Þjóðmál


Þjóðmál - 01.06.2009, Side 98

Þjóðmál - 01.06.2009, Side 98
96 Þjóðmál SUmAR 2009 Í hinum ágæta bókaþætti Egils Helgason-ar í ríkissjónvarpinu, Kiljunni, tókust þau Kolbrún bergþórsdóttir og Páll Paldvin bald- vinsson á um ágæti Agöthu Christie ekki alls fyrir löngu . tilefnið var að bækur Agöthu eru nú aftur fáanlegar í kilju á Íslandi eftir langt hlé . bókafélagið ugla fékk útgáfurétt að bókum Agöthu Christie fyrir tveimur árum og gefur nú út nýjar þýðingar Ragnars jónassonar á bókum hennar innbundn ar fyrir jól en eldri þýðingar í kiljum að vorlagi . bækur Agöthu njóta enn mikilla vinsælda víða um lönd og eru þær nánast allar fáanlegar í bókabúðum í bretlandi og bandaríkjun um . En í Kiljunni fann Páll baldvin Agöthu flest til foráttu þrátt fyrir hetjuleg andmæli Kolbrúnar . Í tali Páls baldvins mátti greina endur óm af árásum sósíalista á Agöthu frá fyrri tíð þegar bækur áttu að gegna hlut verki í þjóð- fé lags bar átt unni . Það kemur því ekki á óvart að skandi navískar glæpa sögur skuli eiga meira upp á pall borðið hjá Páli baldvin . Þær eru eins og kunnugt er uppfullar af hrútleiðinlegum sósíal- real isma . Ekkert slíkt kjaft æði er að finna í hinni hreinu glæpa sögu, hvort heldur hún er á hinum ljúfu nótum Agöthu Christie eða í hinum harð soðna stíl bandarísku meist aranna (Hammets, Chandlers etc .) . Það á eftir að koma í ljós hvort kiljur Agöthu nái fótfestu á íslenskum bókamark aði en þar eru nú skandinavísku leiðindin nær allsráðandi . Agatha hefur hingað til staðið af sér alla strauma og stefnur og er ótvíræð drottn- ing sakamálasagnanna þótt ótal höfundum hafi verið hampað meira í svipinn um tíðina . nýlega skrifaði breski rithöfundurinn snjalli A .n . Wilson blaðagrein sem bar yfirskriftina: „Why I love Agatha“ . Hann rifjaði upp að hún höfðaði til fólks af ýmsu sauðahúsi, sbr . það dálæti sem hinn sprenglærði Oxford-meistari Maurice bowra hafði á Agöthu og má í því sambandi minnast þess að Sigurður nordal kunni vel að meta bækur hennar . Wilson segir að í sögum Agöthu sé að finna, auk hinnar mögnuðu spennu, hin stóru þemu klassískra bók- mennta – réttlæti, sannleika og hefnd . Þótt bækur Agöthu snúist um leit að sannleikanum séu þær ekki endilega um að sanna sekt heldur ekki síður að sýna fram á sakleysi þeirra sem hafa verið hafðir fyrir rangri sök . Enga meinfýsi sé að finna í bókum Agöthu og engar ofbeldislýsingar, þótt dauðdagar fórn ar lamb anna séu vissulega óhugn an- leg ir (kyrk ingar, eitranir, hnífs stung ur) . – Það sé því ekki að undra að þegar fólk sé þreytt, veikt eða dapurt í bragði finni það huggun í bókum Agöthu Christie . Hvað eftir annað tekst henni það sem mörgum fremri rit höf undi reynist um megn – að skapa listaverk sem er hvort tveggja fullkomin smíði og siðferðislega fullnægjandi . J. F. á. Agatha lifir

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.