Þjóðmál - 01.03.2013, Page 47

Þjóðmál - 01.03.2013, Page 47
46 Þjóðmál voR 2013 annað . Hvernig ætli fjölmiðlamenn og stjórn málamenn sinni eftirliti sínu með þeim sem enginn kaus? Skoða þeir verk þeirra með gagnrýnum huga eða taka þeir ein faldlega niðurstöður fagmannanna góð- ar og gildar? Mér hefur orðið minnisstætt út varps -viðtal sem ég heyrði fyrir allnokkru við mann sem hefur bæði starfað sem fjöl- miðla maður og stjórnmálamaður .1 Róbert Marshall, fyrrverandi formaður Blaða - mannafélags Íslands og fréttamaður á Stöð 2, þá alþingismaður Samfylkingar inn ar og nú frambjóðandi Bjartrar framtíðar, var sum arið 2009 í viðtali við Ríkis út varp ið sem „lesandi vikunnar“ . Slíkur maður ætti að vera þokkaleg heimild um vinnu brögð bæði fjölmiðlamanna og stjórn málamanna . Í viðtalinu segist Róbert lesa mikið: Ég er alltaf með svona þrjár, fjórar bækur í gangi, ég les mikið og fer í gegnum þetta mjög hratt og ég er með ákveðna aðferð líka þegar kem ur að svona kannski hérna bækur sem ég les um stjórnmál eða eru svona sjálfshjálpar bækur eða eitthvað svoleiðis, eitthvað sem er svona saman- safnaður vísdómur, sem ég vil tileinka mér og þá les ég kannski fyrstu paragröfuna eða fyrstu málsgreinina í hverjum kafla, ég skima hvaða kaflar eru í bók inni, og skoða upp setninguna og les það fyrsta og síðasta í hverjum kafla, og þannig hef ég kannski komist yfir efni heillrar bókar og náð svona meginhugsuninni á bak við hug mynda fræðina á fimmtán til tuttugu mínútum, í staðinn fyrir að gera það á þremur til fjórum tímum . . . Spyr þá aðdáunarfullur spyrill hvernig Róbert lesi „alþingisgögnin“ sem hann 1 Samfélagið í nærmynd, „lesandi vikunnar“, rætt við Róbert Marshall, 8 . júní 2009, Ríkisútvarpið, Rás 1 . fái í hendur sem þingmaður . Því svarar Róbert: Ja, ég les hratt, það er mikill lestur og ég hef tamið mér það að reyna, það er bara eitthvað sem gerist í blaðamennsku, þú færð þykka möppu og mikla skýrslu, þú ferð strax í inn ganginn og skoðar hvað er þar og svo ferðu í niðurstöðurnar og skoðar þær, og ef það er eitthvað sérstakt sem grípur þig í niður stöð unum, þá fer maður og les um það nánar, en ég sit eiginlega aldrei og les heila skýrslu, mér finnst það bara vera svo mikil . . . ég hef ekki tíma til þess . Og þetta hefur yfirleitt dugað mér, þannig að ég get komist yfir allt sem ég á að lesa, eins og Rannsóknarskýrslan, ég er ekki ennþá búinn með hana en ég fer í það sem ég sé í blöðunum að eru aðalatriðin og er mikið fjallað um og heyri hjá öðrum og svona skima þetta þannig að ég veit hvar efnið er að finna, mér finnst það vera á þeim tímum sem við lifum núna þá eru margar af þessum skýrslum til í rafrænu formi og ég get slegið inn leitarorð á netinu ef mig vantar eitt hvað sérstakt og ég bara er fljótur að ná í upp lýs ingar, það er eitthvað sem kom úr blaða mennsk- unni, maður sparar sér tíma og fer beint í það sem maður þarf á að halda og eins Hvernig ætli fjölmiðlamennog stjórn málamenn sinni eftirliti sínu með þeim sem enginn kaus? Skoða þeir verk þeirra með gagnrýnum huga eða taka þeir einfaldlega niðurstöður fagmannanna góðar og gildar?

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.