Skírnir - 01.01.1969, Blaðsíða 221
SKÍRNIR
ÞINGVALLAFUNDUR 1888
215
Samþykkt var með öllum þorra atkvæða svohljóðandi fundar-
ályktun:
„Fundurinn skorar á Alþingi að semja og samþykkja á ný frum-
varp um stofnun landsskóla á íslandi.“
Nú gekk fundarstjóri úr sæti, og stýrði varafundarstjóri, Skúli
Thoroddsen, fundi í tveimur næstu málum.
Áttunda málefni á dagskrá fundarins voru tollmál.
Flutningsmaður, Björn Jónsson, sagði, að þetta mál stæði í mjög
nánu sambandi við aðalmál fundarins, stj órnarskrármálið, að því
leyti, sem nauðsynlegt skilyrði fyrir framgangi þess væri meðal
annars leiðrétting á fjárhag landssjóðs, sem nú væri harla óblóm-
legur, þar sem síðustu tvö árin hefði vantað um 200000 krónur alls
á það, að tekjur hrykkju fyrir útgjöldum, en viðlagasjóðurinn væri
í raun réttri ekki annað en fyrningar frá eldri tímum, áður en vér
fórum að eiga með oss sjálfir. Það væri raunar óhj ákvæmilegt, hvað
sem stjórnarskrármálinu liði, að auka stórum tekjur landssjóðs og
stjórnarskrárkostnaðurinn gæti aldrei orðið nema lítill partur af
því, sem við þyrfti að bæta hvort sem væri. ASalástæðan til að bera
þetta mál fram á þessum fundi og setja það í samband við stjórnar-
skrármálið væri því engan veginn sú, að það eitt gerði nýjar álögur
til landssjóðs nauðsynlegar, heldur hitt, að það væri hið öflugasta
svar gegn kostnaðarviðbáru stjórnarbótarmótstöðumannanna, ef
sami fundurinn sem héldi stjórnarskrármálinu svo eindregið fram í
nafni og umboði allrar þjóðarinnar svo sem eins og byði um leið
fram nægilegt fé til þess og annarra landsþarfa í nafni þjóðarinnar,
með því að tjá sig meðmæltan nýjum álögum í því skyni. Ef þjóðin
teldi slíkt eftir sér, gæfi hún stjórnarskrármótstöðumönnunum undir
fótinn, og gætu þeir þá haldið áfram að nota sér alltaf kostnaðarvið-
báruna. En aðferðin til að auka tekj ur landssj óðs væri sú ein tiltæki-
leg eftir öllum málavöxtum að leggja tolla á óhófs og munaðarvörur
frekar en gert hefði verið, eins og stungið hefði verið upp á á síð-
ustu þingum, en ekki náð fram að ganga þar. Fundurinn ætti því að
tjá sig meðmæltan slíkum tollum og reyna að eyða þar með öllu
hiki og tvíveðrungi í þingmönnum í því efni.
Nokkurar umræður urðu um tollmálin. Allir virðast hafa verið á
einu máli um það, að auka þyrfti tekjur landssjóðs, en skoðanir