Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 42
40 Þjóðmál SUmAR 2009
forsetinn væri enn að íhuga málsókn gegn
bretum vegna setningar hryðjuverkalaga
gegn íslensku bönkunum . Þar á Ólafur
að hafa sagt að bretar hafi með aðgerðum
sínum hagað sér eins og bullur .
Skömmu síðar barst leiðrétting frá
Örnólfi Thorssyni forsetaritara, sem sagði
misskilning hafa orðið til þess að fullyrt
hefði verið að Ólafur íhugaði málsókn á
hendur bretum . Örnólfur sagði Ólaf hafa
sagt að hugleiðingar væru enn um málsókn
á hendur bretum af hálfu íslenskra aðila, en
ekki að forsetinn hugleiddi persónulega að
höfða mál á hendur þeim! Ó . nú skil ég .
borgum ekkert!
Hinn 10 . febrúar í ár sagðist Ólafur Ragnar í viðtali við blaðið Financial
Times Deutschland hafna því að þýskum
sparifjáreigendum yrði bætt tap, sem þeir
urðu fyrir vegna innlagna á Edge-reikninga
Kaupþings í Þýskalandi og virtist vera að
rugla saman Edge-reikningum Kaupþings
og IceSave-reikningum landsbankans . Fyrir -
sögnin var „Ísland hafnar þýskum spari fjár eig-
endum“ og í fréttinni sagði Ólaf ur Ragnar:
„Þjóðverjar verða að skilja að fólkið á Íslandi
hefur tapað öllu .“ Fréttin vakti strax mikla
athygli í Þýskalandi og tóku alþjóðleg ar
fréttastofur hana upp . Fréttin hélt áfram:
,,Í ljósi þessa taps verði ekki lagt á íslenska
skatt greiðendur að standa einnig skil á tapi
þýskra sparifjáreigenda . Það væri „óréttlátt“
að búast við því að Ísland bæri „allan þunga“
fjár málakreppunnar . „Ég er hissa á kröfum
vina okkar í útlöndum,“ sagði forsetinn og
bætti við að alþjóðlega fjármálakreppan væri
ekki bara mál Ís lendinga . „Evrópska banka-
kerfið beri ábyrgð og aðkallandi sé að gera
umbætur á því .“
Vakti það óneitanlega athygli sumra, að
forseti Íslands hefði tíma aflögu til þess að
huga að umbótum í öðrum löndum .
Í frétt FT Deutschland kenndi Ólafur
Ragnar einnig Gordon brown, forsætis-
ráðherra bretlands, um fjármálakreppuna
á Íslandi vegna þess að hann hefði beitt
hryðjuverkalögum á Íslendinga . „Gordon
brown lítur hrokafullur niður á Ísland“ er
haft eftir forsetanum . ákvörðun browns
um að setja Ísland á listann yfir hryðjuverka-
ríki hafi gert „illt verra“ . Kaupþing hafi
verið fellt með einhliða aðgerð bretanna . Í
fréttinni er bent á, að þrjátíu þúsund þýskir
sparifjáreigendur hafi verið lokkaðir með
háum vöxtum til að leggja 330 milljónir
evra inn á reikninga Kaupþings . Eftir
bankahrunið hafi eignir bankans verið
frystar og þýskir innistæðueigendur reynt
án árangurs að fá fé sitt til baka .
Hjá Kaupþingi var stöðunni lýst svona
eftir að fréttin birtist: „Það hefur allt
gjörsamlega verið á floti hjá okkur í morgun
af þýskum fjölmiðla mönnum,“ sagði Steinar
Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar
Kaupþings, um ummæli forseta Íslands um
Edge-reikningana í Þýskalandi .
Steinar upplýsti að meðal þess sem þýska
pressan spyrði um væri hvort forseti Íslands
hefði heimild til að lýsa þessu yfir . Hann
bætti við: „Þetta er náttúrlega alrangt .
Það hefur alltaf legið fyrir að ekkert falli á
íslenskan almenning út af þessu . Kaupþing
er að klára þetta sjálft .“
Steinar kvaðst hafa haft samband við
forsetaembættið og ætti hann von á
viðbrögðum þaðan fljótlega . Hann bjóst
ekki við öðru en forsetinn leiðrétti orð sín
við þýska fjölmiðla, en bætti við: „Það er
alveg svakalegt að fá þetta í andlitið núna .“
Gengur fram af þjóðinni
Óbreyttir Íslendingar hafa líka fengið nóg af síendurteknum gloríum forsetans .
tveimur dögum síðar, 12 . febrúar, fjallaði
þýska stórblaðið Frankfurter Allgemeine