Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 10
8 Þjóðmál SUmAR 2009
Ég skora á hæstv . forsætisráðherra að tala
einungis fyrir hennar flokk en ekki okkur
hin þegar hún talar fyrir aðild Íslands að
Evrópusambandinu, þann stóra dóm mun
einungis þing og þjóð kveða upp .
ásmundur Einar Daðason, nýkjörinn
þingmaður vinstri-grænna, sagði:
Mín skoðun er sú að hag Íslands sé best
borgið utan Evrópusambandsins og að nú sé
ekki rétti tíminn til að takast á við þessi mál .
Þeirri skoðun mun ég fylgja bæði innan og
utan veggja Alþingis .
Hvorki Guðfríður lilja né ásmundur
Einar segjast ætla að styðja ESb-krógann,
þegar hann kemur inn á þing . Þau stóðu
þó ekki í vegi fyrir því, að hann staulaðist
í gegnum þingflokk vinstri-grænna í tilefni
stjórnarmyndunarinnar .
Fréttablaðið bar hinn 21 . maí undir árna
Þór Sigurðsson, vinstri-grænan formann
utan ríkismálanefndar alþingis, hvort hann
teldi, að fyrirheit jóhönnu, um að umsókn
um aðildarviðræður yrði send héðan í júlí,
stæðist . árni svaraði í véfréttarstíl um tíma-
mörkin en lá ekki á eigin skoðun á málinu:
Þetta er málamiðlun á milli tveggja flokka .
Kannski hefði maður sjálfur ekki haft þetta
nákvæmlega svona . En ég styð þessa ríkisstjórn
og þar með þessa málamiðlun . Það er nú ekki
flóknara en það .
Flest bendir til, að málið geti orðið flóknara
fyrir vinstri-græna en árni Þór vill vera láta .
Þeir bættu við sig fimm þingmönnum í
kosningunum 25 . apríl og urðu sigurvegarar
þeirra en ekki Samfylkingin . Hér skal
fullyrt, að þetta fylgi fengu vinstri-grænir
að verulegu leyti frá kjósendum, sem töldu
sig vera að hnýta sjálfstæði þjóðarinnar fast
andspænis kröfunni um aðildarviðræður
við ESb eða aðild að ESb . Þessir kjósendur
sitja nú eftir með sárt enni .
ESb-króginn er getinn og kominn á kreik
undir handarjaðri vinstri-grænna, þótt
sumum þeirra sé sama um, að afkvæmið
lendi í höndum vandalausra .
II .
Sjálfstæðismenn hófu hinn 14 . nóvember 2008 endurmat á Evrópustefnu sinni og
luku henni á landsfundi sínum með ályktun
föstudaginn 27 . mars 2009 .
um þessa ályktun náðist góð sátt á
fundinum . Þar er tekið fram, að flokkurinn
sé enn sama sinnis og áður, að hagsmunum
þjóðarinnar sé best borgið utan ESb .
Sagt er, að kostir aðildar tengist helst
gjaldmiðilsmálum og ljóst sé að ýmis
álitamál verði aðeins skýrð í viðræðum,
hvort sem þær snúist um gjaldmiðilinn eða
aðild . landsfundurinn undirstrikaði þá
eindregnu stefnu Sjálfstæðisflokksins, að
ekki yrðu gefin eftir til annarra þjóða eða
samtaka þeirra ráð yfir auðlindum Íslands og
að standa bæri vörð um innlenda matvæla-
framleiðslu . Þá sagði orðrétt í ályktuninni:
Komist Alþingi eða ríkisstjórn að þeirri
niðurstöðu að sækja beri um aðild að
Evrópusambandinu er það skoðun Sjálf-
stæð isfl okksins að fara skuli fram þjóðar at-
kvæða greiðsla um þá ákvörðun á grundvelli
skilgreindra markmiða og samningskrafna .
Í hinum tilvitnuðu orðum kemur fram önn ur
skoðun en í tillögu ríkisstjórnarinnar . Sjálf-
stæð ismenn vilja, að alþingi ræði markmið
viðræðna við ESb og komist að niður stöðu
um kröfur . niðurstaða þessa starfs verði lögð
undir þjóðina, verði hún á þann veg, að
umsókn um aðild skuli lögð fyrir ESb .
Hugmynd sjálfstæðismanna gerir ráð fyrir
mun vandaðri og skipulegri vinnubrögðum
af hálfu alþingis en tillaga Samfylkingar
og vinstri-grænna . Samkvæmt tillögu
sjálfstæðismanna yrði leitað tvisvar til