Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2013, Blaðsíða 47
Lífsstíll 47Helgarblað 11.–13. október 2013
Njósnaðu um gæludýrið
n Klóraðir sófar og nagaðir inniskór heyra sögunni til
G
æludýraeigendur geta ekki
verið hjá dýrum sínum öll-
um stundum og að jafn-
aði þurfa þau að vera ein
heima á daginn. Eigendurnir hafa
því oft áhyggjur af því hvað dýrin
séu að gera á meðan þeir eru að
heiman, hvort kötturinn sé að
klifra í gardínunum eða hundur-
inn að gera nágrannana geðveika
með gelti og spangóli. Nú gætu
þessar áhyggjur verið úr sögunni
því að með tækinu PetCube getur
þú fylgst með, talað og jafnvel leik-
ið við gæludýrið þitt með snjall-
símanum þínum, þegar þú ert ekki
heima.
Tækið inniheldur gleiðlinsu-
myndavél með hárri upplausn sem
gerir þér kleift að ná myndum af
dýrinu með iOS-smáforritinu. Inn-
byggðir hátalarar gera þér svo kleift
að tala við dýrið og ná athygli þess.
Með ljósgeisla getur þú svo leikið
við dýrið og haft ofan af fyrir því.
Tækið sem kostar 150 dollara
eða um 18.000 krónur og er um
það bil 10x10 sentímetrar að stærð
og stílhreint, en það er gert úr áli
og gleri. Einnig er hægt er að skipta
um hulstur eftir óskum.
Gæludýraeigendur sem eiga
PetCube geta nú farið áhyggju-
lausir til vinnu vitandi að þeir geta
kíkt á dýrið og hvað það er að gera
reglulega yfir daginn. Klóraðir sóf-
ar og nagaðir inniskór ættu því að
heyra sögunni til. n
gunnhildur@dv.is
PetCube Tækið gerir þér
kleift að horfa á og tala við
dýrið þegar þú ert ekki heima.
Þessa hluti
þarft þú ekki
Tæknibyltingin fer stundum fram
úr sér. Þrátt fyrir ansi mörg þægi-
leg og handhæg tæki og tól sem
gera okkur lífið þægilegra og
betra, þá eru sum sem sýna mikið
hugmyndaflug, en hafa ef til vill
lítið notagildi.
Tölvumús sem vog
Það væri til dæmis áhugavert að
vita hver finnur hjá sér þörf til að
vega hluti á tölvumúsinni sinni. Á
meðfylgjandi mynd má sjá tölvu-
mús sem hefur fengið annað hlut-
verk. Á henni hefur verið komið
fyrir vog þar sem hægt er að mæla
allt að 500 grömmum. Hún hentar
kannski þeim sem hafa komið sér
upp aukavinnu við að selja ólög-
legan varning, en fyrir fáa aðra
hefur hún mikið notagildi.
Koppur með spjald-
tölvustandi
Það getur reynst sum-
um foreldrum þraut-
in þyngri að venja
börnin sín af bl-
eyjum og yfir á
kopp eða kló-
sett. Eins
og
sést á
með-
fylgj-
andi
mynd
hef-
ur ein-
hver sniðugur hönnuður hannað
kopp með áföstum spjaldtölvust-
andi. Þar geta börnin notið þess
að læra á koppinn og leikið sér á
spjaldtölvuna. Fyrir þá sem eru
óvissir um notagildið eða telja
þetta ekki rétta þróun er rétt að
benda á að um 75 prósent Banda-
ríkjamanna viðurkenna að þeir
taki síma eða spjaldtölvu með sér
á snyrtinguna. Flestir segjast nota
tímann til að lesa fréttir.
Ritvél til að skrifa á
spjaldtölvuna
Alla hluti má gera
afskaplega flókna
með ein-
beittum
vilja. Sá sem
hannaði
þessa
ritvél
saknar
eflaust
fyrri tíma og
hefur gaman
af gömlum
ritvélum. Það er ekkert að því,
en eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd er hönnunin afar sérstök.
Mörgum finnst óþægilegt að skrifa
á spjaldtölvur, en einfalt er að
leysa úr því með lyklaborðum sem
taka talsvert minna pláss. Með
þessari tegund ritvélar kæmi þó
sá augljósi kostur að talsvert auð-
veldara væri að eyða út mistökum
og óþarfi að grípa í tippexið.