valkostur fyrir Reykvíkinga
Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is • endurvinnslutunnan.is
Þið eigið val um að panta Endurvinnslutunnuna
frá Gámaþjónustunni en í hana má setja
SJÖ flokka af endurvinnsluefnum.
Okkar lausn er umhverfisvæn, ódýr og sparar
þér sporin.
Ekkert skrefagjald!
Reykvíkingar, kynnið ykkur vel
hvaða valkostir eru í boði:
Kynnið ykkur allt um Endurvinnslutunnuna á
endurvinnslutunnan.is
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
2
1.
82
9
Pappi
Pappír
Dagblöð/
tímarit
Fernur
Rafhlöður
Málmar
Plast-
umbúðir
Fyrir 7 árum hóf Gámaþjónustan hf. að bjóða upp á Endurvinnslutunnu á höfuðborgarsvæðinu
til flokkunar á heimilissorpi. Í hana mega fara SJÖ flokkar af efnum, allt laust í tunnuna nema
rafhlöður sem fara í þar til gerða poka. Aðeins Endurvinnslutunnan bíður upp á þetta marga
flokka í sömu tunnu, sem er mikil hagræðing. Allt sem í Endurvinnslutunnuna fer er síðan
flokkað í móttöku- og flokkunarstöð Gámaþjónustunnar hf., baggað og gert klárt til útflutnings.
Endurvinnsla okkar er ábyrg og örugg!
ET+
Þarft þú að losna við raftæki?
Við sækjum stærri raftæki til viðskipta-
vina Endurvinnslutunnunnar þeim að
kostnaðarlausu.
Rúmenar ráðast inn í Reykjavík
M
argir tengja Rúmeníu ef
til vill helst við Ceaucescu
einræðisherra, sem steypt
var af stóli með látum
árið 1989, eða þá Dra-
kúla greifa sem hafði jú aðsetur sitt
í héraðinu Transylvaníu. En landið
hefur upp á margt annað að bjóða
en sögufræg eða skálduð illmenni,
og standa nú yfir Rúmenskir menn-
ingardagar í Reykjavík þar sem ætl-
unin er að kynna þjóðina og menn-
ingu hennar.
Má þar fyrst nefna kvikmyndirnar,
en rúmenskur kvikmyndaiðnaður
er nú í mikilli sókn. Myndin Fjórir
mánuðir, þrjár vikur og tveir dagar,
sem fjallaði um ólöglegar fóstur-
eyðingar, vann Gullpálmann í Cann-
es árið 2007, en það þykja einhver
virtustu kvikmyndaverðlaun heims. Í
ár vann svo myndin Child‘s Pose, eða
Kvöl, Gullbjörninn í Berlín, önnur af
helstu verðlaunum geirans. Myndin
er nú sýnd í Bíó Paradís, en hún segir
frá manni sem verður á að keyra nið-
ur barn og eftirmálum þess, átökum
við móður hans sem reynir að hylma
yfir, spilltum vörubílstjóra sem er
vitni og ekki síst samskiptum við
fjölskyldu drengsins, en lokaatriðið
þykir einstaklega áhrifamikið.
Michael Jackson og sæðissala
Ekki síður áhugaverð er myndin
Of Snails and Men, sem fjallar um
starfsmenn í verksmiðju í Rúmeníu
árið 1992. Kommúnisminn er fallinn,
Michael Jackson er að túra og ef þetta
tvennt væri ekki nógu slæmt missa
þeir allir vinnuna. Niðurstaða þeirra
verður því að selja sæði sitt til sæðis-
banka í Bandaríkjunum, en þar vill
ekki betur en svo til að menn kjósa
frekar danskar afurðir.
Rúmensk bókmenntahátíð á
næsta ári
Í seinni tíð má nefna þýsk-rúmensku
skáldkonuna Herthu Müller, sem
vann bókmenntaverðlaun Nóbels
árið 2009 og hafa nokkur verka henn-
ar verið þýdd á íslensku, þar á með-
al Ennislokkur einræðisherrans. Í
forsvari fyrir rúmenska bókmennta-
hefð á hátíðinni verður skáldið
Doina Ioanid, sem mun lesa upp og
spjalla við útvarpskonuna Jórunni
Sigurðardóttur í Eymundsson í dag,
föstudag, kl. 17. Er viðburðurinn
jafnframt hluti af dagskrá Reykjavík-
ur sem bókmenntaborgar UNESCO.
Rúmenskir menningardagar eru
haldnir í fyrsta sinn utan heima-
landsins og varð Reykjavík fyrir
valinu eftir að Rúmenía var sérstakur
gestur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíð-
ar árið 2011. Ætlunin er að gera þetta
að árlegum viðburði, en á næsta
ári mun rúmensk bókmenntahátíð
verða haldin hér í borg. Í þetta sinn
er þó boðið upp á bland í poka, það
besta úr ýmsum geirum, og meðal
annarra viðburða má nefna Balkan
tónleika sem haldnir verða á Hótel
Borg laugardagskvöld og opinn dag
í Norræna húsinu á sunnudag, þar
sem boðið verður upp á mat og drykk
og myndir frá heimalandinu.
Þeir um það bil 100 Rúmenar sem
búa á landinu ættu því að gleðjast við
þessa heimsókn frá heimalandinu,
og Íslendingar ef til vill komast að
raun um að Rúmenía er meira en
Drakúla, Ceaucescu og hrossakjöt
í hakkinu, heldur þvert á móti land
sem býr yfir mörgu öðru að sjá og
skoða og bragða. n
Valur Gunnarsson
blaðamaður skrifar
n Meira en bara hrossakjöt í hakkinu„Landið hefur upp
á margt annað að
bjóða en sögufræg eða
skálduð illmenni.
Áhugaverð mynd Of Snails and Men
fjallar um starfsmenn í verksmiðju í
Rúmeníu árið 1992. Kommúnisminn er
fallinn, Michael Jackson er að túra og
ef þetta tvennt væri ekki nógu slæmt
missa þeir allir vinnuna. Niðurstaða
þeirra verður því að selja sæði sitt til
sæðisbanka í Bandaríkjunum.