Þjóðmál - 01.03.2013, Page 44
Þjóðmál voR 2013 43
hags- og peningamála hefur verið í ólagi .
Á þeim sviðum er gríðarlegt svigrúm
til að gera betur . Krónan hefur tapað
kaupmætti vegna peningaprentunar
bankanna, sem hefur verið langt umfram
vöxt og þarfir hagkerfisins . Með upptöku
heildarforðakerfis myndi krónan halda
verðgildi sínu jafn vel, eða betur en flestir
aðrir gjaldmiðlar . Verðbólga yrði þá lítil og
verðtrygging óþörf .
f . Lífeyriseignir munu rýrna án verð-
tryggingar
Tæplega helmingur eigna lífeyrissjóð -anna er verðtryggð skuldabréf . Ef
eftirspurn er eftir verðtryggðum skulda -
bréfum get ur ríkissjóður mætt henni með
út gáfu slíkra bréfa . Það myndi auka hvata
ríkis ins til að draga úr verðbólgu (sjá 4) .
g . Sá sem lánar kíló af sykri vill fá kíló
af sykri til baka
Þeir sem lána peninga vilja skiljanlega
fá endurgreidda peninga sem hafa sama
kaupmátt . Þýðir það að lánveitendur eigi
meiri rétt til verðtryggingar en aðrir í
sam félaginu? Ekki nýtur launafólk verð-
tryggðra launa og er því ekki í aðstöðu til
að standa í skilum með verðtryggð lán,
nema hagvöxtur sé góður . Staðreyndin er
sú að sparifjáreigendur geta ekki búist við
jákvæðri ávöxtun af eignum sínum nema
hag kerfið standi undir þeim . Á heildina
litið lækka eignir í verði í kreppu og hví
ættu peningakröfur einar að halda fullum
kaupmætti við þær aðstæður?
*
Vonandi getur lesandinn fallist á að þó
svo að gild rök séu bæði með og á móti
verðtryggingu á neytendalánum þá vegi
mótrökin þyngra . Viðhorfskannanir sýna
að kjósendur vilja afnema verðtryggingu og
flestir stjórnmálaflokkar vilja afnema eða
draga úr vægi verðtryggingar í íbúða- og
neyt endalánum .
Afnám verðtryggingar
Hvernig gæti afnám verðtryggingar farið fram? Fyrsta verkið væri að mín-
um dómi að banna verðtryggingu á nýjum
lánum . Það er í sjálfu sér einföld aðgerð og
ekki eftir neinu að bíða með það .
Meira mál er að afnema verðtryggingu á
núverandi húsnæðisskuldum heimilanna .
Ef öll ný lán væru óverðtryggð og ekkert
annað gert, þá myndu umskiptin líklega
gerast af sjálfu sér á einum eða tveim
áratugum . Sé vilji til þess, má þó hraða
afnáminu mikið .
Lágmarka ætti kostnað við að skipta verð-
tryggðum íbúðalánum yfir í óverð tryggð .
Ríkið þyrfti að afnema stimpilgjald við
skuldbreytingu . Til að hvetja lántakendur
og lánastofnanir til skuldbreytingar mætti
líka nota skatta lega hvata . Lyklalög myndu
styrkja samn ingsstöðu lántakenda í ferlinu .
Afnám verðtryggingar í samfélaginu gæti
þá gengið í gegn á einu eða tveimur árum .
Vandi Íbúðalánasjóðs
Ekki verður hjá því komist að ræða vanda Íbúðalánasjóðs hvort sem verð trygg ing
verður afnumin eða ekki . Vandi sjóðsins
Vonandi getur lesandinn fallist á að þó svo að gild rök séu
bæði með og á móti verðtryggingu
á neytendalánum þá vegi mótrökin
þyngra .