Skírnir - 01.01.1969, Blaðsíða 165
SKÍRNIR
ÞINGVALLAFUNDUR 1888
159
1850, 1873 og 1885 að þakka. Hin endurskoðaða stjórnarskrá reki
kyn sitt til þessara funda á augljósan hátt, en aldrei hafi verið
meiri og brýnni nauðsyn á Þingvallafundi en nú. „I sumar vantar
oss sannarlega ekki hvöt til þess að koma saman á vorn gamla þing-
stað,“ segir Benedikt.
Það sést af því, sem nú er rakið, að Benedikt Sveinsson og Jón
Sigurðsson á Gautlöndum, sem taldir voru höfuðskörungar í sjálf-
stæðismálum íslenzkrar þjóðar, eru sams hugar um það að heyja
Þingvallafund sumarið 1888, en bíða ekki til næsta sumars og heyja
fundinn rétt á undan Alþingi eins og gert var 1885 og ísafold stakk
upp á. Eins og vænta mátti réðu þeir og samherjar þeirra pólitískum
fundi, sem haldinn var að Einarsstöðum í Suður-Þingeyjarsýslu 26.
marz 1888.13 I umboði þess fundar sendu alþingismenn Eyfirðinga
og Þingeyinga, Benedikt Sveinsson og Jón Sigurðsson á Gautlönd-
um, þingmenn Eyfirðinga, síra Benedikt Kristjánsson þingmaður
Suður-Þingeyinga, og Jón Jónsson, síðar kenndur við Múla, þing-
maður Norður-Þingeyinga, út áskorun til landsmanna að halda
Þingvallafund á sumri sama árs til þess að ræða stj órnarskrármálið.
Áskorun þessi var ekki birt í blöðum og mun ekki hafa geymzt, en
hennar er oft getið í kjörgögnum fulltrúa á Þingvallafundi 1888 og
er sennilegt, að hún hafi verið send í flest eða öll kjördæmi lands-
ins. í henni hefur ekki verið ákveðinn dagur, er Þingvallafundi
skyldi saman stefnt, og líklega ekki kveðið nánar á um tíma en svo,
að fundurinn skyldi haldinn á sumri komanda. Áskorun þessi er
stundum nefnd bréf Þingeyinga, enda voru höfundar hennar allir bú-
settir í Suður-Þingeyj arsýslu. í þessu bréfi hafa verið gefnar þær
reglur um kosningar til Þingvallafundar, að þær skyldu vera tvö-
faldar.
I júnímánuði birtist í Reykjavíkurblöðunum og Norðurljósinu
Þingvallafundarboð frá þingmönnum Eyfirðinga og síra Benedikt
Kristj ánssyni „ritað í maímánuði 1888“ en ekki dagsett nánar.
Vegna þess, hvernig samgöngum var þá háttað, náði þetta fundarboð
síðar til Þjóðviljans á ísafirði en annarra blaða og kom í Þjóð-
viljanum 12. júlí. Fundarboðendur voru þeir sömu sem sendu út
áskorun þá frá Einarsstaðafundinum, sem nú var getið, að undan
skildum Jóni Jónssyni, sem ekki skrifaði undir fundarboðið. Þeir
hoða til fundarins „eftir samkomulagi við ýmsa samþingismenn“ 20.