Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 27
Kynntu þér námið á www.hr.is
MPH er rannsóknarmiðað nám í aðferðum lýðheilsuvísinda fyrir þá
sem vilja auka skilning sinn og færni í lýðheilsustarfi með einstak-
lingum, hópum og samfélögum, innanlands og erlendis. Sérstök
áhersla er lögð á lýðheilsu barna og ungmenna og heilsueflingu
meðal þeirra. Lýðheilsusvið starfar náið með rannsóknarsetrinu
Rannsóknum og greiningu, sem stundar rannsóknir á líðan og
högum barna og ungmenna á Íslandi og sem veitir nemendum
aðgang að fjölbreyttum rannsóknarverkefnum á grunni gagnasafns
setursins.
Nám til MPH-gráðu í lýðheilsufræðum er sérstaklega miðað við að
útskrifaðir nemendur vinni að skipulagi og framkvæmd lýðheilsu-
verkefna á vettvangi sveitarstjórna, heilbrigðis- og félagsþjónustu,
í skólum og fyrirtækjum.
MPH MASTER OFPUBLIC HEALTH
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Snæfellsbær
Stjórnunarstöður við leikskólann Kríuból á Hellissandi
Vegna mikillar frjósemi undir Jökli vantar okkur í afleysingar leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra við
leikskólann Kríuból á Hellissandi. Einnig vantar deildarstjóra á yngri deild. Ráðningartími er 1 ár og æskilegt
er að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en 15. júní, en deildarstjóri þarf að hefja störf í ágúst. Leikskólinn
er fyrsta skólastigið og annast uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri. Þar er lögð áhersla á nám og þroska
í gegnum leik og starf. Gerð er krafa um að umsækjendur séu með leikskólakennaramenntun. Nánari
upplýsingar fást hjá leikskólastjóra í síma 433-6926 eða á skrifstofu Snæfellsbæjar í síma 433-6900.
Skriflegum umsóknum ber að skila til skrifstofu Snæfellsbæjar fyrir 20. maí n.k. Umsóknareyðublöð
má finna á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is, undir „Stjórnskipan“ og „Eyðublöð“.
Hellissandur er einn af þremur þéttbýliskjörnum sem mynda sveitarfélagið Snæfellsbæ. Snæfellsbær er ungt
sveitarfélag sem vefur sig utan um Snæfellsjökul: Staðarsveit, Búðir, Breiðuvík, Arnarstapi, Hellnar, Hellissandur,
Rif, Ólafsvík og Fróðárhreppur. Í góðu veðri er Hellissandur í tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík og
veðrið er að sjálfsögðu alltaf gott undir Jökli! Hér býr gott fólk sem er alltaf tilbúið að bjóða nýja Snæfellsbæinga
velkomna. Í Snæfellsbæ er sérstaklega fallegt umhverfi þar sem Snæfellsjökul ber hæst og býður bæjarfélagið upp
á alla flóru landsins þegar kemur að landslagi, fugla- og dýralífi. Útivist og íþróttir er hægt að stunda hvenær sem
er ársins, skíði og snjóbretti, gönguferðir, golf, hestamennsku, sund og margt fleira. Nýtt glæsilegt íþróttahús er í
Ólafsvík (9 km). Öflugt tónlistarlíf er í sveitarfélaginu og félagastarfsemi með miklum blóma.