Þjóðmál - 01.06.2009, Síða 15
Þjóðmál SUmAR 2009 13
gotinu braut offorsliðið stjórnarskrána og
ég heyrði einn af stjórnmálafræðingum
Samfylkingarinnar, sem Háskólinn skaffar
frétta mönnum á færibandi og alltaf eru svo
fyrir sjáanlegir í umsögnum sínum, segjast
vonast til að enginn færi nú að hengja sig í
formsatriði eins og stjórnarskrána til að gera
lítið úr þessari snilld . Og það mega fjöl-
miðlarnir eiga að þeir tóku þessum tilmæl-
um fljótt og vel .
Útrásarvíkingarnir, sem settu Ísland á hliðina, áttu sameiginlega eina ósk . Hún
var sú að koma Davíð Oddssyni úr Seðla-
bank anum . Þessa ósk flýtti vinstri stjórnin sér
að uppfylla, væntanlega í þakklætis skyni við
víkingana fyrir vel unnin störf í þjóðar þágu .
Og fyrst þetta forgangs mál ríkisstjórnarinn-
ar og útrásarvíkinga er farsællega í höfn eru
síðustu dagar þingsins notaðir til að ræða um
nektarsýningar á skemmti stöðum . Auðvitað á
ég að vera þakk látur fyrir það að ríkisstjórnin
hafi ekki sameinað þessi tvö mikilvægustu
mál sín, því að þá hefði hún getað falið mér,
þar sem ég er nú án vinnu, að sjá framvegis
um þær nektarsýn ingar sem fram þurfa að
fara á Íslandi .
Við höfum, kæru vinir og félagar, síðustu
12–14 vikurnar verið á viðkvæmasta stað á
vaðinu sem við verðum að fikra okkur eftir í
þeim ógnarstraumi sem við þurfum að fara í
gegnum . Við þær aðstæður hefur öllu skipt
að misstíga sig ekki . Og það var einmitt á því
augnabliki sem íslenska fjármálaeftirlitið var
sprengt í loft upp af því að viðskiptaráðherra
Samfylkingarinnar fór á taugum eina svefn-
lausa nóttina – og hefur verið forstjóra-
laust í þessari mikilvægu stofnun síðan á
allra óheppi legasta tíma í síðari tíma sögu .
Þá var allur fyrsti mánuður þessarar verk-
lausu minni hlutastjórnar notaður til aðfarar
að sjálf stæði seðlabanka landsins og flokks-
syst kini ráðherranna í noregi beðin að senda
hingað með hraði einn úr sínum röðum og
þá helst mann sem þau mættu missa . Og svo
spásseraði jens Stoltenberg um íslenska seðla-
bankann eins og hann ætti hann og er það
ein ósmekklegasta uppákoma af hálfu erlends
fyrirmanns sem sést hefur hér á landi .
Það er ekkert við manninn sem settur var í
seðlabankann að sakast þótt hann sé ókunn-
ugur öllu sem hér hefur verið að gerast .
Það var þó ekki traustvekjandi þegar hinn
erlendi bankastjóri íslenska seðlabankans
var á fyrsta blaðamannafundi sínum spurð-
ur hvenær við hann hefði verið rætt að
taka að sér starfið, að þá sagðist hann ekki
muna það . Þetta var sérkennilegt og mjög
alvarlegt svar . Annaðhvort hefur maðurinn
alzheimer á mjög alvarlegu stigi eða hann
sagði blygðunarlaust ósatt þegar hann fékk
fyrsta tækifæri til að tala við Íslendinga .
Við skulum hans vegna vona að þetta sé
alzheimerinn, því þá gleymir hann vonandi
fljótt þessari undarlegu óláns-uppákomu
sem verklausa minnihlutastjórnin setti hann
í . Það hefur hins vegar nýlega komið fram
í viðtali að maðurinn virðist upplýstur um
að alvarlegir annmarkar kunni að vera á
ráðningu hans til starfans . Ekki aðeins
gagnvart almennt settum lögum á Íslandi
heldur sjálfri stjórnarskránni . En gagnvart
henni verða menn að sýna enn meiri gætni
í stjórnsýslunni en endranær .
Skömmu eftir að þessum ókunna norska Verkamannaflokksmanni hafði verið hol-
að niður í íslenska seðlabankann fór Straum-
ur banki á hausinn . Ég þekki mjög vel til
málefna Straums og tel að ekki sé útilokað að
svona illa hafi farið vegna vanþekkingar og
eðlilegrar taugaveiklunar aðkomumannsins
í bankanum, auk þess sem fjármálaeftirlitið
var og er enn höfuðlaus her eftir stórkostleg
embættisafglöp fyrrverandi viðskiptaráð herra
Samfylkingarinnar . Ef þessar áhyggjur reyn-
ast réttar gæti íslenska ríkið orðið skaðabóta-
skylt gagnvart fjölmörgum aðilum þar sem
úrslitaákvarðanir um stórkostlega hagsmuni
þeirra voru teknar af aðila sem alls ekki var