Þjóðmál - 01.06.2009, Page 64
62 Þjóðmál SUmAR 2009
Í Ráðstjórnarríkjunum var sams konar
óánægju snúið upp á „bændaauðvaldið“
eða kúlakkana . Afleiðingin varð sú að
tilteknir þjóðfélagshópar urðu réttdræpir
– ekki á grundvelli gjörða sinna heldur á
grundvelli tilveru sinnar .
Íslenskir sósíalistar eru margir hverjir vel lesnir í sósíalískum fræðum og þeir hafa
fundið sér næsta lítt skilgreindan óvin sem
er „auðmaðurinn“ .
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna,
sagði í ræðu á Alþingi 22 . febrúar sl . að til-
teknir fjörutíu, fimmtíu „auðmenn“ væru
glæpamenn sem þyrfti að koma á válista í
bönkum, þá mætti ekki skipta við . Orðrétt
sagði þingmaðurinn að auki: „Flestir á
litla Hrauni eru bara kórstrákar miðað
við þessa menn“ . Að sama tilefni nefndi
hann að þessir menn höguðu sér eins og
„hræætur“ .
Hinn 24 . nóvember sl . flutti álfheiður
Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna,
frumvarp til laga um að kyrrsettar skyldu
eignir svokallaðra „auðmanna“, en Vinstri
grænir munu hafa lagt ríka áherslu á
þetta atriði þegar minnihlutastjórnin var
mynduð í vetur sem leið . Sekt eða sakleysi
„auðmannanna“ virtist ekki skipta neinu
máli í þessu sambandi .
Steingrímur j . Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, sagði í ræðu á Alþingi
hinn 15 . október 2008 að svokallaðir
„auð menn“ gætu sleppt því að láta sjá sig á
götum úti ef þeir gengju ekki að skilyrðum
for manns Vinstri grænna .
Ögmundur jónasson, þingmaður Vinstri
grænna, lagði til á þingi Alþýðusambands-
ins 23 . október 2008 að eignir svokallaðra
„auðmanna“ yrðu gerðar upptækar . Sagði
Ögmundur orðrétt að „auðmennirnir“
ættu að „skila ránsfeng sínum til baka“ .
Fjöldi stjórnmálamanna, fjölmiðla-
manna og alls kyns álitsgjafa, sem studdur
er af hulduher nafnleysingja alnetsins,
skirr ist ekki við að fella þann dóm að svo-
kallaðir „auðmenn“ séu allir undir sömu
sök seldir . Þessum hóp manna megi allt
eins útskúfa úr samfélaginu og nánast lýsa
rétt dræpan .
Í þessu samhengi verður mönnum óhjá-
kvæmilega hugsað til þýskra þjóð ern is-
sósíalista . Þeir beittu viðlíka tungutaki um
Gyðinga, sem stig af stigi var útskúfað úr
samfélaginu uns allsherjar útrýming þeirra
hófst .
Virðing sósíalista fyrir mannrétt ind-um er á hvörfum eins og sýndi sig
glögg lega þegar þingmaður Vinstri grænna
nefndi nýlega að eignarrétturinn væri
ofmetinn . Sá hinn sami þingmaður hefur
vafalítið stutt málstað hóps fólks sem
framdi húsbrot á Vatnsstíg nú nýverið og
sló eign sinni á byggingu án þess að hafa
til þess nokkrar löglegar heimildir . Það er
líklega til marks um hnignandi virðingu
fyrir mannréttindum að fjölmiðlar
skyldu unnvörpum taka málstað lög-
leys unnar . Gagnrýni þeirra beindist ekki
að afbrotamönnunum sem lögðu hald á
annarra eigur, heldur var í sífellu ráðist
að þinglýstum eiganda fasteignarinnar og
lög reglu sem loks skakkaði leikinn .
umfjöllun fjölmiðla um skrílslætin
í miðbænum í vetur sem leið var sama
marki brennd . Það þótti beinlínis „fínt“,
ef ekki sjálfsagt, að trufla störf þingsins
og annarra stofnana og beita ofbeldi
til þess arna . Þá var í sífellu látið að því
liggja að þeir sem þar vógu að lýðræðinu
væru fulltrúar þjóðarinnar . Það hlýtur
að verða sjálfstætt rannsóknarefni hver
þáttur tiltekinna stjórnmálamanna var
í þessum aðgerðum, en margir þeirra
tóku málstað niðurrifsaflanna sem réðust
með ofbeldi gegn lýðræðislega kjörinni
löggjafarsamkundu .