Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 41
Þjóðmál SUmAR 2009 39
Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur síðan bankarnir hrundu margsinnis
þurft að láta „leiðrétta“ erlendar fréttir um
sig, en forsetinn hefur rætt ötullega við
erlenda fjölmiðla sem flestir hverjir virðast
misskilja orð hans . Svo stiklað sé á stóru
voru það í febrúar hrapalleg ummæli um
innistæður sparifjáreigenda í Þýskalandi, í
janúar var það bbC sem misskildi forset-
ann og í nóvember 2008 var það norskur
sendiherra sem sat með honum fund .
lengi vel var þjóðin svo lánsöm að fáir
erlendir fjölmiðlar höfðu áhuga á að tala við
Ólaf Ragnar . Dæmi voru um að blaða menn
myndu ekki örskömmu síðar hvort þeir hefðu
talað við hann, að hætti Söru Palin fyrrverandi
varaforsetaefnis . nú er Ól af ur Ragnar þó farinn
að tjá sig um hvaða málefni sem er, hvergi
banginn við að hirða heið urinn af öllu því
sem vel hefur verið gert: Í Eystra saltsríkjunum
um árið reyndi hann að eigna sér heiðurinn
af stuðningi Íslands við sjálfstæðisbaráttu
þeirra, heimamönnum til mikillar undrunar .
Kunnara er en frá þurfi að segja hvernig hann
hefur þakkað sér útbreiðslu endurnýjanlegrar
orku á Íslandi . Þá var hann með stóryrtar
yfirlýsingar um Samúræjabréfin við japanska
fréttamenn á dögunum og skýrði ísraelskum
blaðamanni frá því að Íslendingar hefðu í
aldanna rás lifað af kulda og vosbúð með því
að ganga í loðfeldum . Vafalítið er þetta allt
rangt haft eftir – eða slitið úr samhengi . Og
það væri spaugilegt að horfa upp á þetta, ef það
kostaði Ísland ekki álitshnekki og útgjöld –
sem þjóðin má illa við . Aprílmis skiln ingurinn
er svo á milli forseta og full trúa bandaríkj anna
á Íslandi – nú upp nefndur Stórasta hneykslið .
bauð Rússum herstöð
Ínóvember 2008 bárust fréttir af því að Ólafur Ragnar hefði húðskammað
nágrannaþjóðir okkar á hádegisverðarfundi
með erlendum sendiherrum í Reykjavík .
á vef norska ríkisútvarpsins sagði að við-
staddir hefðu vart trúað sínum eigin eyrum .
Í erlendum miðlum var því haldið fram að
Ólafur hefði hótað því að leita nýrra „vina“
þar sem núverandi bandamenn hefðu svikið
landið . Þá átti forsetinn að hafa viðrað þá
hugmynd að Rússum yrði boðin aðstaða í
gömlu herstöðinni á Keflavíkurflugvelli .
Skömmu síðar tilkynnti forsetaskrifstofan
að það væri fjarri lagi að forsetinn hefði
tengt viðræður Íslendinga um lán frá
Rússum við hugsanleg afnot þeirra af fyrr-
verandi herstöð bandaríkjamanna á Ís landi .
Skrifstofa forseta sagði ennfremur að for-
setinn myndi ekki tjá sig um um ræddan
hádegisverðarfund í danska send i ráð inu og
það uppnám sem orð hans vöktu .
um miðjan janúar sagði bbC frá því að
Þórdís bachmann
„You ain’t seen nothing
yet!“