Þjóðmál - 01.03.2013, Síða 94
Þjóðmál voR 2013 93
þegar honum var boðið í tilefni af alþingis-
há tíð inni . Hann dvaldist hér á landi í þrjá
mán uði . Gunnar Eyjólfsson leikari minnist
þess að hafa hitt Jón og fengið blessun hans .
Hér hef ég staldrað við einn þráðinn í hinni
miklu bók Gunnars F . Guðmundssonar, það
er að Jesúítunum tókst það sem þeir ætl-
uðu sér þegar þeir buðu tveimur piltum frá
Íslandi til sín árið 1870 . Þeir kveiktu áhuga
á kaþólsku kirkjunni og boðskap hennar
á þann hátt að hún skaut á ný rótum á
Íslandi . Gunnar Einarsson og afkom endur
hans urðu burðarás í endurreisn kaþólsku
kirkjunnar á Íslandi og Ísland varð þunga-
miðjan í trúboði paters Jóns Sveinssonar .
Ævi Jóns Sveinssonar var ekki dans á rósum
nema í Nonnabókunum . Þær lýstu veröld
sem var séð með augum manns sem hafði
helgað líf sitt boðun trúarinnar . Þær veittu
honum frelsi innan strangrar reglu Jesúítanna
og urðu honum styrkur í einmanaleika, fjarri
móður sinni, fjölskyldu og fósturjörð .
Gunnar F . Guðmundsson ritar skýran
og fallegan stíl . Hann tekst á við flókið
viðfangsefni á þann hátt að lesandinn er
aldrei í vafa um hvar hann er staddur . Eina
aðfinnsla mín er að letur bókarinnar er of
smátt, ekki síst vegna þess að í henni eru
margar merkar tilvitnanir á enn smærra
letri en meginmálið .
Reyfarakenndur farsi
Sigurður Már Jónsson: Icesave-samningarnir
— afleikur aldarinnar? Almenna bókafélagið,
Reykjavík 2011, 239 bls .
Eftir Sigríði Á . Andersen
Þrátt fyrir alvarleika og þá ógn sem ís-lensku efnahagslífi stafaði af Icesave-
málinu er ekki víst að þorri almennings
hafi skynjað það af fréttaflutningi af mál-
inu lengst af . Vissulega fjölluðu fréttir
um háar fjárhæðir vegna Icesave og ekki
gerðu fjölmiðlar lítið með kröfur Breta
og Hollendinga í málinu . Minna fór hins
vegar fyrir fréttum eða fréttaskýringum um
réttmæti krafnanna eða afleiðingar þess ef
við þeim yrði ekki orðið . Fréttir af samn-
ingaumleitunum voru ekki meiri en þær í
bókstaflegri merkingu, hvort viðræðurnar
stæðu yfir eða ekki . Lítið fór fyrir fréttum
um hvað það væri nákvæmlega sem til
stæði að semja um . Um tíma voru fréttir
af Icesave hins vegar orðnar viðfangsefni
frétta í sjálfu sér . Reglulega var greint frá
því hversu oft hefði verið fjallað um Icesave
vikurnar á undan . Þeir voru margir sem
lýstu sig leiða ef ekki hundleiða á fréttum af
Icesave . Þetta fólk ætti að lesa bók Sigurðar
Más Jónssonar um Icesave-samningana . Í
henni fjallar Sigurður um vinnubrögð og
niðurstöður samninganefndanna sem gerðar
voru út af örkinni til móts við kröfur Breta
og Hollendinga vegna Icesave-innistæðna
Landsbankans .
Bókin hefst með reyfarakenndri lýsingu
á því hvernig samningnum, sem Svavar
Gests son undirritaði þann 5 . júní 2009
(Icesave I), var komið til eins forsvarsmanna
Indefence-hópsins og til fréttastofu RÚV af
huldu manni . Samningurinn hafði ekki verið
gerður opinber og af einhverjum ástæðum,
sem enginn hefur getað útskýrt, hvíldi yfir
honum svo mikil leynd að jafnvel þingmenn,
sem þó þurftu að taka afstöðu til samnings ins
við atkvæðagreiðslu, höfðu ekki mátt kynna
sér efni hans nema undir eftirliti . Eftir lestur
á tveimur fyrstu blaðsíðum bókarinnar er
þannig næsta víst að jafnvel þeir sem lýstu
yfir formlegu áhugaleysi á Icesave, en það
gerðu menn gjarnan til dæmis í þar til
gerðum Facebook-hópum, mega til með að
halda lestrinum áfram .
Sigurður skiptir bókinni skilmerkilega
upp í kafla eftir megindráttum atburða-