Þjóðmál - 01.03.2013, Side 90
Þjóðmál voR 2013 89
Óskar Jóhannsson
Ísland alltaf frjálst!
Alvarleg áminning til ríkisstjórnar Íslands, alþingismanna,
sveitarstjórnarmanna og frambjóðenda til Alþingis
Við þjóðaratkvæðagreiðslu um stofnun lýðveldisins var kjör-
sókn 98,6% . Það heimsmet verður
aldrei slegið . Sambandsslit við erlent
yfirvald voru samþykkt með 99,5%
atkvæða . Aðeins einn af hverjum
200 kjósendum vildi áfram erlend
yfirráð á Íslandi .
Ég var 16 ára við lýðveldisstofn-
unina á Þingvöllum 17 . júní 1944 .
Fyrir hönd allra Íslendinga, sem
lifðu þann dag, leyfi ég mér að árétta
að á þeim degi varð Ísland frjálst og
fullvalda ríki .
Ísland, ásamt öllum þess gögnum
og gæð um, er óumdeilanleg eign ís-
lensku þjóð arinnar .
Enginn, og allra síst það fólk sem
þjóðin hefur falið tímabundið að
gæta fullveldis og frelsis hennar, hefur
vald til að svipta komandi kynslóðir
minnstu ögn af fullveldi þjóðarinnar
yfir landinu og gæðum þess .
Ekkert heiti íslenskrar tungu er
ljótara en það sem þjóðin hefur valið
þeim sem gera sig seka um slíkt:
Landráð!
Hamingjan forði ykkur frá að hljóta
þau eftirmæli .
Aldrei mun afsal sjálfstæðis Ís-
lands verða fyrirgefið af komandi
kynslóðum, né aftur fengið .
Sem sjálfstæð þjóð, með vinsamleg
sam skipti á jafnréttisgrundvelli við
allar þjóðir, eiga afkomendur okkar
fullan og ótakmarkaðan rétt til afnota
af landsins gögnum og gæðum .
Megi komandi kynslóðir Íslend-
inga njóta heilbrigði og velfarnaðar í
frjálsu landi, um alla framtíð!