Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 76
74 Þjóðmál SUmAR 2009
meðal frjálsra þjóða á fyrsta farrými . Við
fengum aðgang að og áheyrn hjá valdhöfum
voldugustu þjóða heims .
Við fengum Marshallaðstoð, án þess að
uppfylla skilyrðin . Við græddum á her-
manginu, meðan aðrar þjóðir færðu fórnir
til að standa undir landvörnum . Við nutum
margvíslegra forréttinda þótt hljótt hafi
farið, eins og t .d . varðandi flugrekstrar-
og lendingarleyfi í flugi yfir Atlantshafið .
Og við gátum fært okkur hernaðarlegt
mikilvægi landsins í nyt til að spila á
stórveldin í kalda stríðinu, til þess að ná
fram okkar málstað . Þorskastríðin við breta
eru gott dæmi um það . Það var á þessum
árum sem við vöndumst á það, að kjörorð
Íslendinga í alþjóðasamskiptum ætti að vera
„Allt fyrir ekkert .“
Heimsmynd kalda stríðsins
Hverjar voru forsendurnar fyrir varnar-bandalagi bandaríkjanna og Vestur-
Evrópu á tímabili kalda stríðsins? Hvað
var það sem sameinaði þær? Því má svara
í einu orði: Sovétríkin – hinn sameigin legi
óvinur . Svo lengi sem þjóðir Vestur-Evrópu
og norður-Ameríku töldu, að þeim stæði
ógn af hernaðarmætti Sovétríkjanna – voru
þessar þjóðir reiðubúnar að snúa bökum
saman gegn sameiginlegum óvini .
Þrátt fyrir ólíka hagsmuni bandaríkjanna og
gömlu evrópsku nýlenduveldanna víðs vegar
um heiminn; og þrátt fyrir gerólík lífs viðhorf
bandarískra repúblíkana og vestur-evrópskra
sósíaldemókrata, þá voru allir aðilar sammála
um að fórna bæri minni hags munum fyrir
meiri: Vörn lýðræðis og mann réttinda gegn
alræði og ógnarstjórn . Heims myndin var í
svart/hvítu: Frelsi versus helsi. Þeir sem ekki
eru með mér eru á móti mér .
Auðvitað var þessi svart/hvíta heims mynd
kalda stríðsins stórlega ýkt, þegar skyggnst
var á bak við tjöldin . Þeir sem lesið hafa
hina svörtu bók um sögu kommúnismans
vita, að það var engu logið um það alþjóð-
lega bófafélag sem réð ríkjum í Kreml og
innan veggja hinnar forboðnu borgar Maos
formanns í beijing .
En hið rísandi heimsveldi bandaríkja
Ameríku og hin hnignandi nýlenduveldi
gömlu Evrópu voru svo sem engir englar
heldur . bandaríkin skirrðust ekki við að
beita hervaldi og klækjum til að kollvarpa
lýðræðislega kjörnum umbótastjórnum
eða til að hindra valdatöku vinstrimanna
í ríkjum Mið- og Suður-Ameríku . Hver
valdaræning inn öðrum ófrýnilegri fékk
að mergsjúga þjóð ir þessara landa í skjóli
bandaríkjanna . Mottó ið var: „They may
be sons of bitches, but they are our sons of
bitches .“ Allt var þetta réttlætt í nafni
krossferðarinnar gegn kommúnism anum .
Evrópsku nýlenduveldin háðu blóðugar
styrjaldir gegn sjálfstæðishreyfingum
fyrrverandi nýlendna í Afríku og Asíu .
Allir sem leiddu vopnaðar uppreisnir gegn
nýlendukúgun og arðráni voru stimplaðir
óvinir vestræns lýðræðis . Þeir voru annað
hvort kommúnistar eða handbendi þeirra
og réttdræpir sem hryðjuverkamenn, hvar
sem til þeirra náðist . Þessi meinta krossferð
gegn kommúnismanum var oftar en ekki
blygðunarlaus hagsmunavarsla nýlendu-
velda og fjölþjóðlegra auðhringa, til þess að
komast yfir auðlindir þriðja heimsins .
árekstrar menningarsvæða
Gott dæmi um þetta var þegar leyni-þjónustur breta og bandaríkja manna
komu Íranskeisara til valda, í samvinnu
við systurnar sjö í olíubransanum . Þetta
valda rán, og sú blóðuga ógnarstjórn sem
af hlaust, hefur dregið langan slóða á eftir
sér . Krossferðin gegn kommúnismanum
náði að lokum hápunkti í hátæknihernaði
Ameríkana gegn hrísgrjónabændum í
Vietnam, þar sem heimsveldið laut í fyrsta
sinn í lægra haldi fyrir skæruliðum örbirgð-