Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 54
52 Þjóðmál SUmAR 2009
3 .
nokkra sólríka sumardaga árið 1973 voru tveir
Íslendingar staddir sam tímis við
berlínarmúrinn, hvor í sínum
hópi . Þorsteinn Vilhjálmsson var
þá þrjátíu og þriggja ára gamall,
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík, þar sem hann var dux
scholae (með hæstu einkunn),
eðlis fræðingur frá Kaup manna-
hafn ar há skóla og nýorðinn lektor
í Háskóla Íslands . Hann skipaði
sér ungur í raðir sósíalista og flutti
ræðu á fullveldisfagnaði stúdenta
1972, sem haldinn var undir yfi r-
skriftinni „Gegn hervaldi – gegn
auðvaldi“ . Þegar Dav íð Oddsson
var staddur í berlín sumarið 1973
var hann tuttugu og fimm ára
að aldri . Hann var stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík,
þar sem hann var inspector
scholae (formaður skólafélagsins), stundaði
enn laganám í Háskóla Íslands, en hafði
vakið þjóðarathygli fyrir leik á sviði og
útvarpsþætti . Þessir tveir menn vissu hið
sama um stjórnarfar í Austur-Þýskalandi
og sáu hið sama í Austur-berlín . Viðbrögð
þeirra voru hins vegar ólík . Annar leit fram
hjá múrnum og skálaði brosandi við smiði
hans . Hinn horfði beint á múrinn og lýsti
því hiklaust fyrir öðrum . Annar klappaði
svo kröftuglega fyrir alræðisherrunum uppi
í salnum, að kvalastunur fórnarlambanna
í kjöllurunum drukknuðu í hávaðanum .
Hinn lagði við hlustir og heyrði hjartsláttinn
í fangaklefum leynilögreglunnar . Annar
reiknaði sig út úr heiminum . Hinn lifði
sig inn í hann . Eftirleikurinn er öllum
kunnur . Sósíalisminn féll undan eigin fargi,
enda hlustuðu forystumenn vestrænna
þjóða ekki á úrtölumenn, og undirokaðar
þjóðir Mið- og Austur-Evrópu fengu frelsi .
berlínarmúrinn hrundi 9 . nóvember 1989 .
Margir geyma brot úr honum til minn ing ar
um þá köldu tíð, sem reyndi í smáu jafnt
og stóru á mennina, dómgreind þeirra, sið-
ferðisþrek og baráttuvilja .
Austur-þýskur hermaður fjarlægir lík Peters Fechter
sem skotinn var í flóttatilraun yfir berlínarmúrinn .
Samkvæmt opinberum tölum dóu um 100 manns við
flóttatilraunir til vesturs á meðan múr smánarinnar
stóð . Í hinni frábæru kvikmynd „líf annarra“, Das
Leben der Anderen, er því lýst hvernig fólki leið
múruðu inni í Stasi-ríkinu, en skuggi múrsins hafði
engin áhrif á Þorstein Vilhjálmsson og félaga sem
skáluðu við smiði hans og klöppuðu svo kröftuglega
fyrir al ræð isherrum kommúnistaógnarinnar að kvala-
stunur fórnarlambanna drukknuðu í hávaðanum .