Skírnir - 01.01.1969, Blaðsíða 181
SKÍRNIR
ÞINGVALIAFUNDUR 1888
175
Flögu, sennilega 23. júlí, Jón Einarsson bóndi í Hemru með sex at-
kvæðum.16
Kjörmenn, 13 að tölu, höfðu verið kosnir í öllum 6 hreppum sýsl-
unnar. I kj örfundarskýrslunni og kjörbréfi Jóns í Hemru segir, að
hann væri kosinn með 6 atkvæðum af 10, og má eflaust af þessu
ráða að 10 kjörmenn af 13 hafi sótt fundinn, en fundarskýrslan
hermir, að kjörmenn, sem fundinn sóttu, hafi verið úr öllum hrepp-
um sýslunnar. Kjósendur til Alþingis voru 184 í sýslunni og tóku
114 eða 61,95% þátt í kosningum kjörmanna. I öllum hreppum
nema Kleifahreppi tók meirihluti atkvæðisbærra manna þátt í þeim
kosningum.
Kjörfundurinn vildi framfylgja stj órnarskrárbreytingu, en sérstak-
lega taldi hann „að ráðgjafaábyrgðin og launalögin þyrftu endur-
bóta og breytinga við“. Einnig voru rædd búnaðarmál, og vildi
fundurinn „taka landbúnaðarlögin fyrir og framhalda þeim“ svo
fljótt sem unnt væri. Ágangsjarðir í Skaftafellssýslu vildi fundurinn
fá metnar til dýrleika.
í Vestur-Skaftafellssýslu hafði þingmaður kj ördæmisins, Ólafux
umboðsmaður Pálsson, forgöngu um undirbúning að Þingvallafundi.
Þess má geia, að í Mýrdalssveit (Hvammshreppi og Dyrhóla-
hreppi) voru fundir þeir, er kusu kjörmenn hreppanna, skeleggari í
stj órnarskrármálinu en kjörfundur kj ördæmisins.
Fyrir Rangárvallasýslu voru kosnir á fundi að Stórólfshvoli 11.
ágúst Jón Sigurðsson, óðalsbóndi í Syðstu-Mörk, og Jón Hjörleifs-
son, hreppstjóri í Eystri-Skógum.
Þaðan úr sýslu eru ekki til önnur kjörgögn en kjörbréf fulltrú-
anna, sem kosnir voru á Þingvallafund, eitt kjörbréf fyrir báða.
Fundurinn, sem kaus þá, er aðeins nefndur undirbúningsfundur
undir Þingvallafund, en ekki greint hvort verið hafi fundur kosinna
kjörmanna eða almennur kjósendafundur. Þó má telja vafalaust, að
kosningar til Þingvallafundar hafi verið tvöfaldar í Rangárvalla-
sýslu eins og í öðrum kjördæmum utan Reykjavíkur. Ekki greinir
kjörbréfið, með hve mörgum atkvæðum fulltrúarnir væru kosnir.
í kjörbréfinu er sérstaklega skorað á fulltrúana „að halda örugg-
lega fram, samkvæmt almennum vilja sýslubúa, endurskoðun stjórn-
arskrárinnar í líka stefnu og á næst undan gengnum þingum“.
Fyrir Árnessýslu voru kosnir á kjörmannafundi í Hraungerði 10.